Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 32. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 213  —  32. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um erlenda ríkisborgara í íslenskum fangelsum.


     1.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar sitja nú í íslenskum fangelsum?
    Sautján erlendir ríkisborgarar sitja í íslenskum fangelsum og sex erlendir ríkisborgarar eru í gæsluvarðhaldi. Heildarfjöldi allra fanga í fangelsum ríkisins er 155 að gæsluvarðhaldsföngum meðtöldum.
    Rétt er að geta þess að íslensk stjórnvöld hafa vitneskju um 21 Íslending sem situr í afplánun eða gæsluvarðhaldi í erlendu ríki. Hlutfall erlendra fanga í íslenskum fangelsum og Íslendingar í erlendum fangelsum er því nokkuð jafnt.

     2.      Væri hægt að senda einhverja þeirra til heimalands síns til afplánunar og þá hversu marga?
    Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna frá 1983 og viðauka frá 1997. Auk þess er sérstakt samstarf á milli Norðurlandanna um fullnustu refsinga. Alls eru 64 þjóðir aðilar að samningi Evrópuráðsins, þar af eru 19 ríki sem ekki eiga aðild að Evrópuráðinu.
    Af þeim sautján erlendu ríkisborgurum sem sitja í íslenskum fangelsum eru sex sem hafa það þunga dóma að hægt væri að láta reyna á flutning. Einum hefur þegar verið synjað um flutning af hálfu heimaríkis hans, þá voru ekki skilyrði til að brottvísa öðrum, sá þriðji er frá landi sem ekki er aðili að Evrópuráðssamningi um flutning fanga og síðustu þrír eru pólskir ríkisborgarar en Pólland hefur ekki viljað taka við sínum ríkisborgurum ef þeir vilja ekki vera fluttir. Verið er að láta reyna á flutning annars fanga með pólskt ríkisfang en svar hefur ekki borist frá Póllandi.
    Evrópuráðssamningurinn kveður á um tilteknar grundvallarreglur en samningnum var ætlað að koma á samvinnu ríkja í þessum málaflokki og koma málunum í ákveðinn farveg. Upphaflegur samningur er frá 1983 en gerður var viðauki við samninginn árið 1997 svo hægt yrði m.a. að flytja fanga til síns heima án samþykkis hans. Alls hafa 35 ríki fullgilt viðaukann, þar á meðal Ísland.
    Ef skilyrði eru til flutnings er óskað eftir flutningi til viðkomandi lands. Rétt er að taka fram að afgreiðsla erinda í heimaríkjum brotamanna er oft mjög þung í vöfum og þurfa brotamennirnir að hafa hlotið mjög þunga dóma. Sé tekið mið af reynslulausnarreglum, frádregnu gæsluvarðhaldi, löngum málsmeðferðartíma fyrir dómstólum hér á landi og mjög löngu afgreiðsluferli í sumum ríkjum þarf refsing erlendra brotamanna að lágmarki að vera 4–6 ára fangelsi svo að það borgi sig að fara í flutningsferli.

     3.      Væri hagkvæmt að greiða með föngum þannig að þeir gætu afplánað í heimalandi sínu og ef svo er, hversu mikill sparnaður má áætla að yrði af því?
    Samningur Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna gerir ekki ráð fyrir því að greitt sé með föngum á milli ríkja. Greiðslur sem þessar þekkjast því ekki í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við. Þá eru engin ákvæði í þessa veru í tvíhliða samningum annarra ríkja.
    Hafa verður í huga að staða fangelsismála er erfið í flestum ríkjum og oft er nýtingin um og yfir 100%. Það á við um ríki eins og Litháen og Pólland, en í íslenskum fangelsum eru flestir erlendir brotamenn frá þessum tveimur löndum. Þá er óhjákvæmilegt að íslenska ríkið taki Íslendinga sem dæmdir eru í fangelsi erlendis heim til afplánunar í einhverjum mæli án tillits til þess hvort greitt sé með þeim eða ekki enda hefur íslenska ríkið gengist undir samninga þess efnis.
    Miðað við stöðu afplánunarmála á Íslandi yrði fljótt á litið enginn sparnaður af svona fyrirkomulagi þar sem boðunarlistinn er langur og því þyrfti að koma til nýtt fjármagn. Þá mundu þau rými, sem mögulega losnuðu við samkomulag sem þetta, ekki vera meðal þeirra sem óhjákvæmilegt er að loka árið 2015 með lokun fangelsanna á Skólavörðustíg 9 (12 rými + 2 gæsluvarðhaldsrými) og Kópavogsbraut 17 (12 rými).
    Að lokum skal ítrekað það sem fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar að hlutfall íslenskra ríkisborgara í erlendum fangelsum og erlendra ríkisborgara í íslenskum fangelsum er nokkuð jafnt.