Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 105. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 108  —  105. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um úttekt á stöðu viðræðna við Evrópusambandið.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Er formleg vinna hafin við úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun mála innan sambandsins, sbr. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, og ef svo er, hver eða hverjir koma að þeirri vinnu?
     2.      Hvenær áætlar ráðherra að unnt verði að kynna niðurstöður úttektarinnar fyrir Alþingi?


Skriflegt svar óskast.