Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 658. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1372 — 658. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Er rekjanleiki fyrir hendi í einhverjum þeirra tölvukerfa sem ráðuneytið og heilbrigðisstofnanir nota og er haldin „log“-skrá hjá þessum aðilum?
2. Hvernig er haldið utan um sögu aðgerða notenda í kerfunum, t.d. um það hvað notendur skrá, breyta eða skoða?
Í Stjórnarráðinu, þ.m.t. velferðarráðuneytinu, eru margs konar tölvukerfi, svo sem málaskrárkerfi, skjalakerfi og ýmiss konar gagnagrunnar. Til staðar eru eftirlitskerfi sem nýtast þegar skoða þarf rekjanleika upplýsinga sem eru í tölvukerfunum. Af öryggisástæðum verður ekki tilgreint með hvaða hætti þau starfa.
Flestallar heilbrigðisstofnanir nota nær eingöngu sjúkraskrárkerfið Sögu við utanumhald á rafrænni sjúkraskrá. Í Sögu-kerfinu eru allar uppflettingar og skráningar í rafræna sjúkraskrá skráðar í gagnagrunn. Við uppflettingu liggur fyrir hvaða starfsmenn fletta upp hvaða upplýsingum um skjólstæðinga sína eða aðra sjúklinga, á hvaða tíma og frá hvaða tölvu. Við skráningu er haldið utan um það hver skráir hvað, hvar og hvenær. Eftir að skráning hefur verið staðfest eru allar breytingar rekjanlegar hvort sem upplýsingum er bætt við eða þeim eytt út.
Á þeim stofnunum sem nota fleiri upplýsingakerfi en Sögu til að halda utan um rafræn sjúkraskrárgögn, eins og t.d. Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri, eiga svipaðar lýsingar við um þau flest að mestu eða öllu leyti.
Á flestum heilbrigðisstofnunum eru starfandi eftirlitsnefndir sem fara yfir það hver flettir upp hverjum og eru veittar áminningar samkvæmt ákvörðun stjórnenda þegar við á. Aukið eftirlit, þ.e. til viðbótar við hefðbundið eftirlit, er haft með uppflettingum þegar þjóðþekktir einstaklingar fá þjónustu viðkomandi stofnunar og þegar slys eða válegir atburðir eiga sér stað í samfélaginu. Auk þess geta sjúklingar óskað eftir að fá útprentun yfir aðila sem opnað hafa sjúkraskrá viðkomandi.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1372 — 658. mál.
Svar
velferðarráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um rekjanleika
í tölvukerfum ráðuneytisins og heilbrigðisstofnana.