Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 124. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 133  —  124. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um nám erlendis.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hve margir íslenskir ríkisborgarar sem stunda læknisfræðinám erlendis þiggja lán frá LÍN, flokkað eftir löndum?
     2.      Hve hátt hlutfall af ríkisframlagi til LÍN skýrist af lánum til einstaklinga sem stunda nám erlendis?
     3.      Telur ráðherra að skilyrða eigi lán einstaklinga sem stunda nám erlendis þannig að komi þeir ekki heim til starfa að námi loknu hækki vextir á lánum þeirra til samræmis við almenna markaðsvexti?


Skriflegt svar óskast.