Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 682. máls.
Þingskjal 1254 — 682. mál.
Vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað byggist á ákvæðum námskrár fyrir viðkomandi starfsnám sem er hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Staðfestir náms- og starfsþjálfunarsamningar skulu liggja fyrir við upphaf vinnustaðanáms. Með námssamningi er í lögum þessum átt við þríhliða samning milli nemanda, vinnuveitanda og framhaldsskóla um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Með starfsþjálfunarsamningi er í lögum þessum átt við tvíhliða samning milli skóla og vinnuveitanda um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Í námssamningum og starfsþjálfunarsamningum skal tilgreina þá starfsgrein sem námið nær til, samningsaðila, námstíma, fyrirkomulag náms, reynslutíma og kjör nemanda á námstíma. Einnig skal koma fram gildistími samnings og ákvæði um meðferð ágreinings og samningsslit. Samningar eru undirritaðir af öllum samningsaðilum og staðfestir af umsýsluaðila, sbr. 3. mgr.
Ráðherra skipar nemaleyfisnefndir fyrir einstakar starfsgreinar eða starfsgreinaflokka þar sem við á að fengnum tilnefningum starfsgreinaráða. Hlutverk nemaleyfisnefnda er að ganga úr skugga um að fyrirtæki eða stofnanir sem bjóða upp á vinnustaðanám eða starfsþjálfun uppfylli öll skilyrði til þess. Nánar skal kveðið á um slík skilyrði í reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Nemaleyfisnefndir setja sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir. Ráðherra setur nemaleyfisnefndum erindisbréf.
Ráðherra getur með þjónustusamningi falið fræðsluaðila umsýslu með gerð og skráningu samninga og eftirlit með þeim. Jafnframt má fela fulltrúa á vegum slíks umsýsluaðila að staðfesta og eftir atvikum að slíta námssamningi, enda sé þá gætt málsmeðferðar samkvæmt stjórnsýslulögum og nánari fyrirmæla í starfsþjálfunar- eða ráðningarsamningi. Verði ágreiningur um réttindi eða skyldur nemenda vegna framkvæmdar umsýsluaðila sker ráðherra úr.
Ráðherra setur reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað að fenginni umsögn aðila vinnumarkaðar, samtaka skólastjórnenda og samtaka nemenda.
a. Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: efnisgjalds og gjalds fyrir rafrænt námsefni.
b. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heimilt er í tilraunaskyni með sérstöku leyfi ráðherra að innheimta gjald fyrir rafrænt námsefni sem framhaldsskólar ákveða og er veigamikill hluti af námsefni í námsáfanga á skráðri námsbraut viðkomandi nemenda eða í áfanga sem þeir hafa ákveðið að stunda sem valgrein.
c. Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 2. mgr. kemur: efnisgjalds og gjaldtöku fyrir rafrænt námsefni.
Með lögum um vinnustaðanámssjóð sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní 2012 varð til hvati fyrir fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka nemendur á námssamning eða í starfsþjálfun og gera þeim kleift að ljúka að fullu námi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Með lögunum var komið á laggirnar sérstökum sjóði sem greiðir fyrirtækjum sem annast vinnustaðanám styrki til þess að mæta kostnaði sem fellur til vegna nemahalds. Styrkgreiðslur hófust raunar þegar haustið 2011 á grundvelli reglna sem staðfestar voru af mennta- og menningarmálaráðherra. Forsenda styrkveitingar samkvæmt reglunum er að fyrir liggi samningur um námið milli nemanda og fyrirtækis eða milli framhaldsskóla og stofnunar.
Stofnun vinnustaðanámssjóðs endurspeglar viðleitni stjórnvalda til þess að efla starfsnám og beinist hún einkum að umbótum í vinnustaðahluta þess. Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að efla eftirlit með námi á vinnustað, m.a. með svokölluðum nemaleyfisnefndum. Ákvæði um skipun þeirra er að finna í reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Nefndirnar hafa einkum verið starfræktar innan löggiltra iðngreina og verið skipaðar fulltrúum viðkomandi iðngreinar, bæði úr atvinnulífi og skólum. Hlutverk nemaleyfisnefnda er að ganga úr skugga um að fyrirtæki uppfylli skilyrði reglugerðar um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Þær hafa þannig ákveðið eftirlitshlutverk og er ætlunin með því að tryggja gæði námsins. Nú þegar hið opinbera hefur hafið greiðslur til fyrirtækja sem taka nemendur til vinnustaðanáms þykir ástæða til þess að efla starf þessara nefnda og skipa þeim fastan sess í lögum um framhaldsskóla. Frumvarpi þessu, sem samið er í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, er ætlað að ná framangreindu markmiði.
Í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um vinnustaðanámssjóð á 140. löggjafarþingi kom fram ábending um að framhaldsskólar skyldu vera aðilar að námssamningum í þeim tilgangi að tryggja samfellu og gæði náms. Hefur við frumvarpssmíðina verið tekið tillit til sjónarmiða allsherjar- og menntamálanefndar. Þó skal bent á að nú eru við lýði tvær gerðir samninga um starfsnám á framhaldsskólastigi: annars vegar starfsþjálfunarsamningar milli framhaldsskóla og stofnunar og hins vegar hefðbundnir námssamningar milli nemanda og fyrirtækis. Samningar af hinni fyrrnefndu tegund eru gerðir í sumum heilbrigðis- og umönnunargreinum þar sem starfsþjálfun er tiltölulega stutt og ekki gerðir persónubundnir samningar, heldur eingöngu samningar um að stofnun taki að sér tiltekinn fjölda nemenda á tilgreindu tímabili. Mælt er með því að þeirri framkvæmd verði haldið óbreyttri. Að hinu leytinu er gerð sú breyting á ákvæði um námssamninga að samningsaðilar séu þrír: nemandi, fyrirtæki og framhaldsskóli. Auk þess er skerpt á ákvæðum lagagreinarinnar varðandi tilhögun náms á vinnustað.
II. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Með lögum um vinnustaðanámssjóð, nr. 71/2012, var komið á laggirnar sjóði sem greiðir opinbera styrki til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur til náms á vinnustað. Tilgangur styrkjanna er að mæta kostnaði fyrirtækja af nemahaldi, en jafnframt að efla innviði starfsmenntunar í landinu og skapa tækifæri til þess að efla gæði þess með auknum kröfum til fyrirtækja er njóta opinberra framlaga. Með nemaleyfisnefndum, sbr. 2. mgr. 2. gr. frumvarps þessa, er unnt að tryggja betur að vinnustaðir sem taka nema til náms uppfylli í reynd skilyrði reglugerðar um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað og fylgjast með því að námi og þjálfun nemenda sé sinnt sómasamlega.
Þá er lagt til að mælt verði fyrir um að kennsla skuli fara fram í viðurkenndu skólahúsnæði sem uppfyllir lög og reglugerðir þar að lútandi, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Þessi breyting er lögð til með hliðsjón af ákvæðum laga og reglugerða um opinbert byggingareftirlit sem fram fer hjá öðrum stjórnvöldum, þar sem kveðið er á um fullnægjandi eftirlit með húsnæði þar sem atvinnustarfsemi fer fram, og hefur ráðuneytið ekki haft sérstakt eftirlit með húsnæði einkaskóla á framhaldsskólastigi umfram lögbundið eftirlit opinberra eftirlitsstofnana.
Í frumvarpinu er enn fremur lagt til að skólum verði, með sérstöku leyfi ráðherra, heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Rafrænt námsefni hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms í framhaldsskólum og þykir ljóst að það muni leysa hefðbundna útgáfu af hólmi að talsverðum hluta í náinni framtíð. Hafa útgefendur og áhugamenn um rafrænt námsefni bent á að tryggja verði greiðslur fyrir rafræna efnið með öðrum hætti en almennt gerist um prentað námsefni þar sem útbreiðsla þess á netinu valdi því að auðvelt sé að nálgast það án þess að greiða fyrir það með sama hætti og þegar prentaðar námsbækur eru keyptar. Því verði að tryggja að þeir sem nota rafræna efnið greiði fyrir kostnað við útgáfu þess og vandséð að það takist öðruvísi en með þeirri heimild sem hér er lögð til í 3. gr. frumvarps þessa.
Í 3. málsl. 1. mgr. 47. gr. núgildandi laga um framhaldsskóla er mælt fyrir um að lóðir undir framhaldsskóla skuli sveitarfélög leggja til án endurgjalds. Í 4. gr. frumvarps þessa er lögð til sú orðalagsbreyting að kveðið verði á um það að lóðir undir framhaldsskóla skuli sveitarfélög leggja til án kvaða eða gjalda. Verði þannig horfið til þess orðalags sem var í sambærilegu ákvæði eldri laga, nr. 80/1996, en af frumvarpi því er varð að lögum nr. 92/2008 og öðrum lögskýringargögnum verður ekki séð að vilji löggjafans hafi staðið til þess að gera þá breytingu að ríkið skyldi framvegis greiða gatnagerðargjöld af umræddum lóðum.
III. Meginefni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er gerð sú breyting á lögum um framhaldsskóla að mælt er fyrir um tilvist og hlutverk nemaleyfisnefnda. Nemaleyfisnefndir hafa starfað í sumum löggiltum iðngreinum um árabil og hefur fengist góð reynsla af starfi þeirra. Gert er ráð fyrir að breiða út starf nefndanna til fleiri greina og stuðla með því að auknum gæðum vinnustaðanáms. Jafnframt er í frumvarpinu kveðið á um aðkomu framhaldsskóla að námssamningum til þess að tryggja samfellu og aðhald með nemendum í starfsnámi. Þá er lagt til að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Gert er ráð fyrir því að ráðherra veiti skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, bundið við tilteknar námsgreinar. Um frekari útfærslu þess yrði nánar kveðið á í reglugerð.
IV. Samráð.
Við smíði frumvarpsins var haft samráð við þá aðila er áttu fulltrúa í nefnd er samdi frumvarp til laga um vinnustaðanám. Þeir aðilar eru eftirtaldir: Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samband íslenskra framhaldsskólanema, Félag íslenskra framhaldsskóla, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Jafnframt var haft samráð við öll starfsgreinaráð, sem starfa á grundvelli 24. og 25. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Enn fremur var haft samráð við alla þá framhaldsskóla er bjóða upp á starfsnám. Í samráðsferlinu komu fram ábendingar um að skilgreina þyrfti nánar samstarf atvinnulífs og skóla og útskýra hvað felst í þríhliða námssamningi. Þær ábendingar leiddu ekki til breytinga á frumvarpinu en hins vegar var ákveðið að taka þær til skoðunar við nánari útfærslu í reglugerð.
V. Mat á áhrifum.
Með samþykkt frumvarpsins er vonast til að koma megi á meira aðhaldi og eftirliti með námi nemenda sem fer fram á vinnustað, tryggja samfellu milli náms í skóla og náms úti í atvinnulífinu og auka gæði þess. Með því er rennt stoðum undir störf nemaleyfisnefnda og þeim gert fært að koma fram sem hluti af eftirliti stjórnvalda með starfsnámi. Þá verður aðkoma framhaldsskóla að vinnustaðanámi skýrari og samfella og gæði náms aukin.
Í gildandi lögum er kveðið á um það í h-lið 1. mgr. 12. gr. að skilyrði fyrir viðurkenningu sjálfstætt starfandi framhaldsskóla lúti meðal annars að því að lagt skuli mat á starfsaðstöðu og aðbúnað kennara og nemenda og þjónustu við þá. Í reglugerð um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi, nr. 426/2010, er nánar mælt fyrir um málsmeðferð vegna viðurkenningar ráðherra. Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur fram að í viðurkenningu ráðherra á starfsemi einkaskóla felist m.a. viðurkenning á starfsaðstöðu og aðbúnaði skóla. Í c-lið 3. gr. reglugerðarinnar segir að í umsókn um viðurkenningu skuli koma fram lýsing á starfsaðstöðu, þ.e. húsnæði skóla og aðbúnaði, ásamt vottorðum frá yfirvöldum heilbrigðis- og brunamála. Í j-lið 5. gr. reglugerðarinnar segir að meðal skilyrða viðurkenningar sé að starfsaðstaða skólans sé fullnægjandi að mati ráðuneytisins.
Að mati ráðuneytisins er rétt að breyta h-lið 1. mgr. 12. gr. gildandi laga um framhaldsskóla um úttekt á skólahúsnæði í ljósi ákvæða um opinbert byggingareftirlit sem fram fer hjá öðrum stjórnvöldum, sbr. lög um mannvirki, nr. 160/2010, byggingarreglugerð, nr. 112/2012, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, reglugerð um hollustuhætti, nr. 941/ 2002, og eldvarnaeftirlit samkvæmt ákvæðum laga um brunavarnir, nr. 75/2000, og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum. Í framangreindum lögum og reglugerðum er kveðið á um fullnægjandi eftirlit með húsnæði þar sem atvinnustarfsemi fer fram og hefur ráðuneytið ekki haft sérstakt eftirlit með húsnæði einkaskóla á framhaldsskólastigi umfram það eftirlit sem opinberar eftirlitsstofnanir hafa með atvinnuhúsnæði. Samkvæmt tillögunni mun því úttekt á skólahúsnæði lúta ákvæðum laga og reglugerða þar að lútandi, þ.e. að byggingarfulltrúi hafi lokið úttekt samkvæmt ákvæðum gildandi byggingarreglugerðar og laga um mannvirki, heilbrigðiseftirlit hafi gert úttekt samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, og eldvarnaeftirlit, í samvinnu við byggingarfulltrúa, gengið úr skugga um að húsnæði uppfylli kröfur samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir, auk þess sem Vinnueftirlit ríkisins hafi eftir atvikum gert úttekt á vinnuaðstöðu í skóla.
Í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla er fjallað nánar um starfsnám. Þar er að finna umfjöllun um tvíþætt inntak vinnustaðanáms. Um starfsnám á vinnustað eru notuð hugtökin vinnustaðanám eða starfsþjálfun. Gengið er út frá því að í vinnustaðanámi séu alla jafna gerðar meiri kröfur um markvissa, skipulagða fræðslu, leiðsögn og eftirlit en þegar um starfsþjálfun er að ræða. Í starfsþjálfun er lögð áhersla á að nemendur fái tækifæri til að þjálfa frekar verkþætti og verkferla sem þeir hafa þegar fengið kennslu í. Þeir eiga því að vera færir um að sýna meiri ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum en þegar um vinnustaðanám er að ræða.
Mælt er fyrir um að staðfestir náms- og starfsþjálfunarsamningar skuli liggja fyrir við upphaf vinnustaðanáms. Þá skulu vera í samningnum ákvæði um hvaða starfsgreina námið nær til, hverjir samningsaðilar eru, námstíma, fyrirkomulag náms, reynslutíma og kjör nemanda á námstíma. Einnig eru ákvæði um gildistíma samnings og um meðferð ágreinings og samningsslit. Loks er mælt fyrir um undirritun og staðfestingu samninga.
Tekið er út ákvæði í núverandi lagagrein um sérstakan ráðningarsamning og staðfestingu hans þar eð það virðist ekki vera hlutverk menntamálayfirvalda að kveða á um slík atriði.
Tekið er út ákvæði um að starfsgreinaráð haldi skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms, enda er gert ráð fyrir að nemaleyfisnefndir haldi sjálfar slíkar skrár. Þá er tekið út ákvæði sem heimilar ráðherra að fela skólum umsýslu og eftirlit með námssamningum þar sem óeðlilegt er talið að skólar séu bæði aðilar að samningum og hafi einnig umsýslu og eftirlit með höndum. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur frá árinu 1997 falið fræðslustofnunum iðngreina umsýslu með námssamningum og sveinsprófum í löggiltum iðngreinum og þykir sú umsýsla hafa tekist vel. Ekki er ráðgert að breyta því fyrirkomulagi.
Samkvæmt frumvarpinu skipar ráðherra nemaleyfisnefndir fyrir einstakar starfsgreinar eða starfsgreinaflokka þar sem við á að fengnum tilnefningum starfsgreinaráða, en fram hefur komið í umsögnum sumra starfsgreinaráða að þau sjái ekki fram á að skipaðar verði nemaleyfisnefndir fyrir þeirra starfsgreinar. Því virðist ekki þörf á að áskilja skipun slíkra nefnda fyrir allar starfsgreinar sem njóta fræðslu á framhaldsskólastigi. Skilgreint er hlutverk nemaleyfisnefnda og jafnframt gert ráð fyrir að nánar sé kveðið á um skilyrði fyrir störfum þeirra í reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Jafnframt er gert ráð fyrir að nemaleyfisnefndir setji sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir og að ráðherra setji nemaleyfisnefndum erindisbréf.
Í frumvarpinu er kveðið á um að ráðherra geti með þjónustusamningi falið fræðsluaðila umsýslu með gerð og skráningu samninga og eftirlit með þeim. Jafnframt megi fela fulltrúa á vegum slíks umsýsluaðila að staðfesta og eftir atvikum slíta námssamningi, enda sé þá gætt málsmeðferðar samkvæmt stjórnsýslulögum og nánari fyrirmæla í starfsþjálfunar- eða ráðningarsamningi. Verði ágreiningur um réttindi eða skyldur nemenda vegna framkvæmdar umsýsluaðila sker ráðherra úr.
Í frumvarpinu er heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað, að fenginni umsögn aðila vinnumarkaðar, samtaka skólastjórnenda og samtaka nemenda. Tekið er út ákvæði um heimildir skóla til þess að fela aðila utan hans umsýslu með starfsþjálfunarsamningum þar eð ekki er gert ráð fyrir að skóli hafi það hlutverk.
Ekki er kveðið á um það í lögum hver beri ábyrgð á útgáfu námsefnis í framhaldsskólum né hver skuli greiða kostnað af þeirri útgáfu. Útgáfa efnis er í höndum einkaaðila. Stærstur hluti efnis er gefinn út af starfandi bókaforlögum og seldur í bókaverslunum og á skiptibókamörkuðum sem kaupa notaðar bækur af nemendum og selja með álagningu. Nokkuð er einnig um að nemendur kaupi til viðbótar útgefnum námsbókum margvíslegt efni sem þeim er gert að hafa tiltækt. Þar er um að ræða ítarefni, glósur og verkefni sem gefin eru út og seld nemendum í skólunum.
Rafrænt námsefni (námsefni aðgengilegt á netinu) hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms í framhaldsskólum þótt enn sé það í smáum stíl hér á landi. Öllum er ljóst að rafrænt námsefni hlýtur að leysa hefðbundna útgáfu af hólmi að talsverðum hluta í náinni framtíð. Útgefendur og áhugamenn um rafrænt námsefni hafa bent á að tryggja verði greiðslur fyrir rafræna efnið með öðrum hætti en almennt gerist um prentað námsefni. Útbreiðsla efnis á netinu sé með þeim hætti að alltaf verði auðvelt að nálgast það án þess að greiða fyrir með sama hætti og þegar prentaðar námsbækur er keyptar. Aldrei verði unnt að takmarka aðgang að rafrænu efni við þá eina sem greitt hafi fyrir það nema með mjög flóknum og dýrum aðferðum. Því verði að tryggja að þeir sem nota rafræna efnið greiði fyrir kostnað við útgáfu þess. Vandséð er að það náist öðruvísi en að skólum verði veitt heimild til að krefja nemendur um greiðslur fyrir aðgang að rafrænu efni sem þeim er gert að nýta í námi. Slík heimild er hvorki í núverandi lögum né reglugerð um gjaldtökuheimildir opinberra framhaldsskóla, nr. 614/2009.
Hér er lagt til að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Er því gert ráð fyrir að ráðherra veiti skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, bundið við tilteknar námsgreinar. Nánar verður svo kveðið á um útfærslu, svo sem hámarksupphæðir, greiðslufyrirkomulag og upplýsingaskyldu skóla, í reglugerð.
Í kjölfar gildistöku laga nr. 92/2008 hefur komið upp ágreiningur á milli ríkisins og einstakra sveitarfélaga þess efnis hvort lóðir sem sveitarfélög leggja til fyrir byggingu framhaldsskólahúsnæðis skuli bera gatnagerðargjöld samkvæmt lögum nr. 153/2006. Af hálfu þeirra sveitarfélaga hefur verið vísað til framangreindrar orðalagsbreytingar í framhaldsskólalögum, þ.e. að nú er ekki tekið fram sérstaklega í 1. mgr. 47. gr. laga nr. 92/2008 að sveitarfélag skuli leggja til lóð „án kvaða eða gjalda“. Af frumvarpi því sem varð að lögum nr. 92/2008 og öðrum lögskýringargögnum verður ekki séð að vilji löggjafans hafi staðið til þess að gera þá breytingu að ríkið skyldi framvegis greiða gatnagerðargjöld af umræddum lóðum. Fyrir liggur staðfesting á slíkum skilningi í áliti sem ríkislögmaður veitti fjármála- og efnahagsráðuneyti 17. ágúst 2012. Með vísan til þessa er því lagt til að horfið verði aftur til þess orðalags sem var í 3. málsl. 4. mgr. 37. gr. laga nr. 80/1996.
Fylgiskjal.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Þá er í frumvarpinu lagt til að breytt verði því skilyrði fyrir viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi að lagt skuli mat á starfsaðstöðu og aðbúnað kennara og nemenda og þjónustu til þeirra. Í staðinn verður sett skilyrði um að kennsla fari fram í viðurkenndu skólahúsnæði sem uppfyllir viðeigandi lög og reglugerðir.
Einnig er lagt til að í skólum verði, með sérstöku leyfi ráðherra, heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Ráðherra geti veitt skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, bundið við tilteknar námsgreinar. Nánar verði svo kveðið á um útfærslu, svo sem hámarksupphæðir, greiðslufyrirkomulag og upplýsingaskyldur skólana í reglugerð.
Þá er gerð lagfæring á orðalagi lagaákvæðis í lögunum varðandi lóðir sem sveitarfélögum ber að afhenda undir framhaldsskóla án endurgjalds til að fyrirbyggja ágreining um gatnagerðargjöld.
Verði frumvarpið lögfest er ekki ástæða til að ætla að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
Þingskjal 1254 — 682. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008
(vinnustaðanám, námsgögn o.fl.).
(Lagt fyrir Alþingi á 141. löggjafarþingi 2012–2013.)
1. gr.
2. gr.

3. gr.
a. Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: efnisgjalds og gjalds fyrir rafrænt námsefni.
b. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heimilt er í tilraunaskyni með sérstöku leyfi ráðherra að innheimta gjald fyrir rafrænt námsefni sem framhaldsskólar ákveða og er veigamikill hluti af námsefni í námsáfanga á skráðri námsbraut viðkomandi nemenda eða í áfanga sem þeir hafa ákveðið að stunda sem valgrein.
c. Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 2. mgr. kemur: efnisgjalds og gjaldtöku fyrir rafrænt námsefni.
4. gr.
5. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í gildandi lögum er kveðið á um það í h-lið 1. mgr. 12. gr. að skilyrði fyrir viðurkenningu sjálfstætt starfandi framhaldsskóla lúti meðal annars að því að lagt skuli mat á starfsaðstöðu og aðbúnað kennara og nemenda og þjónustu við þá. Í reglugerð um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi, nr. 426/2010, er nánar mælt fyrir um málsmeðferð vegna viðurkenningar ráðherra. Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur fram að í viðurkenningu ráðherra á starfsemi einkaskóla felist m.a. viðurkenning á starfsaðstöðu og aðbúnaði skóla. Í c-lið 3. gr. reglugerðarinnar segir að í umsókn um viðurkenningu skuli koma fram lýsing á starfsaðstöðu, þ.e. húsnæði skóla og aðbúnaði, ásamt vottorðum frá yfirvöldum heilbrigðis- og brunamála. Í j-lið 5. gr. reglugerðarinnar segir að meðal skilyrða viðurkenningar sé að starfsaðstaða skólans sé fullnægjandi að mati ráðuneytisins.
Að mati ráðuneytisins er rétt að breyta h-lið 1. mgr. 12. gr. gildandi laga um framhaldsskóla um úttekt á skólahúsnæði í ljósi ákvæða um opinbert byggingareftirlit sem fram fer hjá öðrum stjórnvöldum, sbr. lög um mannvirki, nr. 160/2010, byggingarreglugerð, nr. 112/2012, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, reglugerð um hollustuhætti, nr. 941/ 2002, og eldvarnaeftirlit samkvæmt ákvæðum laga um brunavarnir, nr. 75/2000, og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum. Í framangreindum lögum og reglugerðum er kveðið á um fullnægjandi eftirlit með húsnæði þar sem atvinnustarfsemi fer fram og hefur ráðuneytið ekki haft sérstakt eftirlit með húsnæði einkaskóla á framhaldsskólastigi umfram það eftirlit sem opinberar eftirlitsstofnanir hafa með atvinnuhúsnæði. Samkvæmt tillögunni mun því úttekt á skólahúsnæði lúta ákvæðum laga og reglugerða þar að lútandi, þ.e. að byggingarfulltrúi hafi lokið úttekt samkvæmt ákvæðum gildandi byggingarreglugerðar og laga um mannvirki, heilbrigðiseftirlit hafi gert úttekt samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, og eldvarnaeftirlit, í samvinnu við byggingarfulltrúa, gengið úr skugga um að húsnæði uppfylli kröfur samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir, auk þess sem Vinnueftirlit ríkisins hafi eftir atvikum gert úttekt á vinnuaðstöðu í skóla.
Um 2. gr.
Í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla er fjallað nánar um starfsnám. Þar er að finna umfjöllun um tvíþætt inntak vinnustaðanáms. Um starfsnám á vinnustað eru notuð hugtökin vinnustaðanám eða starfsþjálfun. Gengið er út frá því að í vinnustaðanámi séu alla jafna gerðar meiri kröfur um markvissa, skipulagða fræðslu, leiðsögn og eftirlit en þegar um starfsþjálfun er að ræða. Í starfsþjálfun er lögð áhersla á að nemendur fái tækifæri til að þjálfa frekar verkþætti og verkferla sem þeir hafa þegar fengið kennslu í. Þeir eiga því að vera færir um að sýna meiri ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum en þegar um vinnustaðanám er að ræða.
Mælt er fyrir um að staðfestir náms- og starfsþjálfunarsamningar skuli liggja fyrir við upphaf vinnustaðanáms. Þá skulu vera í samningnum ákvæði um hvaða starfsgreina námið nær til, hverjir samningsaðilar eru, námstíma, fyrirkomulag náms, reynslutíma og kjör nemanda á námstíma. Einnig eru ákvæði um gildistíma samnings og um meðferð ágreinings og samningsslit. Loks er mælt fyrir um undirritun og staðfestingu samninga.
Tekið er út ákvæði í núverandi lagagrein um sérstakan ráðningarsamning og staðfestingu hans þar eð það virðist ekki vera hlutverk menntamálayfirvalda að kveða á um slík atriði.
Tekið er út ákvæði um að starfsgreinaráð haldi skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms, enda er gert ráð fyrir að nemaleyfisnefndir haldi sjálfar slíkar skrár. Þá er tekið út ákvæði sem heimilar ráðherra að fela skólum umsýslu og eftirlit með námssamningum þar sem óeðlilegt er talið að skólar séu bæði aðilar að samningum og hafi einnig umsýslu og eftirlit með höndum. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur frá árinu 1997 falið fræðslustofnunum iðngreina umsýslu með námssamningum og sveinsprófum í löggiltum iðngreinum og þykir sú umsýsla hafa tekist vel. Ekki er ráðgert að breyta því fyrirkomulagi.
Samkvæmt frumvarpinu skipar ráðherra nemaleyfisnefndir fyrir einstakar starfsgreinar eða starfsgreinaflokka þar sem við á að fengnum tilnefningum starfsgreinaráða, en fram hefur komið í umsögnum sumra starfsgreinaráða að þau sjái ekki fram á að skipaðar verði nemaleyfisnefndir fyrir þeirra starfsgreinar. Því virðist ekki þörf á að áskilja skipun slíkra nefnda fyrir allar starfsgreinar sem njóta fræðslu á framhaldsskólastigi. Skilgreint er hlutverk nemaleyfisnefnda og jafnframt gert ráð fyrir að nánar sé kveðið á um skilyrði fyrir störfum þeirra í reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Jafnframt er gert ráð fyrir að nemaleyfisnefndir setji sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir og að ráðherra setji nemaleyfisnefndum erindisbréf.
Í frumvarpinu er kveðið á um að ráðherra geti með þjónustusamningi falið fræðsluaðila umsýslu með gerð og skráningu samninga og eftirlit með þeim. Jafnframt megi fela fulltrúa á vegum slíks umsýsluaðila að staðfesta og eftir atvikum slíta námssamningi, enda sé þá gætt málsmeðferðar samkvæmt stjórnsýslulögum og nánari fyrirmæla í starfsþjálfunar- eða ráðningarsamningi. Verði ágreiningur um réttindi eða skyldur nemenda vegna framkvæmdar umsýsluaðila sker ráðherra úr.
Í frumvarpinu er heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað, að fenginni umsögn aðila vinnumarkaðar, samtaka skólastjórnenda og samtaka nemenda. Tekið er út ákvæði um heimildir skóla til þess að fela aðila utan hans umsýslu með starfsþjálfunarsamningum þar eð ekki er gert ráð fyrir að skóli hafi það hlutverk.
Um 3. gr.
Ekki er kveðið á um það í lögum hver beri ábyrgð á útgáfu námsefnis í framhaldsskólum né hver skuli greiða kostnað af þeirri útgáfu. Útgáfa efnis er í höndum einkaaðila. Stærstur hluti efnis er gefinn út af starfandi bókaforlögum og seldur í bókaverslunum og á skiptibókamörkuðum sem kaupa notaðar bækur af nemendum og selja með álagningu. Nokkuð er einnig um að nemendur kaupi til viðbótar útgefnum námsbókum margvíslegt efni sem þeim er gert að hafa tiltækt. Þar er um að ræða ítarefni, glósur og verkefni sem gefin eru út og seld nemendum í skólunum.
Rafrænt námsefni (námsefni aðgengilegt á netinu) hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms í framhaldsskólum þótt enn sé það í smáum stíl hér á landi. Öllum er ljóst að rafrænt námsefni hlýtur að leysa hefðbundna útgáfu af hólmi að talsverðum hluta í náinni framtíð. Útgefendur og áhugamenn um rafrænt námsefni hafa bent á að tryggja verði greiðslur fyrir rafræna efnið með öðrum hætti en almennt gerist um prentað námsefni. Útbreiðsla efnis á netinu sé með þeim hætti að alltaf verði auðvelt að nálgast það án þess að greiða fyrir með sama hætti og þegar prentaðar námsbækur er keyptar. Aldrei verði unnt að takmarka aðgang að rafrænu efni við þá eina sem greitt hafi fyrir það nema með mjög flóknum og dýrum aðferðum. Því verði að tryggja að þeir sem nota rafræna efnið greiði fyrir kostnað við útgáfu þess. Vandséð er að það náist öðruvísi en að skólum verði veitt heimild til að krefja nemendur um greiðslur fyrir aðgang að rafrænu efni sem þeim er gert að nýta í námi. Slík heimild er hvorki í núverandi lögum né reglugerð um gjaldtökuheimildir opinberra framhaldsskóla, nr. 614/2009.
Hér er lagt til að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Er því gert ráð fyrir að ráðherra veiti skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, bundið við tilteknar námsgreinar. Nánar verður svo kveðið á um útfærslu, svo sem hámarksupphæðir, greiðslufyrirkomulag og upplýsingaskyldu skóla, í reglugerð.
Um 4. gr.
Í kjölfar gildistöku laga nr. 92/2008 hefur komið upp ágreiningur á milli ríkisins og einstakra sveitarfélaga þess efnis hvort lóðir sem sveitarfélög leggja til fyrir byggingu framhaldsskólahúsnæðis skuli bera gatnagerðargjöld samkvæmt lögum nr. 153/2006. Af hálfu þeirra sveitarfélaga hefur verið vísað til framangreindrar orðalagsbreytingar í framhaldsskólalögum, þ.e. að nú er ekki tekið fram sérstaklega í 1. mgr. 47. gr. laga nr. 92/2008 að sveitarfélag skuli leggja til lóð „án kvaða eða gjalda“. Af frumvarpi því sem varð að lögum nr. 92/2008 og öðrum lögskýringargögnum verður ekki séð að vilji löggjafans hafi staðið til þess að gera þá breytingu að ríkið skyldi framvegis greiða gatnagerðargjöld af umræddum lóðum. Fyrir liggur staðfesting á slíkum skilningi í áliti sem ríkislögmaður veitti fjármála- og efnahagsráðuneyti 17. ágúst 2012. Með vísan til þessa er því lagt til að horfið verði aftur til þess orðalags sem var í 3. málsl. 4. mgr. 37. gr. laga nr. 80/1996.
Um 5. gr.
Fylgiskjal.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla,
nr. 92/2008 (vinnustaðanám, námsgögn o.fl.).