Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 63. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 63 — 63. mál.
1. Hvert var tilefni skuldabréfaútgáfu sem getið er í sáttargerð Ríkisútvarpsins ohf. við Fjármálaeftirlitið 16. júlí sl.?
2. Er það meðal lögbundinna verkefna Ríkisútvarpsins ohf. að stunda skuldabréfaútgáfu?
3. Hverjir eru þeir fruminnherjar, tímabundnir innherjar og aðilar fjárhagslega tengdir innherjum sem getið er í sáttargerðinni og láðist að veita Fjármálaeftirlitinu upplýsingar um? Ef þeir eru lykilstarfsmenn Ríkisútvarpsins er þá hlutverk þeirra sem fruminnherjar, tímabundnir innherjar eða aðilar tengdir innherjum hluti af launakjörum viðkomandi og þá með hvaða hætti?
4. Hyggst ráðherra gera athugasemd við þá starfshætti stofnunarinnar sem leiddu til þess að hún þurfti að inna af hendi sektargreiðslu vegna þessa máls?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 63 — 63. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um skuldabréfaútgáfu Ríkisútvarpsins ohf.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.