Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 646. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1374  —  646. mál.




Svar



fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndal um útgjöld ríkissjóðs.


     1.      Hver voru heildarútgjöld ríkissjóðs samkvæmt a) fjárlögum, b) fjáraukalögum fyrir árin 2009, 2010 og 2011? Voru allir liðir í fjáraukalögum ófyrirséðir þegar fjárlög viðkomandi árs voru samþykkt?
     2.      Hver voru endanleg heildarútgjöld ríkissjóðs samkvæmt ríkisreikningi fyrir árin 2009, 2010 og 2011?
    Í töflu 1 eru tilgreind heildarútgjöld ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum, fjáraukalögum og ríkisreikningi árin 2009, 2010 og 2011.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Lög nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, afmarka hlutverk fjáraukalaga við útgjöld vegna ófyrirséðra atvika, kjarasamninga eða nýrra laga sem valda því að grípa þarf til sérstakra fjárráðstafana sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum ársins. Að öðru leyti ber samkvæmt lögunum að vísa málum til ákvörðunar Alþingis í tengslum við afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár. Þrátt fyrir þessa afmörkun á hlutverki fjáraukalaga hefur Alþingi alla tíð frá því að fjárreiðulögin voru sett engu að síður veitt þar fé til verkefna sem tæpast hafa geta talist ófyrirséð eða að þau hafa falið í sér ákvarðanir um nýja eða aukna starfsemi. Dæmi um slík tilvik eru aukafjárveitingar svo hefja megi verkefni strax í stað þess að bíða til næsta árs og aukafjárveitingar til að leysa úr erfiðri rekstrarstöðu. Þrátt fyrir það eru veigamestu útgjaldaliðirnir í fjáraukalögum þeirra þriggja tilteknu ára sem spurningin tekur til engu að síður liðir þar sem útgjöld voru ófyrirséð eða óviss við afgreiðslu fjárlaga, m.a. vegna áhrifa af efnahagsþrengingum í kjölfar hruns bankakerfisins haustið 2008. Má þar nefna útgjöld á liðum fyrir lífeyrisskuldbindingar, afskriftir skattkrafna og ríkisábyrgðir.

     3.      Hvaða einstakir gjaldaliðir eru hærri í ríkisreikningi 2009, 2010 og 2011 en í fjárlögum og fjáraukalögum fyrir viðkomandi ár, þ.e. árin 2009, 2010 og 2011? Ekki er óskað eftir upplýsingum um gjaldaliði þar sem munurinn er undir 10 millj. kr. hvert ár.
    Í töflum 2, 3 og 4 eru tilgreindir gjaldaliðir með útgjöld í ríkisreikningi meira en 10 millj. kr. umfram fjárheimildir í fjárlögum og fjáraukalögum á árunum 2009, 2010 og 2011. Samtals námu umframgjöld á þessum liðum 40,5 milljörðum kr. árið 2009, 56,5 milljörðum kr. árið 2010 og 66,8 milljörðum kr. árið 2011. Vert er að vekja athygli á því að verulega stór hluti þessara umframgjalda skýrist af óreglulegum og ófyrirséðum útgjöldum sem eðli máls samkvæmt koma í mörgum tilvikum ekki við sögu fyrir fram við afgreiðslu Alþingis á fjárheimildum fjárlaga og fjáraukalaga heldur byggjast á uppgjöri hjá reikningshaldsaðilum um hálfu ári síðar. Er þar einkum um að ræða afskriftir skattkrafna, niðurfærslur á eignarhlutum og skuldbindingar vegna ríkisábyrgða. Má sem dæmi nefna 17,6 milljarða kr. afskriftir skattkrafna umfram áætlun í ríkisreikningi 2009, gjaldfærslu á 33 milljarða kr. eiginfjárframlagi ríkissjóðs til Íbúðalánasjóðs í ríkisreikningi 2010 og gjaldfærslu á 19,2 milljarða kr. framlagi til Landsbankans vegna ábyrgðar á innstæðum í SpKef-sparisjóði í ríkisreikningi 2011. Slíkar áfallnar skuldbindingar eru yfirleitt óreglulegar og einskiptis gjaldfærslur en geta þó vissulega haft mikla þýðingu fyrir fjárhagsstöðu ríkissjóðs til lengri tíma litið. Þegar slíkir liðir eru frátaldir nema umframgjöld liða sem voru meira en 10 millj. kr. umfram fjárheimildir fjárlaga og fjáraukalaga samtals 25,1 milljarði kr. árið 2009, 13,6 milljörðum kr. árið 2010 og 21 milljarði kr. árið 2011.
    Í þessu sambandi er einnig vert að árétta að fjárheimildir einstakra gjaldaliða eru ekki einvörðungu ákvarðaðar í fjárlögum og fjáraukalögum heldur líka í yfirfærðum fjárheimildastöðum samkvæmt lokafjárlögum næstliðins árs, millifærðum fjárheimildum innan fjárlagaársins og fjárheimildum í lokafjárlögum ársins vegna frávika í mörkuðum ríkistekjum. Líta þarf til allra þessara þátta til að fá heildarmynd af þeim fjárheimildum sem eru til ráðstöfunar á viðkomandi fjárlagaári. Eigi ríkisaðili ónotaða fjárheimild frá fyrra ári eða ef fjárheimild er millifærð til hans innan ársins eða ef fjárheimild hans er hækkuð í lokafjárlögum vegna ríkistekjufrávika þá kunna útgjöld hans að vera innan heildarheimilda þótt þau séu umfram fjárheimildir í fjárlögum og fjáraukalögum. Á sama hátt kunna útgjöld gjaldaliðar að vera umfram heildarheimildir ársins þótt þau séu innan fjárheimilda í fjárlögum og fjáraukalögum hafi halli verið fluttur frá fyrra ári eða ef fjárheimild er millifærð frá liðnum innan ársins eða ef fjárheimild hans er lækkuð í lokafjárlögum vegna ríkistekjufrávika. Til að fá rétta mynd af því hvort útgjöld hafi verið innan fjárheimilda þarf að bera þau saman við heildarheimildir. Auk afkomu gagnvart fjárlögum og fjáraukalögum er því í töflunum einnig tilgreind afkoma gagnvart heildarheimildum.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     4.      Hver ber ábyrgð á þeim útgjöldum í ríkisreikningi sem eru umfram fjárlög eða fjáraukalög, sbr. 41. gr. stjórnarskrárinnar?
    Samkvæmt 41. gr. stjórnarskrárinnar má ekkert gjald greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum. Skv. 3. gr. forsetaúrskurðar nr. 100/2012, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, fer fjármála- og efnahagsráðuneyti með fjárreiður ríkisins og fjármál að því marki sem þau eru ekki falin öðrum aðilum. Skv. 1. gr. laga nr. 4/1963, um ráðherraábyrgð, bera ráðherrar ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum eftir því sem fyrir er mælt í stjórnarskrá og lögunum og skv. 8. gr. þeirra varðar það ráðherra ábyrgð eftir lögunum ef hann leitar eigi samþykkis Alþingis þegar skylt er samkvæmt stjórnarskránni eða lætur viðgangast að framkvæmt sé nokkuð það sem fer í bága við stjórnarskrána eða lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það sem þar er fyrirskipað eða veldur því að framkvæmd þess farist fyrir. Skv. 49. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, sbr. einnig 6. gr. reglugerðar nr. 1061/2004, um framkvæmd fjárlaga og ábyrgð á fjárreiðum ríkisstofnana í A-hluta, bera forstöðumenn og stjórnir ríkisaðila ábyrgð á því að fjárhagsráðstafanir þeirra séu í samræmi við heimildir. Skv. 4. gr. reglugerðarinnar hefur fjármálaráðuneytið almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga og fylgist með því að heildarútgjöld stofnana séu í samræmi við fjárheimildir. Ráðuneytið skal fylgjast með því hvernig eftirliti annarra ráðuneyta er háttað með fjárreiðum stofnana sem undir þau heyra. Í því skyni getur það kallað eftir upplýsingum frá einstökum ráðuneytum um fjárhagsafkomu stofnana og fyrirhugaðar aðgerðir til að framfylgja áformum fjárlaga. Skv. 5. gr. reglugerðarinnar fer hvert ráðuneyti með yfirstjórn þeirra mála sem undir það heyra samkvæmt nánari fyrirmælum í lögum og hefur eftirlit með fjárreiðum stofnana sem undir það heyrir. Skv. 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, ber forstöðumaður ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðunandi getur ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.