Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 53. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 53  —  53. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um innheimtu gjalda fyrir þjónustu heilbrigðisstofnana.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.


     1.      Hver er fjárhæð óinnheimtra og óinnheimtanlegra gjalda fyrir þjónustu heilbrigðisstofnana árin 2011–2013, skipt á einstök ár, stofnanir og tegund gjalda?
     2.      Hversu háar fjárhæðir eru afskrifaðar ár hvert af álögðum gjöldum fyrir þjónustu heilbrigðisstofnana?
     3.      Hversu gamlar eru þessar kröfur að jafnaði þegar þær eru afskrifaðar?


Skriflegt svar óskast.