Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 449. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1238 — 449. mál.
Í þeim tilgangi að styðja við framkvæmd rafræns lýðræðis í sveitarfélögum getur ráðherra heimilað, að beiðni viðkomandi sveitarstjórnar, að íbúakosning á grundvelli X. kafla sveitarstjórnarlaga fari eingöngu fram með rafrænum hætti og að kjörskrá vegna íbúakosninga verði rafræn.
Ráðuneytið skal í reglugerð mæla nánar fyrir um undirbúning, framkvæmd og fyrirkomulag rafrænna kosninga og gerð rafrænnar kjörskrár, þar á meðal um gerð og notkun rafrænnar kjörskrár, viðmiðunardag kjörskrár, auglýsingu um kjörskrá og heimild til breytingar á henni, um skipan og starfshætti kjörstjórna, meðferð kjörgagna, tímafresti, öryggi við framkvæmd sem tryggir leynd kosninga, gerð kosningakerfa, dulkóðun og framkvæmd öryggisúttektar, kröfur til auðkenningar, framkvæmd talningar, kosningakærur og eyðingu gagna úr kosningakerfum að afloknum kosningum. Að öðru leyti gilda ákvæði 107. gr. um framkvæmd rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár.
Í reglugerðinni skal einnig mælt fyrir um hlutverk Þjóðskrár Íslands, þar á meðal um gerð og umsjón vefsvæðis, auðkenningu, uppflettingu í þjóðskrá og talningu. Þjóðskrá Íslands er heimilt að taka gjald í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar fyrir þá þjónustu sem stofnunin veitir vegna undirbúnings og framkvæmdar rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár skv. 1. mgr. og rafrænna undirskriftasafnana skv. 108. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að beita ákvæðum reglugerðarinnar við framkvæmd rafrænna íbúakannana eftir því sem við á.
Til að vera ráðherra til ráðgjafar og til að fylgjast með framkvæmd rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár sem og að sinna öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni á þessu sviði skal ráðherra skipa þriggja manna ráðgjafanefnd. Einn skal skipa samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvo án tilnefningar. Þrír varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1238 — 449. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, með síðari breytingum
(heimild til rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár).
(Eftir 2. umræðu, 13. mars.)
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:Í þeim tilgangi að styðja við framkvæmd rafræns lýðræðis í sveitarfélögum getur ráðherra heimilað, að beiðni viðkomandi sveitarstjórnar, að íbúakosning á grundvelli X. kafla sveitarstjórnarlaga fari eingöngu fram með rafrænum hætti og að kjörskrá vegna íbúakosninga verði rafræn.

2. gr.