Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 547. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1287 — 547. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða nefndir, þ.m.t. ráð, verkefnisstjórnir og starfshópa, hefur ráðuneytið sett á stofn á tímabilinu 20. mars 2012 – 20. janúar 2013?
2. Hvað sitja margir í framangreindum nefndum? Hvert er hlutverk þeirra, er skipun þeirra samkvæmt heimild eða fyrirmælum í lögum, hver er skipunartíminn og hverjar þeirra hafa lokið störfum? Hver er launakostnaðurinn, sundurliðaður eftir nefndum?
3. Hvað hefur hver nefnd marga starfsmenn, hver er launakostnaður þeirra og eru einhverjir starfsmenn þeirra verktakar og ef svo er, hvað heita þeir og hvað hafa þeir fengið greitt úr ríkissjóði?
Óskað er eftir upplýsingum um það hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir, tilnefndir eða valdir með öðrum hætti til setu í þessum nefndum, ráðum, verkefnisstjórnum og starfshópum, hver hafi skipað eða eftir atvikum tilnefnt þá og hvort störfin eru launuð eða ólaunuð.
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.
Hvað launakostnað varðar skal það tekið fram að eingöngu tveir einstaklingar hafa fengið greidda þóknun eða laun eins og sjá má í töflunni en þær greiðslur eru ekki eingöngu fyrir setu í nefndum heldur einnig fyrir aðra vinnu fyrir ráðuneytið.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1287 — 547. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um nefndir, ráð,
verkefnisstjórnir og starfshópa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða nefndir, þ.m.t. ráð, verkefnisstjórnir og starfshópa, hefur ráðuneytið sett á stofn á tímabilinu 20. mars 2012 – 20. janúar 2013?
2. Hvað sitja margir í framangreindum nefndum? Hvert er hlutverk þeirra, er skipun þeirra samkvæmt heimild eða fyrirmælum í lögum, hver er skipunartíminn og hverjar þeirra hafa lokið störfum? Hver er launakostnaðurinn, sundurliðaður eftir nefndum?
3. Hvað hefur hver nefnd marga starfsmenn, hver er launakostnaður þeirra og eru einhverjir starfsmenn þeirra verktakar og ef svo er, hvað heita þeir og hvað hafa þeir fengið greitt úr ríkissjóði?
Óskað er eftir upplýsingum um það hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir, tilnefndir eða valdir með öðrum hætti til setu í þessum nefndum, ráðum, verkefnisstjórnum og starfshópum, hver hafi skipað eða eftir atvikum tilnefnt þá og hvort störfin eru launuð eða ólaunuð.
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.
Hvað launakostnað varðar skal það tekið fram að eingöngu tveir einstaklingar hafa fengið greidda þóknun eða laun eins og sjá má í töflunni en þær greiðslur eru ekki eingöngu fyrir setu í nefndum heldur einnig fyrir aðra vinnu fyrir ráðuneytið.
| Heiti nefndar/verkefnisstjórnar/starfshóps | Fjöldi | Nefndarmenn | Tilnefningaraðili | Þóknun, kr. |
| Stýrihópur um rafræna stjórnsýslu hjá ríki og sveitarfélögum – starfandi | ||||
|
Stýrihópurinn
er skipaður samkvæmt ákvörðun ráðherra
Stýrihópurinn var skipaður 7. júní 2012 |
5 | Þorleifur Gunnlaugsson, formaður | Innanríkisráðherra | 2.578.500 |
| Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri | Innanríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri | Innanríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Hlutverk:
Verkefni
stýrihópsins að vinna úr tillögum nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins varðandi rafræna stjórnsýslu og lýðræði. Stýrihópurinn hefur skilað áfangaskýrslu til ráðherra. |
||||
| Með stýrihópnum hafa starfað Halla Björg Baldursdóttir forstöðumaður, Árni Gíslason stjórnmálafræðinemi og Elín Rósa Finnbogadóttir fulltrúi – ólaunað. | ||||
| Starfshópur um aðgerðir gegn umferðarslysum – starfandi | ||||
| |
14 | Katrín Þórðardóttir | Innanríkisráðherra | Ólaunað |
| Auður Þóra Árnadóttir | Vegagerðin | Ólaunað | ||
| Einar Magnús Magnússon | Umferðarstofa | Ólaunað | ||
| Gunnar Geir Gunnarsson | Umferðarstofa | Ólaunað | ||
| Ágúst Mogensen | Rannsóknarnefnd umferðarslysa | Ólaunað | ||
| Gunnar Alexander Ólafsson | Velferðarráðuneytið | Ólaunað | ||
| Edda Björk Þórðardóttir | Embætti landlæknis | Ólaunað | ||
| Ólafur Guðmundsson | FÍB | Ólaunað | ||
| Eiríkur Hreinn Helgason | Lögregluskóli ríkisins | Ólaunað | ||
| Njáll Gunnlaugsson | Sniglarnir | Ólaunað | ||
| Fjóla Guðjónsdóttir | Samtök fjármálafyrirækja | Ólaunað | ||
| Árni Davíðsson | Landssamtök hjólreiðamanna | Ólaunað | ||
| Lilja Sveinsdóttir | ÖBÍ | Ólaunað | ||
| Guðlaugur H. Sigurjónsson | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Hlutverk:
Starfshópurinn er skipaður vegna þátttöku Íslands í átaki Sameinuðu þjóðanna „Áratugur aðgerða 2011– 2020 (e. Decade of Action)“ hér á landi. Markmið verkefnisins er að auka umferðaröryggi í heiminum og hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, yfirumsjón með því. Aðaláhersla WHO er að fækka umferðarslysum á alþjóðavísu. Mun innanríkisráðuneytið í samvinnu við velferðarráðuneytið beita sér fyrir aðgerðum hér á landi undir merkjum þessa merka verkefnis og vekja athygli á mikilvægi þess í hnattrænu samhengi. |
||||
| Með starfshópnum starfar Jóhannes Tómasson upplýsingafulltrúi – ólaunað. | ||||
| Heiti nefndar/verkefnisstjórnar/starfshóps | Fjöldi | Nefndarmenn | Tilnefningaraðili | Þóknun, kr. |
| Stýrihópur um fullnaðarhönnun fangelsisins á Hólmsheiði – starfandi | ||||
| Skipun ákvörðun ráðherra |
3 | Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur | Innanríkisráðherra | Ólaunað |
| Páll E. Winkel, fangelsismálastjóri | Innanríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Óskar Valdimarsson, forstjóri | Innanríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Hlutverk:
Stýrihópurinn skal vera ráðherra til ráðgjafar á hönnunar- og framkvæmdastigi byggingarinnar. Einnig hefur starfshópurinn yfirumsjón með verkefninu fyrir hönd ráðherra og hefur meðal annars í sínum verkahring að yfirfara samninga við hönnuði og verktaka áður en til undirritunar kemur og fylgjast reglubundið með því að gæða- og tímaáætlanir standist. |
||||
| Samráðsteymi vegna nýrra laga um útlendinga – störfum lokið | ||||
| Innanríkisráðherra ákvað að skipa samráðsteymið í framhaldi af skýrslu nefndar um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. | 7 | Erna Kristín Blöndal, lögfræðingur og formaður | Innaríkisráðherra | 3.000.000 |
| Svanhildur Þorbjörnsdóttir, lögfræðingur | Innaríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur | Innaríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Hinrika Sandra Ingimundardóttir, lögfræðingur | Innaríkisráðherra | Ólaunað | ||
| Þorsteinn Gunnarsson, forstöðumaður | Ólaunað | |||
| Bjarnheiður Gautadóttir, lögfræðingur, velferðarráðuneyti | Ólaunað | |||
| Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður, Vinnumálastofnun | Ólaunað | |||
| Hlutverk: Samráðsteyminu er gert að vinna að gerð lagafrumvarps. Samhliða því er formanni samráðsteymisins falið að semja drög að frumvarpi til nýrra laga um útlendinga sem taki bæði til dvalar- og atvinnuleyfa og byggjast að öðru leyti á tillögum nefndar um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Samhliða vinnu við frumvarpið verði samdar ítarlegar athugasemdir með frumvarpinu og drög að reglugerð/um auk leiðbeinandi verklagsreglna. | ||||
| Starfshópur um endurmenntun atvinnubílstjóra – starfandi | ||||
| Innanríkisráðherra ákvað að skipa starfshópinn eftir fund með hagsmunaaðilum. |
9 | Kartrín Þórðardóttir, lögfræðingur og formaður | Innanríkisráðherra | Ólaunað |
| Daníel Reynisson, lögfræðingur | Umferðarstofa | Ólaunað | ||
| Holger Torp, verkefnisstjóri | Umferðarstofa | Ólaunað | ||
| Árni Jóhannsson, forstöðumaður hjá SI | Samtök atvinnulífsins | Ólaunað | ||
| Lísbet Einarsdóttir, forstöðumaður hjá SVÞ | Samtök atvinnulífsins | Ólaunað | ||
| Gunnar Valur Sveinsson, verkefnisstjóri hjá SAF | Samtök atvinnulífsins | Ólaunað | ||
| Már Guðnason, formaður Hefur fengið greiddan aksturskostnað samkvæmt reglugerð fjármála- og efnahagsráðuneytisins að upphæð 235.000 kr. |
ASÍ | Ólaunað | ||
| Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins | ASÍ | Ólaunað | ||
| Tryggvi Marteinsson, þjónustufulltrúi Eflingar | ASÍ | Ólaunað | ||
| Hlutverk: Starfshópnum er ætlað að skila tillögum að reglum um hvernig hátta skuli endurmenntun sem atvinnubílstjórar þurfa að gangast undir á fimm ára fresti. | ||||
| Heiti nefndar/verkefnisstjórnar/starfshóps | Fjöldi | Nefndarmenn | Tilnefningaraðili | Þóknun, kr. |
| Nefnd um endurskoðun vegalaga – starfandi | ||||
| Skipun ákvörðun ráðherra |
6 | Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri og formaður | Innanríkisráðherra | Ólaunað |
| Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Guðjón Bragason, sviðsstjóri | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Eyþóra Hjartardóttir, lögfræðingur | Vegagerðin | Ólaunað | ||
| Stefán Thors, forstjóri | Skipulagsstofnun | Ólaunað | ||
| Sigríður Auður Arnardóttir, settur ráðuneytisstjóri | Umhverfis- og auðlindaráðuneyti | Ólaunað | ||
| Hlutverk:
Nefndin hefur það hlutverk að fara yfir gildandi vegalög og taka einnig til skoðunar lögin um samgönguáætlun, m.a. með það í huga að auðvelda ákvarðanatöku um lagningu vega þannig að öll sjónarmið komi til álita. Einnig er nefndinni falið að fara yfir framkvæmd vegalaga er varðar flokkun vega, en yfirfærsla á tilteknum vegum til sveitarfélaga hefur ekki komist að fullu til framkvæmda þar sem ágreiningur er uppi um með hvaða hætti það skuli gert. Nefndin komi með tillögur að úrlausnum hvað þetta varðar til ráðherra. |
||||
| Með nefndinni starfa Björn Freyr Björnsson, lögfræðingur í innanríkisráðuneyti, og Rúnar Guðjónsson, viðskiptafræðingur í innanríkisráðuneyti. | ||||
| Kjarnahópur – starfandi | ||||
| 10 | Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri og formaður | Innanríksiráðherra | Ólaunað | |
| Arnór Guðmundsson | Mennta- og menningarmálaráðuneyti | Ólaunað | ||
| Angantýr Einarsson | Fjármála- og efnahagsráðuneyti | Ólaunað | ||
| Valgerður Gunnarsdóttir | Velferðarráðuneyti | Ólaunað | ||
| Þórir Hrafnsson | Atvinnuvega- og nýsköpunarrn. | Ólaunað | ||
| Urður Gunnarsdóttir | Utanríkisráðuneyti | Ólaunað | ||
| Björn Sigurðsson | Forsætisráðuneyti | Ólaunað | ||
| Kjartan Ingvarsson | Umhverfis- og auðlindaráðuneyti | Ólaunað | ||
| Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri | Samband íslenskra sveitarfélaga | Ólaunað | ||
| Hlutverk: Kjarnahópnum er falið að vinna að mótun tillögu um stefnu um upplýsingasamfélagið 2013– 2017. Sú stefna mun leysa af hólmi stefnuna Netríkið Ísland, 2008–2012. Viðfangsefni hópsins er að móta tillögur um framtíðarsýn, markmið og verkefni hinnar nýju stefnu. Afurðir stefnumótunarvinnunnar verða m.a. tillögur um: * Stefnu með mælanlegum markmiðum. * Framkvæmdaáætlun með forgangsröðuðum, tímasettum verkefnum. * Framkvæmdaáætlunin verður nýtt sem verkfæri í skipulagningu og fjárlagagerð. |
||||
| Heiti nefndar/verkefnisstjórnar/starfshóps | Fjöldi | Nefndarmenn | Tilnefningaraðili | Þóknun, kr. |
| Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið – starfandi | ||||
| Um er að ræða endurnýjun á skipun verkefnastjórnarinnar en hún hefur verið starfandi um alllangt skeið. | 8 | Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri og formaður | Innanríksiráðherra | Ólaunað |
| Arnór Guðmundsson | Mennta- og menningarmálaráðuneyti | Ólaunað | ||
| Angantýr Einarsson | Fjármála- og efnahagsráðuneyti | Ólaunað | ||
| Valgerður Gunnarsdóttir | Velferðarráðuneyti | Ólaunað | ||
| Þórir Hrafnsson | Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti | Ólaunað | ||
| Urður Gunnarsdóttir | Utanríkisráðuneyti | Ólaunað | ||
| Björn Sigurðsson | Forsætisráðuneytið | Ólaunað | ||
| Kjartan Ingvarsson | Umhverfis- og auðlindaráðuneyti | Ólaunað | ||
| Hlutverk:
Helstu verkefni verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið eru eftirfarandi: *Að taka þátt mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið sem tekur gildi árið 2013. *Að fylgja stefnunni eftir á framkvæmdastig þ.e. hrinda henni í framkvæmd og vinna að reglubundinni endurskoðun hennar. *Að stuðla að því að íslensk stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur hagnýti sér kosti sem leiða af örri framþróun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. * Að vera vettvangur fyrir og leiða samstarf ráðuneytanna á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. * Að leita eftir samstarfi við aðila utan ríkiskerfisins, einkum sveitarfélög, fyrirtæki og félagasamtök, um málefni upplýsingasamfélagsins. * Að fylgja eftir sérstökum áherslum ríkisstjórnar á þessu sviði. * Að vera ráðgefandi fyrir ríkisstjórn um fjárveitingar til þessara mála. |
||||