Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 116. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 119  —  116. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um tvöfalt lögheimili.

Frá Þorsteini Magnússyni.


    Hyggst ráðherra beita sér fyrir lagabreytingum sem fela í sér að foreldrum sem fara sameiginlega með forsjá barns en búa ekki saman verði heimilað að skrá lögheimili barnsins hjá báðum foreldrum?


Skriflegt svar óskast.