Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 555. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1128  —  555. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir hafa starfað á verktakasamningum í ráðuneytinu á tímabilinu 1. maí 2011 til 20. janúar 2013?

    Það starfaði enginn starfsmaður á verktakasamningi með viðveruskyldu og fasta starfsstöð í ráðuneytinu á framangreindu tímabili né gerir það nú. Öryggisverðir og fólk er sinnir ræstingum í ráðuneytinu er í ráðningarsambandi við þriðja aðila sem ráðuneytið hefur samið við um slík verk.