Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 674. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1213  —  674. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um að efla þátttöku félagasamtaka á sviði umhverfisverndar og útivistar
við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana.


Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar
(ÓGunn, ÁI, ÓÞ, AMG, MÁ, AtlG).


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita leiða til að hvetja félagasamtök á sviði umhverfisverndar og útivistar til aukinnar þátttöku í ákvörðunarferli mats á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, sbr. lög nr. 106/2000 og lög nr. 105/2006, með því að stofna styrktarsjóð sem samtök á sviði umhverfisverndar og útivistar geta sótt um styrki til.

Greinargerð.

    Markmið tillögunnar er að styrkja fjárhagslegt bolmagn félagasamtaka til að sinna betur vaxandi hlutverki sínu með þátttöku í ákvarðanatöku er varðar umhverfis- og náttúruvernd í samfélaginu. Æ ríkari áhersla hefur verið lögð á þátttöku almennings í ferli mats á umhverfisáhrifum. Þetta endurspeglast í þróun löggjafarinnar á undanförnum árum, m.a. með innleiðingu Árósasamningsins sem og í breyttum viðhorfum til umhverfisverndar almennt. Mikilvægt er að stjórnvöld leiti sem flestra leiða til að auka fjárhagslega og þar með almenna getu félagasamtaka til að taka þátt í ferli mats á umhverfisáhrifum. Með því er líklegra að hægt verði að ná fram markmiðum laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, sem gera ráð fyrir samvinnu hagsmunaaðila og þátttöku almennings, m.a. með athugasemdum og upplýsingum sem nýst geta í ferlinu.
    Framlag félagasamtaka er afar mikilvægt í matsferlinu öllu, þar sem þau gegna mikilvægu aðhalds- og eftirlitshlutverki sem fulltrúar ákveðins hóps almennings. Félagasamtök hafa jafnan góð tengsl við heimamenn og geta aðstoðað þá við að koma á framfæri upplýsingum um staðhætti sem geta haft mikilvæg áhrif á valkosti í mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdaraðilar hafa ítrekað bent á að aðkoma félagasamtaka og almennings sé oftast á síðustu stigum í ferli mats á umhverfisáhrifum og að þá sé erfiðara að koma til móts við ábendingar þeirra.
    Á sama tíma og stjórnvöld hafa lagt áherslu á aukna þátttöku almennings og félagasamtaka við ákvarðanir sem varða umhverfismál skortir félagasamtök sárlega fjármagn, mannafla og getu til að nýta sér þennan rétt til þátttöku í ferli mats á umhverfisáhrifum. Með því að auka fjármagn og getu félagasamtaka ættu þau að geta tekið virkari þátt í öllu ferlinu, ekki síst á fyrri stigum, en einnig við eftirlit eftir að framkvæmdum lýkur.
    Tillagan kveður á um að stofnaður verði styrktarsjóður í þessu skyni. Með styrkveitingum hvetja stjórnvöld og framkvæmdaraðilar almenning og félagasamtök til virkrar þátttöku í matsferlinu og styðja framgang þeirra breytinga sem orðið hafa í lagaumhverfi, m.a. með innleiðingu Árósasáttmálans í íslenskan rétt. Þau ákvæði verða ekki virk í reynd nema félagasamtök á sviði umhverfisverndar og útivistar geti sótt fjármagn til verkefna tengdum mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana. Þá má nefna mikilvægt framlag þeirra til ýmissa þingmála sem þau einnig gefa álit á. Með aukinni getu félagasamtaka munu þau geta starfrækt mun betur mikilvægt hlutverk sitt í lýðræðislegri ákvarðanatöku í samfélaginu, bæði þegar kemur að skipulagsáætlunum og framkvæmdum.
    Í umhverfis- og samgöngunefnd hefur á yfirstandandi þingi verið fjallað um reynsluna af mati á umhverfisáhrifum framkvæmda, m.a. í tilefni af frumvarpi til laga um breytingu á lögum þar um. Fulltrúar Landverndar sem komu fyrir nefndina bentu á fyrrgreinda leið með það að markmiði að efla þátttöku almennings í ferlinu. Þeir bentu á að kveða mætti á um að tiltekinn hundraðshluti af kostnaði framkvæmdaraðila vegna mats á umhverfisáhrifum, sbr. lög nr. 106/2000, og kostnaði stjórnvalda við tilteknar skipulags- og framkvæmdaáætlanir, sbr. lög nr. 105/2006, rynni í sjóð sem félagasamtök á sviði umhverfisverndar og útivistar gætu sótt um styrki til. Benda má á Skipulagssjóð sem fordæmi en Skipulagsstofnun annast vörslu, umsýslu og greiðslur úr sjóðnum eða að ráðherra skipi sjóðnum sérstaka óháða stjórn til þeirra verka. Í reglugerð mætti kveða á um starfsreglur sjóðsins og mótun reglna um umsóknir og úthlutun styrkja úr honum.
    Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar bendir á að móta þarf skýrar reglur um skilyrði fyrir styrkjum af þessu tagi sem og eftirlit með ráðstöfun þeirra svo að sanngirni yrði gætt í úthlutun. Ein leið væri að miða við fjölda verkefna og umfang þeirrar starfsemi sem félagasamtök verja í vinnu við umsagnir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Önnur leið væri að greidd yrði ákveðin prósenta af kostnaði sem hlýst af vinnu félagasamtaka að einstökum verkefnum úr styrktarsjóðnum, líkt og Skipulagssjóður greiðir helming kostnaðar við gerð svæðis- og aðalskipulags á móti sveitarfélögum. Einnig þyrfti að útfæra hvers konar verkefni væri hægt að sækja um fjármagn til að vinna, en þeim má í grófum dráttum skipta í tvennt; annars vegar styrki vegna almennrar þátttöku í ferli mats á umhverfisáhrifum og hins vegar styrki til sérstakra verkefna. Hinum fyrrnefndu yrði ráðstafað til að greiða kostnað vegna sérfræðiálita, ferðakostnað og annað sem hlytist af virkari þátttöku félagasamtaka í matsferlinu, þ.m.t. umsagnir, athugasemdir og kærur varðandi ákvarðanir um matsskyldu framkvæmda, matsáætlanir og frummatsskýrslur. Sem dæmi um styrki til sérstakra verkefna má nefna rannsóknir til að bæta við þekkingu sem gæti skýrt betur umhverfisáhrif framkvæmda, t.d. áhrif sem ekki sáust fyrir eða áhrif þátta þar sem óvissa er mikil. Einnig má nefna rannsóknir á þáttum þar sem niðurstaða umhverfismats er umdeild en félagasamtök gætu þá t.d. keypt utanaðkomandi sérfræðinga til að vinna slíka vinnu til að styrkja hlutleysi í rannsóknum og loks má nefna eftirlit með einstökum framkvæmdum á meðan á þeim stendur og áhrifum þeirra eftir að þeim lýkur, t.d. hvort mótvægisaðgerðir hafi skilað tilætluðum árangri. Loks má nefna stærri kærur vegna þátta sem tengjast mati á umhverfisáhrifum.
    Hér hafa verið nefnd nokkur dæmi sem sýna mikilvægi virkrar aðkomu almennings og félagasamtaka að matsferli áætlana og umhverfisáhrifa. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar telur mikilvægt að framkvæmdarvaldið fylgi eftir þeim miklu breytingum sem hafa orðið með lagasetningu á þessu sviði og tryggi eins og kostur er að almennum félagasamtökum á sviði umhverfisverndar og útivistar verði gert kleift að rækja þátttökuskyldu sína. Í því skyni er tillagan flutt.