Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 19. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 19 — 19. mál.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp skipaðan fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Alþingi sem fái það hlutverk að gera þriggja ára áætlun um eflingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu út frá endurskoðaðri ríkisfjármálaáætlun. Áætlunin verði lögð fyrir þingið eigi síðar en 1. október næstkomandi og höfð til hliðsjónar við vinnslu fjárlaga á komandi árum.
Fyrir liggur að ný ríkisstjórn tekur við góðu búi í ríkisfjármálum. Það er staðfest í greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins þar sem fram kemur að tekjur ársins teljist á áætlun, og ný hagspá OECD staðfestir efnahagsbatann á Íslandi. Hagvaxtarspáin fyrir 2013 er 1,9% og 2,6% 2014. Spáð er atvinnuleysi undir 5% á næsta ári og jákvæðum heildarjöfnuði. Verðbólga fer áfram lækkandi. Áhugavert er líka að skoða hið alþjóðlega samhengi. Meðaltalshagvöxtur á Evrusvæðinu milli ára er -0,1% en á Íslandi er hann 0,8%. Aftur á móti er hækkun hagvaxtar frá fyrri ársfjórðungi sú næstmesta frá hruni eða 4,6%. Hinn góði árangur í ríkisfjármálum sem ný ríkisstjórn nýtur nú er líka staðfestur í nýjasta yfirlitsriti AGS um ríkisfjármál frá því í apríl á þessu ári.
Skynsamlegast í þessari stöðu er að halda óbreyttri stefnu en skoða nýja möguleika á tekjuöflun, m.a. með því að þróa áfram skattlagningu á auðlindarentu. Þar þarf að þróa áfram hið sérstaka veiðigjald en einnig skoða gjaldtöku af annari auðlindanýtingu, svo sem nýtingu orkuauðlindarinnar. Þá má skoða hugmyndir um aukna skattlagningu á fjármálafyrirtæki.
Ef miðað er við að hagvaxtarspár gangi eftir er ekki óvarlegt að ætla að allnokkurt svigrúm myndist í ríkisrekstri til að byggja upp þær samfélagsstoðir sem gengið hefur verið á í kreppu undanfarinna ára. Lagt er til að stjórnvöld geri áætlanir um hvert það svigrúm getur orðið á næstu fjórum árum og leggi jafnframt fram forgangsröðun um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu.
Þó að engum sé dulið að staða ríkisfjármála er enn þröng og gæta þurfi aðhalds á næstu árum þá mun vera hægt að skapa svigrúm í ríkisrekstri til jafnrar og hægrar uppbyggingar á innviðum samfélagsins. Fyrir því eru margháttuð rök, ekki síst þau að rannsóknir innlendra og erlendra fræðimanna sýna að of mikill niðurskurður á hinum samfélagslegu innviðum getur dýpkað og framlengt efnahagskreppuna. Athyglisvert er til að mynda að skoða afleiðingar niðurskurðar á velferðarkerfinu í Suðaustur-Asíu í upphafi tíunda áratugar 20. aldar þegar þar gekk yfir kreppa í kjölfar offjárfestingar og efnahagslegrar þenslu. Þar má sjá bein tengsl milli versnandi heilsufars viðkomandi þjóða og niðurskurðar í velferðar- og heilbrigðiskerfum og eru þar nefnd dæmi af Suður-Kóreu, Tælandi og Indónesíu. Á sama tíma gekk Malasía í gegnum sömu kreppu en tryggði velferðar- og heilbrigðiskerfi sitt með þeim árangri að heilsufar íbúa hélst stöðugt og fátækt jókst aðeins um brotabrot af því sem gerðist í hinum löndunum. Sambærilegar rannsóknir hafa verið gerðar víðar, t.d. í Austur-Evrópu, og almennt er farið að viðurkenna nauðsyn þess að gæta sérstaklega að velferðarkerfum á krepputímum.
Sífellt fleiri fræðimenn benda einnig á að erfiðleikar á Evrusvæðinu eigi rætur sínar að rekja til of harkalegs niðurskurðar og þá sérstaklega í velferðamálum. Þannig er Bretland oft nefnt sem dæmi þar sem niðurskurður er að leiða hagkerfið í gegnum þrefalda efnahagsdýfu (e. triple dip recession). Gagnstætt leið Breta hefur bandaríski nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, Paul Krugman, talið að sú forgansröðun í þágu velferðar sem átti sér stað á Íslandi í gegnum kreppuna hafi reynst árangursrík og skýri að hluta til hvers vegna landið komst með skjótvirkum hætti undan ofvöxnu hruni. Því er nauðsynlegt að áfram sé haldið á þessari braut og ef með þarf með aukinni tekjuöflun ríkissjóðs.
Félagslegar afleiðingar of mikils niðurskurðar eru líka sérstakt áhyggjuefni en í nýlegri skýrslu OECD um jöfnuð kemur fram að vegna niðurskurðar í fjölmörgum ríkjum hafi kjör þeirra er standa höllum fæti í samfélaginu og tekjulágra skerst mun meira hlutfallslega en þeirra sem mestar tekjur hafa. Eina ríkið sem er undantekning í þessum efnum er Ísland þar sem stjórnvöld tryggðu að auknar álögur færu á tekjuháa hópa til að hlífa þeim tekjulægri, sem og hlífðu velferðarútgjöldum betur en flest önnur ríki. Stórauknar vaxtabætur, upp á 18 milljarða kr., tryggðu m.a. aukinn kaupmátt tekjulægri hópa en stór hluti bótanna var tekjutengdur.
Ljóst má vera að mörg verkefni eru brýn á þessum sviðum og því þarf að leggja vinnu í að greina hvar þörfin er mest og hvernig eigi að forgangsraða. Þegar litið er á menntakerfið er til að mynda ljóst að íslenska háskólakerfið er vanfjármagnað ef það er borið saman við önnur OECD-ríki en þar er Ísland undir meðaltali þegar kemur að fjármögnun háskólastigsins. Við stofnun aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands var hafin undirbúningsvinna við að greina þessar tölur þar sem bæði er um að ræða opinbera fjármögnun og einkafjármögnun og gera áætlun um hvernig Ísland geti komist upp að hlið annarra Norðurlanda fyrir árið 2020. Þegar íslenskir framhaldsskólar eru bornir saman við framhaldsskóla í öðrum OECD-ríkjum kemur fram að þar er Ísland nálægt meðaltali í kostnaði. Hins vegar er ljóst að aukin krafa um framhaldsskólanám í heimabyggð í stóru og strjálbýlu landi mun hafa og hefur haft aukinn kostnað í för með sér, sem og aukin áhersla á verk- og starfsnám sem ljóst er að þarf að efla á Íslandi og beina fleirum í. Hlutfall þeirra sem sækja verk- og starfsnám að loknu grunnskólanámi er óvenju lágt og gæti verið ein skýringin á brottfalli úr framhaldsskólum. Þriðji liðurinn sem má nefna í tengslum við eflingu menntakerfisins eru kjör kennara en þar sýna tölur að íslenskir kennarar eru fremur aftarlega á merinni miðað við starfssystkin þeirra í öðrum OECD-löndum. Að lokum má nefna þær hugmyndir sem hafa verið uppi og voru settar fram í frumvarpi til laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna um að hluti höfuðstóls námslána falli niður ef nemendur ljúka háskólanámi á tilskildum tíma og kerfið byggist þannig upp á blöndu styrkja og lána.
Hvað varðar heilbrigðisþjónustuna þá er ljóst að þar eru mörg úrlausnarefni sem snúa m.a. að kjörum heilbrigðisstétta en síðasta ríkisstjórn setti af stað sérstakt jafnlaunaátak, m.a. til að bæta kjör kvennastétta innan heilbrigðisþjónustunnar. Ljóst má vera að ef uppfylla á þá sýn sem birtist í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar um að íslenska heilbrigðiskerfið verði samkeppnishæft hljóta bætt kjör heilbrigðisstétta að vera forgangsatriði. Annað atriði sem má nefna er tækjakostur Landspítala en í fjárlögum fyrir árið 2013 var gert stórátak í að bæta tækjakost með sérstöku aukaframlagi upp á 600 milljónir kr. þannig að heildarframlög fóru yfir milljarð kr. Í því samhengi þarf líka að skoða tækjakost Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Þá má nefna stóreflingu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar í kerfinu sem mun væntanlega skapa langtímahagræðingu í heilbrigðisþjónustunni með því að draga úr álagi á sérfræðiþjónustu og sjúkrahús. Að lokum má nefna byggingu nýs Landspítala sem ætti að vera forgangsverkefni til að tryggja hagkvæmari og betri rekstur sjúkrahússins til lengri tíma og bæta aðstæður starfsfólks en spítalinn er rekinn á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar kemur að velferðarkerfinu ber hæst fyrirkomulag almannatrygginga sem nauðsynlegt er að breyta til lengri tíma og tryggja þar með hag öryrkja og aldraðra til langs tíma. Enn fremur húsnæðiskerfi landsmanna en ljóst er að uppsafnaðan vanda Íbúðalánasjóðs þarf að leysa samhliða því að fyrirkomulag húsnæðismála verði endurskoðað í því skyni að það verði sem auðveldast fyrir almenning í landinu að tryggja sér þak yfir höfuðið.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 19 — 19. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um þriggja ára áætlun um eflingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu.
Flm.: Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Bjarkey Gunnarsdóttir,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon,
Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónasson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp skipaðan fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Alþingi sem fái það hlutverk að gera þriggja ára áætlun um eflingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu út frá endurskoðaðri ríkisfjármálaáætlun. Áætlunin verði lögð fyrir þingið eigi síðar en 1. október næstkomandi og höfð til hliðsjónar við vinnslu fjárlaga á komandi árum.
Greinargerð.