Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 23. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 31  —  23. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um framtíð Fisktækniskóla Íslands.

Frá Páli Vali Björnssyni.


          1.      Hver er stefna ráðherra í málefnum Fisktækniskóla Íslands?
          2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að skólinn öðlist fastan sess sem sjálfstæður skóli á framhaldsskólastigi og að veitt verði framlög á fjárlögum til hans eins og annarra skóla?