Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 49. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 182  —  49. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Árna Þór Sigurðssyni um úrgangs- og spilliefni
frá bandaríska varnarliðinu á Heiðarfjalli á Langanesi.


     1.      Telur ráðherra að Bandaríkin hafi uppfyllt ákvæði varnarsamnings síns við Ísland frá 8. maí 1951, þ.m.t. 2. málsl. 8. gr. viðbætis í viðauka við hann, um að þau skuli „eftir því sem við verður komið flytja burtu úrgangsefni, eyða þeim eða á annan hátt ganga frá þeim“ við lok samnings á Heiðarfjalli á Langanesi?
    Um forsögu málsins er vísað til svars utanríkisráðherra til fyrirspyrjanda í 51. máli (sbr. þskj. 183).
    Í 8. gr. almenns viðbætis við varnarsamninginn segir að Bandaríkjunum sé eigi skylt að afhenda Íslandi samningssvæði í sama ástandi og þau voru í þegar Bandaríkin fengu þau til afnota. Þó skyldu Bandaríkin við brottför af samningssvæðum, eftir því sem við yrði komið, flytja burt úrgangsefni, eyða þeim eða ganga frá á annan hátt. Þessi ákvæði giltu milli Íslands og Bandaríkjanna nema um annað yrði samið.
    Með skilasamningnum varðandi Heiðarfjall frá 1971 var þessum ákvæðum almenna viðbætisins vikið til hliðar. Ísland féllst á að taka við landinu í því ástandi sem það var og frekari kröfur vegna þess voru felldar niður. Umrædd ákvæði 8. gr. almenna viðaukans giltu því ekki þegar landsvæðinu á Heiðarfjalli var skilað.

     2.      Telur ráðherra rétt að láta meta að nýju meint óafturkræf áhrif á vistkerfi H-2 svæðisins á Heiðarfjalli eða mengun af völdum efna sem geta skaðað heilsu manna og lífvera, fara í nýjar rannsóknir, mengunarmælingar og mat á mengunarhættu – m.a. ofan við vatnsból á svæðinu – í ljósi þess að ráðuneytið lét hreinsa svæðið sumarið 1974, auk þess að láta safna saman lauslegu járni og spýtum árið 1975, og að aðstæður á Heiðarfjalli voru síðast skoðaðar af hálfu ráðuneytisins fyrir 24 árum, árið 1989?
    Efni þessa liðar heyrir undir valdsvið umhverfis- og auðlindaráðuneytis, enda hefur fyrirspyrjandi beint sambærilegri fyrirspurn til umhverfis- og auðlindaráðherra (sbr. þskj. 152 í 50. máli).

     3.      Telur ráðherra rétt að láta meta hvaða óþægindi og hætta stafa mögulega af efnunum, afla þeirra upplýsinga sem kunna að skipta máli fyrir framvindu og úrlausn málsins og gera grein fyrir hvaða leiðir séu færar svo ljúka megi málinu með viðunandi hætti?
    Efni þessa liðar fellur undir valdsvið umhverfis- og auðlindaráðuneytis, enda hefur fyrirspyrjandi lagt fram sambærilega fyrirspurn til umhverfis- og auðlindaráðherra (sbr. þskj. 152 í 50. máli). Jafnframt er bent á að ekki liggur fyrir hvaða kröfur landeigendur hyggist mögulega gera á hendur íslenska ríkinu og hver sé réttarlegur grundvöllur þeirra.

     4.      Telur ráðherra að rétt sé að grípa til ráðstafana svo koma megi í veg fyrir óafturkræf áhrif á vistkerfi eða mengun af völdum efna sem geti skaðað heilsu manna og lífvera, svo sem með því að fjarlægja úrgangsefnin?
    Efni þessa liðar heyrir undir valdsvið umhverfis- og auðlindaráðuneytis, enda hefur fyrirspyrjandi lagt fram sambærilega fyrirspurn til umhverfis- og auðlindaráðherra (sbr. þskj. 152 í 50. máli). Minnt er þó á að Náttúruverndarráð lagðist gegn því árið 1989 að sorphaugar yrðu fjarlægðir af Heiðarfjalli vegna mengunarhættu, sbr. svar utanríkisráðherra til fyrirspyrjanda (þskj. 183 í 51. máli).