Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 691. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1286  —  691. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um eflingu íslenska geitfjárstofnsins.

Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Ásmundur Einar Daðason.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra að beita sér fyrir eflingu íslenska geitfjárstofnsins og stuðla að vernd og viðhaldi hans í samræmi við niðurstöður skýrslu um verndaráætlun fyrir íslenska geitastofninn sem sérfræðingar við erfðalindasetur og auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands unnu fyrir erfðanefnd landbúnaðarins.

Greinargerð.


    Íslenski geitfjárstofninn er einstakur í sinni röð fyrir hreinleika sakir. Talið er að stofninn hafi borist til landsins með norskum landnámsmönnum og verið án innblöndunar í 1100 ár. Árið 2012 var stofninn 818 dýr í 76 hjörðum. 1
    Samkvæmt nýlegri rannsókn er erfðafjölbreytileiki stofnsins mjög lítill og skyldleikarækt mikil. Rannsóknin sýnir að meðalskyldleikarækt jókst úr 26% í 31,5% á árunum 1994–2009. Virk stofnstærð var metin 5–6 gripir og er hún með því allra lægsta sem finnst hjá búfjárstofnum.
    Til samanburðar má geta þess að stofnstærð þarf að vera 50–100 dýr til að koma í veg fyrir skyldleikaræktarhnignun. Virk stofnstærð þarf að vera 500–5.000 dýr svo að hægt sé að viðhalda erfðafjölbreytileika og aðlögunarhæfni. 2
    Í ljósi veikrar stöðu búgreinarinnar er lagt til að ráðherra beiti sér fyrir því að efla íslenska geitfjárstofninn á eftirfarandi hátt:
     –      Að tryggja að geitfjárbændur standi jafnfætis öðrum bændum í landinu gagnvart styrkjakerfi landbúnaðarins og þjónustu fagaðila.
     –      Að ná heildarstofnstærð íslenska geitfjárstofnsins upp fyrir þau alþjóðlegu lágmörk sem sett eru af FAO 3 fyrir stofna í útrýmingarhættu og tryggja ákveðna lágmarksstærð til lengri tíma.
     –      Að sporna við aukinni skyldleikarækt innan stofnsins.
     –      Að tryggja utanumhald um ætternisupplýsingar og nýtingu þeirra upplýsinga.
     –      Að auka þekkingu á erfðafræðilegri stöðu stofnsins.
     –      Að nýta stofninn markvisst í framleiðslu afurða.
    Brýnt er að stjórnvöld finni leiðir til að veita afurðatengda styrki til geitfjárbænda. Efla þarf greiðslur stofnverndarstyrks fyrir skýrslufærðar geitur þar til stofninn hefur náð lágmarksstærð. Fyrir tímabilið 2010–2011 voru greiddar 5.300 kr. með hverri skýrslufærðri geit til þeirra bænda sem þær halda en þó að hámarki 20. 4 Skjóta þarf styrkum stoðum undir sæðissöfnun, frystingu sæðis og sæðingar. Rannsaka þarf erfðafræðilega stöðu stofnsins og tryggja að ætterni allra gripa verði skráð nákvæmlega. Einnig er mikilvægt að vinna að vöruþróun og markaðssetningu geitaafurða. Íslenska geitin hefur sérstöðu hvað varðar tegundir ullar, en fínleiki hennar er í ætt við kasmírull. Afurðir geitarinnar hér á landi eru mjólk, kjöt, ull og skinn og njóta þær síaukinna vinsælda hér á landi. Nauðsynlegt er að leita leiða til að styðja við framleiðslu þessara vara og nýta markaðstækifæri þeirra enn frekar.
    Ísland er aðili að Ríósamþykktinni frá 1992 um varðveislu erfðaefnis. Einnig er í gildi reglugerð nr. 151/2005 um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði og starfar erfðanefnd landbúnaðarins eftir henni. Nefndin vinnur að því að varðveita og nýta erfðaauðlindir sem hafa verðmæti fyrir landbúnaðinn og menningarlegt gildi, en íslenska geitin fellur þar undir. 5 Af þessu má ljóst vera að ef ekki verður nú þegar brugðist við þeirri stöðu sem íslenski geitfjárstofninn er í er hætt við að það verði brátt um seinan.
Neðanmálsgrein: 1
1     agrogen.lbhi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6405, bls. 6.
Neðanmálsgrein: 2
2     agrogen.lbhi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6405, bls. 6.
Neðanmálsgrein: 3
3     FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna).
Neðanmálsgrein: 4
4     Upplýst af Bændasamtökum Íslands.
Neðanmálsgrein: 5
5     agrogen.lbhi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1831.