Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 105. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 166 — 105. mál.
1. Er formleg vinna hafin við úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun mála innan sambandsins, sbr. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, og ef svo er, hver eða hverjir koma að þeirri vinnu?
Vinna við úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun mála innan þess er hafin. Samningur hefur verið undirritaður við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um framkvæmd úttektarinnar. Samninginn, ásamt minnisblaði sem markar hinn efnislega ramma hennar, er að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
2. Hvenær áætlar ráðherra að unnt verði að kynna niðurstöður úttektarinnar fyrir Alþingi?
Utanríkisráðherra stefnir að því að kynna skýrslu Hagfræðistofnunar í janúar 2014.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 166 — 105. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni
um úttekt á stöðu viðræðna við Evrópusambandið.