Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 655. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1167  —  655. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um rekjanleika í tölvukerfum ráðuneytisins,
sýslumannsembætta og lögreglu.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Er rekjanleiki fyrir hendi í einhverjum þeirra tölvukerfa sem ráðuneytið, sýslumannsembætti og lögregla nota og er haldin „log“-skrá hjá þessum aðilum?
     2.      Hvernig er haldið utan um sögu aðgerða notenda í kerfunum, t.d. um það hvað notendur skrá, breyta eða skoða?


Skriflegt svar óskast.