Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 608. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1135  —  608. mál.

2. umræða.


Nefndarálit



um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum
um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (dreifing gjalddaga).


Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Halldór Árnason frá Samtökum atvinnulífsins.
    Frumvarp þetta varðar breytingu á hefðbundnum gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda vegna uppgjörstímabila á árinu 2013. Frumvarpið er samhljóða frumvarpi sem varð að lögum nr. 18/2012 á síðasta þingi og varðaði tilgreind uppgjörstímabil á árinu 2012. Lögð er til sem fyrr sú framkvæmd að síðari helmingi aðflutningsgjalda skuli skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 5. mars 2013.



Helgi Hjörvar,


form., frsm.


Lilja Rafney Magnúsdóttir.


Magnús Orri Schram.



Árni Þór Sigurðsson.


Skúli Helgason.


Guðlaugur Þór Þórðarson.



Pétur H. Blöndal.


Eygló Harðardóttir.


Lilja Mósesdóttir.