Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 641. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1270  —  641. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands,
nr. 33/1944, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar (ÁI, MSch, RM, SII, OH).


    1. gr. orðist svo:
    Á eftir 79. gr. stjórnarskrárinnar kemur ný grein er verður 80. gr., svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 79. gr. er heimilt að breyta stjórnarskránni með eftirfarandi hætti:
    Samþykki Alþingi frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá með minnst 2/ 3 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna til samþykktar eða synjunar en fellur að öðrum kosti niður. Skal þjóðaratkvæðagreiðslan fara fram í fyrsta lagi sex mánuðum og í síðasta lagi níu mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.Til þess að frumvarpið teljist samþykkt þarf það að hafa hlotið meiri hluta gildra atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þó minnst atkvæði 25 af hundraði allra kosningarbærra manna, og skal það staðfest af forseta lýðveldisins og telst þá gild stjórnarskipunarlög. Í heiti frumvarps til stjórnarskipunarlaga á þessum grundvelli skal koma fram tilvísun til greinar þessarar.
    Um þjóðaratkvæðagreiðsluna fer samkvæmt lögum.