Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 54. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 54  —  54. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um viðbrögð við ritinu Hreint loft – betri heilsa.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Hyggst ráðherra bregðast við þeim tillögum sem birtast í ritinu Hreint loft – betri heilsa sem gefið var út af umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti í apríl 2013? Ef svo er, hvaða aðgerðir verður ráðist í og hvernig verður starfi stýrihópsins sem vann ritið fylgt eftir?