Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 142. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 159  —  142. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um Atvinnuleysistryggingasjóð og félagslega aðstoð.

Frá Bjarkeyju Gunnarsdóttur.


     1.      Hver eru áhrif þess á Atvinnuleysistryggingasjóð að draga úr framlögum sem voru ætluð til þess að greiða fyrir aðgangi fólks að framhaldsskólum og til þróunar fjölbreyttara námsframboðs?
     2.      Hvaða áhrif hefur þetta á sveitarfélögin vegna félagslegrar aðstoðar sem þau veita?


Skriflegt svar óskast.