Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 143. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 161 — 143. mál.
Með bréfi forseta Alþingis, dagsettu 11. júní 2013, sendi hann stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ábendingu Ríkisendurskoðunar um þjónustusamninga við öldrunarheimili ( www.rikisendurskodun.is/fileadmin/media/skyrslur/Thjonustusamningar_vid_oldrunarhei mili.pdf) til umfjöllunar í samræmi við ákvæði 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. þingskapa. Framsögu
maður málsins er Willum Þór Þórsson.
Nefndin fékk á sinn fund Svein Arason ríkisendurskoðanda, Kristínu Kalmansdóttur og Bjarkeyju Rut Gunnlaugsdóttur frá Ríkisendurskoðun og Bolla Þór Bollason og Bryndísi Þorvaldsdóttur frá velferðarráðuneyti.
Árið 2011 gerði Ríkisendurskoðun úttekt á skuldbindandi samningum velferðarráðuneytis. Í ljós kom að þrátt fyrir að öldrunarheimili væru fjölmörg hafði ráðuneytið aðeins gert þjónustusamninga við örfá þeirra og voru sumir þeirra auk þess útrunnir. Í byrjun árs 2013 var málinu fylgt eftir og ný úttekt gerð á stöðu þjónustusamninga ríkisins við öldrunarheimili. Niðurstöður hennar voru að starfræktar væru 93 stofnanir með rými fyrir aldraða, þar af 20 heilbrigðisstofnanir með öldrunarrými og 73 öldrunarheimili. Einungis höfðu verið gerðir átta samningar við þessi 73 heimili og því voru 89% öldrunarheimila án samninga. Af þessum átta voru þrír útrunnir. Ríkisendurskoðun beindi því til velferðarráðuneytis að gera þjónustusamninga við öll öldrunarheimili og efla eftirlit með þjónustu og rekstri öldrunarheimila.
Þjónusta öldrunarheimila.
Öldrunarþjónusta er veitt samkvæmt lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, sem kveða m.a. á um þátttöku ríkisins í rekstri öldrunarheimila og hvaða lágmarksþjónusta skuli veitt þar. Í skilmálablöðum velferðarráðuneytis eru skyldur öldrunarheimila og lágmarkskröfur um þjónustu þeirra nánar skilgreind og eiga þau að auðvelda eftirlit með þjónustunni svo unnt sé að tryggja að veitt þjónusta uppfylli fyrirfram skilgreindar kröfur. Í janúar 2013 lét velferðarráðuneytið uppfæra eldri kröfulýsingu fyrir öldrunarþjónustu. Þar koma fram lágmarkskröfur sem velferðarráðuneytið gerir til þeirra sem annast rekstur hjúkrunar- dvalar- og dagdvalarrýma og til þjónustunnar sem þeir skulu veita og hefur nefndinni verið tjáð að hafinn sé undirbúningur að endurskoðun kröfulýsingarinnar að nýju.
Eftirlit með þjónustu öldrunarheimila.
Landlæknir hefur faglegt eftirlit með gæðum og öryggi þjónustu öldrunarheimila og að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru.
Í kröfulýsingu fyrir öldrunarþjónustu kemur auk þess fram að ráðuneytinu ber að hafa eftirlit með framkvæmd samningsins og að kröfur, sem þar eru settar fram sem og í kröfulýsingunni, séu uppfylltar. Í ábendingu Ríkisendurskoðunar kemur fram að úttektir stofnunarinnar frá árunum 2005 og 2012 um þjónustu og rekstur öldrunarheimila sýni að ekki hafi alltaf verið samræmi milli daggjalda, þjónustu og kostnaðar heimilanna. Telur stofnunin að þetta gefi vísbendingar um að þjónusta við íbúa sé mismunandi eftir öldrunarheimilum óháð greiðslum ríkisins í formi daggjalda. Af þessu dregur stofnunin svo þá ályktun „að ráðuneyti heilbrigðismála hafi ekki markvisst eftirlit með þeirri þjónustu sem greitt er fyrir“. Nefndin áréttar mikilvægi þess að aldraðir fái þá þjónustu á öldrunarheimilum sem kveðið er á um í lögum og reglum. Slík þjónusta er auk þess ítarlegar skilgreind í kröfulýsingu svo og þeim þjónustusamningum sem gerðir eru og því er brýnt að fyrir liggi samningar við öll öldrunarheimili.
Velferðarráðuneytið fer með fjárhagslegt eftirlit. Á fundi nefndarinnar virtist þó ákveðinn misskilningur um ábyrgð á fjárhagslegu eftirliti og vísaði ráðuneytið til Ríkisendurskoðunar um þann þátt. Nefndin áréttar að eftirlit Ríkisendurskoðunar snýr að endurskoðun á framkvæmd og fjármálum verksala. Ráðuneyti ber hins vegar að hafa eftirlit með fjárreiðum og skuldbindingum stofnana sem undir það heyra. Hluti af því eftirliti er að fylgjast með því hvort og þá með hvaða hætti stofnanir sinna þeim verkefnum sem ákvæði samninga kveða á um. Árétta ber að ráðuneytið sjálft hefur skilgreint eftirlitshlutverk sitt í kröfulýsingunni þar sem einnig er að finna nákvæmari lýsingar á því hvernig eftirlitinu skuli háttað.
Nefndin telur mikilvægt að eftirlit sé sterkt, virkt og skilvirkt og bendir á að um er að ræða þjónustu við einstaklinga sem geta aldur síns og heilsu vegna átt erfitt um vik að berjast fyrir rétti sínum sé þjónustan ófullnægjandi. Sú barátta getur orðið enn erfiðari þegar ekki liggja fyrir samningar sem skilgreina með skýrum hætti þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
Gerð þjónustusamninga.
Á fundi nefndarinnar kom fram að erfiðlega hefði gengið að gera þjónustusamninga við öldrunarheimili af nokkrum ástæðum. Heimilin hefðu mörg hver, líkt og aðrar stofnanir sem sinna heilbrigðis- og velferðarþjónustu, fundið verulega fyrir efnahagshruninu 2008. Þá kom einnig fram að fulltrúar heimilanna væru ekki endilega sáttir við þá þjónustusamninga sem fyrir lægju eða væru í boði og hefðu m.a. talið að kröfulýsingar og lýsingar á þjónustu væru ekki í samræmi við fjárframlög til þeirra. Þá hefur ósamkomulag um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum starfsmanna heimilanna, sem greiða iðgjöld í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, einnig hamlað samningagerð.
Kröfulýsing fyrir öldrunarþjónustu var uppfærð í byrjun árs 2013 og hefur nefndinni verið kynnt að endurskoðun hennar sé nú aftur í gangi. Velferðarráðuneytið telur að í þeirri endurskoðun ætti að vera komið til móts við óánægju fulltrúa hjúkrunarheimila með að lýsingar á kröfum sem til þeirra eru gerðar séu ekki í samræmi við það fjármagn sem ætlað er til verksins.
Á fundi nefndarinnar kom fram að ráðuneytið hefði í júní sl. lokið gerð þjónustusamnings um rekstur hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Samningagerðin hefur tekið langan tíma en það er von ráðuneytisins og nefndarinnar að hægt verði að nota þann samning sem fordæmi fyrir aðra þjónustusamninga ráðuneytisins. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga hafði aðkomu að samningaviðræðunum sem tryggja ætti að unnt verði að semja á sama grundvelli við önnur sveitarfélög. Í samningnum er ekki leystur sá ágreiningur sem uppi er vegna lífeyrisskuldbindinga vegna starfsmanna í öldrunarþjónustu sem greiða í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins en gerð er sérstök bókun um þennan þátt. Samkvæmt henni öðlast sveitarfélagið sama rétt og önnur sveitarfélög leiði „samningar milli ríkis og sveitarfélaga vegna flutnings málefna aldraðra til sveitarfélaga til sérstakra greiðslna frá ríkinu“.
Nefndinni var kynnt að næstu samningaviðræður hefðu verið skipulagðar vegna öldrunarheimila á Akureyri, í Hafnarfirði, Garðabæ og Borgarnesi. Þessi heimili eiga það sameiginlegt með heimilinu í Mosfellsbæ að þau voru öll byggð með nýrri leiguleið sem leidd var í lög árið 2009 og felur í sér að sveitarfélög taka að sér hönnun og byggingu heimilanna en geta fengið lán til byggingar hjá Íbúðalánasjóði. Grundvöllur lánveitingar hjá sjóðnum er að fyrir liggi leigusamningur við ríkið um leigugreiðslur til 40 ára. Fyrir nefndinni kom fram að nýta ætti samninginn við Mosfellsbæ sem grunn við samningaviðræður. Ráðuneytið tjáði nefndinni einnig að þegar samningar lægju fyrir við þessa aðila yrði farið í að gera samninga við önnur sveitarfélög þar sem heimili væru í byggingu í samræmi við leiguleiðina sem og sjálfseignarstofnanir vegna þeirra heimila sem væru starfrækt nú en væru enn án samninga.
Til stendur að færa öldrunarþjónustu frá ríki til sveitarfélaga og er það markmið velferðarráðuneytis að ljúka gerð þjónustusamninga áður en til yfirfærslunnar kemur. Fyrir nefndinni kom fram að ef samningaviðræður gengju vel vonaðist ráðuneytið til að það næðist að ljúka þeim í ársbyrjun 2016 eða 2017.
Niðurstöður.
Nefndin áréttar að mikilvægt er að vanda til verka við samningsgerð en bendir jafnframt á að Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að þjónustusamningar liggi fyrir og hvatt ráðuneyti heilbrigðismála til að gera slíka samninga. Nefndin átelur að ekki hafi verið fyrr gripið til markvissra aðgerða til að mæta ábendingum stofnunarinnar. Nefndin telur þó jafnframt jákvætt að nú sé í gangi vinna til úrbóta og telur brýnt að henni verði lokið sem fyrst án þess að dregið verði úr faglegum kröfum.
Nefndin bendir á að þjónustusamningar tryggja að heimilismenn séu betur upplýstir um rétt sinn og geti frekar beitt sér fyrir bættri þjónustu ef þeir telja henni ábótavant. Nefndin telur jákvætt að endurskoða eigi kröfulýsingu fyrir öldrunarþjónustu en telur jafnframt mikilvægt að beina því til ráðuneytisins að slík endurskoðun leiði ekki til lakari þjónustu fyrir aldraða.
Nefndin áréttar mikilvægi þess að eftirlit með þjónustusamningum við öldrunarheimili og þjónustu á öldrunarheimilum sé skilvirkt og markvisst og beinir nefndin því til velferðarráðuneytis að tryggja að allir þeir sem hafi eftirlitshlutverki að gegna séu meðvitaðir og upplýstir um skyldur sínar.
Loks telur nefndin brýnt að leyst verði úr ágreiningi sem uppi er um lífeyrisskuldbindingar vegna starfsmanna öldrunarheimila og beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytis að leitað verði lausna.
Jón Þór Ólafsson, Helgi Hjörvar og Karl Garðarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Brynhildur Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 161 — 143. mál.
Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um ábendingu Ríkisendurskoðunar um þjónustusamninga við öldrunarheimili.

Alþingi, 31. október 2013.
Ögmundur Jónasson,
form.
Willum Þór Þórsson,
frsm.
Brynjar Níelsson.
Pétur H. Blöndal.
Sigrún Magnúsdóttir.
Valgerður Bjarnadóttir.