Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 187. máls.

Þingskjal 235  —  187. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku,
með síðari breytingum (innleiðing tilskipunar og viðurlagaákvæði) .

(Lagt fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 2013–2014.)




1. gr.

    Í stað orðanna „notar orku“ í 1. gr. laganna og í stað sömu orða hvarvetna í lögunum kemur: tengist orkunotkun; og í stað „nota orku“ í 1. mgr. 2. gr. laganna og hvarvetna í lögunum kemur: tengjast orkunotkun.

2. gr.

    Við 1. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Lögin skulu tryggja samræmi í visthönnun innan Evrópska efnahagssvæðisins og frjálst flæði á slíkum vörum á sameiginlegum innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Lög þessi gilda um vörur sem tengjast orkunotkun og fjalla um hvaða kröfur þær skulu uppfylla svo að setja megi þær á markað og/eða taka í notkun hér á landi og veita lagastoð fyrir nánari reglum sem settar verða svo að vara sem tengist orkunotkun megi fara á markað og vera tekin í notkun hér á landi.
     b.      Í stað orðanna „sem nýta orku“ í 2. mgr. kemur: sem tengjast orkunotkun.
     c.      Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                   Farþega- og vöruflutningar falla utan gildissviðs þessara laga.

4. gr.

    Við 1. mgr. 3. gr. laganna bætast eftirfarandi orðskýringar í réttri stafrófsröð, svohljóðandi:
     a.      Setja á markað: Að bjóða fram vöru í fyrsta sinn á markaði á Evrópska efnahagssvæðinu til dreifingar eða til notkunar óháð því hvort varan er seld eða gefin til kynningar.
     b.      Taka í notkun: Þegar vara er notuð með tilætluðum hætti í fyrsta sinn á Evrópska efnahagssvæðinu.
     c.      Umhverfisálag: Öll þau áhrif sem verða á umhverfið alfarið eða að hluta til vegna vöru í gegnum vistferil hennar.
     d.      Umhverfisþáttur: Hluti eða virkni vöru sem hefur áhrif á umhverfi í gegnum vistferil vörunnar.
     e.      Vara sem tengist orkunotkun: Vara sem nýtir eða tengist orkunotkun (rafmagni, jarðefnaeldsneyti eða endurnýjanlegum orkugjafa) til að virka sem skyldi eða vara til flutnings og mælingar á slíkri orku þ.m.t. hlutir sem nýta orku eða tengjast orkunotkun.

5. gr.

    Á eftir 1. mgr. 4. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Öll misnotkun á CE-merkinu svo og notkun sem getur leitt til ruglings við það merki er bönnuð.

6. gr.

    Við 5. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Í samræmisyfirlýsingunni skulu eftirfarandi atriði koma fram:
     1.      Nafn og heimilisfang framleiðanda eða viðurkennds fulltrúa hans.
     2.      Lýsing á vörunni, svo sem vörunúmer eða aðrar upplýsingar sem nægja til að bera kennsl á hana án alls vafa.
     3.      Ef við á, tilvísanir í þá samhæfðu staðla sem notaðir eru.
     4.      Ef við á, aðrir tæknistaðlar og forskriftir sem notaðar eru.
     5.      Ef við á, tilvísun í aðra löggjöf þar sem kveðið er á um áfestingu CE-merkisins sem notast er við.
     6.      Auðkenni og undirskrift þess sem hefur umboð til að skuldbinda framleiðandann eða viðurkenndan fulltrúa hans.
    Neytendastofa birtir á heimasíðu stofnunarinnar tilvísanir í staðla sem gilda um einstaka vörur eða flokk vara sem tengjast orkunotkun.

7. gr.

    Á eftir 1. mgr. 6. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, 2. og 3. mgr., svohljóðandi:
    Kröfur, sem gerðar eru til einstakra tegunda eða flokka vara í samræmismati, skulu útfærðar í reglugerðum.
    Neytendastofa skal ganga út frá því að stjórnunarkerfi, sem eru skráð og staðfest af löggjöf sem gildir á Evrópska efnahagssvæðinu, uppfylli kröfur um stjórnunarkerfi.

8. gr.

    Við 1. mgr. 7. gr. laganna bætist: eða tekin til notkunar.

9. gr.

    Fyrirsögn 10. gr. laganna orðast svo: Framkvæmd og eftirlit.

10. gr.

    Í stað 11. gr. laganna koma þrjár nýjar greinar sem orðast svo, ásamt fyrirsögnum, og
breytist greinatala samkvæmt því:

    a. (11. gr.)

Markaðseftirlit Neytendastofu.

    Neytendastofa tekur við ábendingum og skal fara með markaðseftirlit í samræmi við ákvæði laga þessara og reglna settra samkvæmt þeim. Nánar fer um eftirlit þetta, þ.m.t. skyldur framleiðanda og dreifingaraðila skv. ákvæðum í III. kafla laga nr.134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, eftir því sem við getur átt.
    Framleiðandi eða viðurkenndur fulltrúi hans ber kostnað vegna þeirra sýnishorna vöru sem tekin eru til rannsóknar. Að lokinni rannsókn skal sýnishornum skilað eða þau eyðilögð með öruggum hætti eftir atvikum. Sýnishorn vöru samkvæmt þessari grein er að jafnaði eitt eintak vöru eða lágmarksfjöldi sem nauðsynlegur er til að framkvæma rannsókn.
    Framleiðandi eða viðurkenndur fulltrúi hans ber allan kostnað af athugun á því hvort vara sé í samræmi við settar reglur, svo sem kostnað sem hlýst af skoðun, rannsókn og prófun, flutningskostnað svo og annan kostnað, sem er í beinum og efnislegum tengslum við eftirlitið. Framleiðandi eða viðurkenndur fulltrúi hans greiðir auk þess allan kostnað af tilkynningum sem beint er til almennings, svo sem kostnað við tilkynningar í fjölmiðlum.
    Neytendastofa skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að upplýsingarnar, sem veittar eru við málsmeðferðina, teljist trúnaðargögn þegar slíkt telst réttmætt.
    Um skyldur framleiðenda og dreifingaraðila, þ.m.t. skyldur til að tilkynna tafarlaust um
innköllun vöru af markaði, eftirlit, málsmeðferð og stjórnsýsluúrræði Neytendastofu, fer að
öðru leyti eftir V. kafla laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, eftir
því sem við getur átt.
    Neytendastofa skal tilkynna til Eftirlitsstofnunar EFTA ákvarðanir um bann og afturköllun á vörum.

    b. (12. gr.)

Viðurlög.

    Neytendastofa getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim og ákvörðunum eftirlitsaðila. Slíkar sektir geta numið allt að 5 millj. kr. og skulu renna í ríkissjóð.
    Ef ekki er farið að ákvörðun sem tekin hefur verið samkvæmt þessum lögum getur Neytendastofa ákveðið að sá eða þeir sem ákvörðunin beinist að greiði dagsektir þar til farið verður að henni. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að.
    Ákvörðun um dagsektir má skjóta til áfrýjunarnefndar neytendamála innan fjórtán daga frá því að hún er kynnt þeim er hún beinist að. Dagsektir reiknast ekki fyrr en frestur er liðinn.
    Ef ákvörðun er skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála falla dagsektir ekki á fyrr en niðurstaða hennar liggur fyrir. Ákvörðun Neytendastofu verður ekki borin undir dómstóla
fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir.
    Að öðru leyti en greinir í lögum þessum fer um heimildir Neytendastofu til að beita úrræðum eftir ákvæðum laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu.

    c. (13. gr.)

Áfrýjun ákvarðana Neytendastofu.

    Ákvörðunum sem Neytendastofa tekur á grundvelli laga þessara má skjóta til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga nr. 62/2005, um Neytendastofu og talsmann neytenda.
    Ákvörðun Neytendastofu verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir.
    Nú vill aðili ekki una úrskurði áfrýjunarnefndar og getur hann þá höfðað mál til ógildingar
fyrir dómstólum.
    Mál skal höfðað innan sex mánaða frá því að aðili fékk vitneskju um úrskurð áfrýjunarnefndarinnar.
    Málshöfðun frestar ekki gildistöku úrskurðar nefndarinnar né heimild til aðfarar.

11. gr.

    13. gr. laganna, sem verður 15. gr., orðast svo:
    Lög þessi fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB frá 21.
október 2009 um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur (endurútgefin) eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2011, sem birt var 6. október 2011 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54/2011, ásamt frekari tilskipunum sem innleiddar verða með reglugerðum samkvæmt heimild í lögum þessum.

12. gr.

    Heiti laganna verður: Lög um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun.

13. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í samstarfi við Neytendastofu sem fer með markaðseftirlit og framkvæmd laga um visthönnun vöru sem notar orku, nr. 42/2009. Frumvarpið byggir á tilskipun 2009/125/EB sem breytir gildissviði fyrri tilskipunar 2005/32/EB. Gildandi lög um visthönnun eru rammalöggjöf sem leggur grundvöll fyrir frekari reglusetningu. Breytingar á lögunum sem felast í þessu frumvarpi eru afar lítilvægar en valda því þó að möguleikar til þess að setja frekari reglur aukast umtalsvert.

2. Tilefni, nauðsyn og meginefni lagasetningar.
    Markmið frumvarpsins er að innleiða með tilhlýðilegum hætti tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB frá 21. október 2009, um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur (endurútgefin). Gildandi lög eru byggð á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/32/EB en henni hefur verið breytt í veigamiklum atriðum, aðallega hvað varðar gildissvið, en tilskipun 2009/125/EB tekur til allra orkutengdra vara í stað þess að ná eingöngu til vara sem nota orku. Margar orkutengdar vörur búa yfir miklum möguleikum til umbóta, t.d. með því að draga úr umhverfisáhrifum og ná fram orkusparnaði með betri hönnun. Eitt af meginmarkmiðum tilskipunarinnar er að stuðla að því að hönnun á vörum sem tengjast orkunotkun verði með þeim hætti að viðkomandi vara nýti orkuna sem best og dragi þannig úr áhrifum orkunotkunar á umhverfið. Undir tilskipunina og efni frumvarpsins falla ekki einvörðungu vörur sem nota, framleiða, flytja eða mæla orku heldur gætu ákveðnar orkutengdar vörur fallið þar undir, þ.m.t. vörur sem notaðar eru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eins og gluggar, einangrunarefni eða tilteknar vörur sem ætlaðar eru fyrir vatnsnotkun, t.d. sturtuhausar eða kranar. Enn fremur er tilskipuninni ætlað að tryggja samræmdar reglur og frjálst flæði slíkra vara á innri markaði Evrópusambandsins. Þannig er ráðgert að vörur tengdar orkunotkun sem uppfylla kröfur varðandi visthönnun skuli merktar með CE-merkinu og þeim fylgi viðeigandi upplýsingar til þess að unnt sé að setja þær á innri markað og tryggja frjálsan flutning þeirra. Lagasetningin er nauðsynleg til þess að Ísland standi við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-rétti um samræmda löggjöf á EES- svæðinu og til að koma í veg fyrir að heimilt verði að flytja til landsins vörur sem tengjast orkunotkun og uppfylla ekki kröfur annars staðar á EES-svæðinu. Frumvarpið felur ekki í sér breytingar á efniskröfum um orkunýtingu vara sem nota orku.
    Með frumvarpinu er aukinheldur stefnt að því að auka og skilgreina betur valdheimildir Neytendastofu vegna brota á lögum um visthönnun vöru sem notar orku. Markmið þeirra breytinga er að tryggja að ákvæði þessara laga varðandi stjórnsýsluúrræði Neytendastofu séu þau sömu og stofnunin hefur samkvæmt öðrum lögum sem hún framfylgir. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir því að mál er varða brot gegn ákvæðum laganna skuli framsend til lögreglu sem getur lagt sektir á viðkomandi. Við undirbúning þessa frumvarps hefur Neytendastofa bent á að mun eðlilegra sé að málsmeðferð og viðurlög séu í samræmi við sambærilegt eftirlit sem stofnunin hefur með höndum og sé ekki lengur skipt milli Neytendastofu og lögreglu. Breyting á valdheimildum Neytendastofu er tilkomin vegna reynslu af framkvæmd eftirlitsins og er einnig hluti af innleiðingu tilskipunar 2009/125/EB. Í tilskipuninni er gert ráð fyrir að eftirlit sé skilvirkt, öflugt og hafi nægileg úrræði. Í tilskipun 2009/125/EB er aðildarríkjum veitt ákveðið svigrúm til framsetningar og útfærslu eftirlitsins. Það eftirlit sem mælt er fyrir um í þessum lögum er ekki umfram það sem tilskipun 2009/125/EB mælir fyrir um og felur heldur ekki í sér neinar undanþágur. Ákvarðanir Neytendastofu er unnt að kæra með stjórnsýslukæru til sérstakrar áfrýjunarnefndar, en það þykir hagkvæmara, m.a. vegna fjölda mála sem Neytendastofa tekur ákvarðanir um, að fela það slíkri nefnd fremur en að ákvarðanir sæti endurskoðun hjá ráðuneyti eða ráðherra.

3. Mat á áhrifum.
    Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi mikil áhrif á íslenska framleiðendur þar sem framleiðsla fárra innlendra framleiðenda fellur undir ákvæði frumvarpsins en það getur haft áhrif á innflytjendur vara sem tengjast orkunotkun þegar varan kemur í fyrsta skipti inn á EES- svæðið. Hins vegar hefur frumvarpið áhrif á neytendur þar sem það leggur ákveðnar kröfur á framleiðendur um orkunýtni sinna framleiðsluvara og upplýsingaskyldu um orkunotkun viðkomandi vöru. Eins og áður kom fram er með frumvarpinu verið að færa gildissvið gildandi laga út þannig að framvegis taki ákvæði þeirra ekki einvörðungu til vistvænnar hönnunar á vöru sem notar orku heldur einnig vöru sem tengist orkunotkun. Ljóst er að ákvæði laga um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun eiga jafnt við innlenda framleiðendur sem aðra framleiðendur sem framleiða og setja vörur á innri markaðinn í Evrópu. Innflytjendur og dreifingaraðilar verða einnig að tryggja að vörur sem þeir selja og markaðssetja séu í samræmi við ákvæði gildandi laga, reglugerða og staðla sem kunna að gilda um framleiðslu vörunnar hverju sinni. Á heimasíðu Neytendastofu er að finna sameiginleg vefsvæði fyrir öll EES-ríki þar sem eru ítarlegar upplýsingar á íslensku um lög, tilskipanir og framleiðsluferla sem gilda um vörur fyrir innri markaðinn, þ.m.t. um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun. Mikilvægt er að jafnt framleiðendur sem og innflytjendur kynni sér ávallt gildandi reglur sem gilda um framleiðslu á þeim vörum sem ákvæði laganna taka til. Jafnframt ber seljendum að tryggja að neytendur fái ávallt þær upplýsingar sem kveðið er á um í gildandi lögum varðandi orkumerkingar o.fl. Þá hefur frumvarpið áhrif á hlutverk Neytendastofu sem hefur eftirlit með fleiri vörum en áður á grundvelli sjónarmiða um visthönnun.
    Frumvarpið breytir hlutverki Neytendastofu og felur henni frekari úrræði sem þóttu ekki nægilega viðamikil í gildandi lögum. Þá skerpa lögin á eftirlitinu sem verður hnitmiðaðra og einfaldara vegna þess að ekki er gert ráð fyrir aðkomu lögreglunnar vegna brota á lögum um visthönnun, nr. 42/2009.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Lagðar eru til orðalagsbreytingar á lögunum til að víkka gildissvið laganna, þannig að lögin gildi einnig um vörur sem tengjast orkunotkun í stað þess að ná aðeins til þeirra sem nota orku. Orkutengdar vörur eru vörur sem geta leitt til minni orkuþarfar. Sem dæmi mætti nefna vörur, sem notaðar eru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eins og glugga, einangrunarefni eða tilteknar vörur sem ætlaðar eru fyrir vatnsnotkun, t.d. sturtuhausa eða krana. Þéttir gluggar geta leitt til þess að minni þörf er á því að hita upp herbergi og þar með sparast orka. Sturtuhausar og kranar sem eru betur hannaðir og sóa ekki eins miklu vatni leiða einnig til betri orkunýtingar.

Um 2. gr.

    Tilgreint er með ítarlegri hætti en áður markmið laganna og tekið fram að eitt af markmiðunum er að tryggja frjálst flæði vara á sameiginlegum markaði Evrópska efnahagssvæðisins. Frjálst flæði er eitt af grundvallarmarkmiðum Evrópuréttar og samræmdar reglur á sviði visthönnunar eiga að tryggja að vara sem uppfyllir kröfur tilskipunar 2009/125/EB verði óhindrað flutt milli markaða á Evrópska efnahagssvæðinu.

Um 3. gr.

    Gildissviði laganna er breytt þannig að vörur sem eru tengdar orkunotkun falla undir gildissvið laganna en ekki einvörðungu vörur sem nota orku. Jafnframt er að finna nýja undanþágu frá gildissviði laganna, þar sem farþega- og vöruflutningar eru undanþegnir. Við flutninga á farþegum og vörum er notuð orka og því mundi slíkur flutningur falla undir lögin ef ekki væri fyrir þessa undantekningu.

Um 4. gr.

    Við ákvæðið bætast nýjar skilgreiningar. Mikilvægt þótti að skilgreina hvenær vara telst vera sett á markað og hvenær hún er fyrst tekin í notkun. Þessi hugtök hafa sérstaka þýðingu og eru notuð í mörgum tilskipunum og reglugerðum Evrópusambandsins. Á meginlandi Evrópu eru samgöngur milli landa greiðari en frá Íslandi til Evrópu og skapast geta mörg álitaefni um það hver beri ábyrgð á vöru, hver beri ábyrgð á því að láta samræmismat skv. 6. gr. fara fram. Þegar stutt er á milli landamæra getur skipt máli hvenær varan var sett á markað eða fyrst notuð við mat á því í hvaða landi samræmismat á að fara fram. Þá er skilgreint nánar til skýringa hvað hugtökin umhverfisálag og umhverfisþáttur fela í sér. Að lokum er skilgreint hugtakið orkutengd vara sem er lykilhugtak vegna breytinga á gildissviði laganna; þar sem lögin taka til orkutengdra vara er það grundvallaratriði að hugtakið sé skýrt skilgreint.

Um 5. gr.

    Við 4. gr. bætist ný málsgrein þar sem skýrt kemur fram að bannað er að nota CE-merki í andstöðu við gildandi lög og reglur. Auk þess er öll notkun merkisins sem getur leitt til ruglings við það merki bönnuð. CE-merkið er lögverndað merki sem einungis framleiðendur eða viðurkenndir fulltrúar mega setja á vörur sem mega bera slík merki og er tákn og staðfesting þess að vara uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til hennar í lögum og reglum settum samkvæmt þeim.

Um 6. gr.

    Við 5. gr. bætist ný málsgrein þar sem tilgreint er hvað eigi að koma fram í samræmisyfirlýsingu. Þá er bætt við nýrri málsgrein sem kveður á um að neytendastofa eigi að birta á heimasíðu sinni þá staðla sem gilda um einstaka tegundir eða flokka vara.

Um 7. gr.

    Reglugerðir sem settar eru skv. 1. mgr. skulu settar til að útfæra framkvæmdaráðstafanir frá framkvæmdastjórninni. Tilskipun 2009/125/EB er rammalöggjöf sem gerir ráð fyrir því að framkvæmdastjórnin útfæri nánar kröfur sem gerðar eru um einstakar tegundir eða flokka vara. Fyrirséð er að þróun verði í tækni og aðferðum við að auka orkunýtni og því er mikilvægt að hægt sé að breyta kröfum og stöðlum snögglega í samræmi við þróun mála. Nauðsynlegt er að innleiða framkvæmdaráðstafanir svo markmiðum um visthönnun sé náð og auðvelt sé að breyta þeim ef kröfurnar breytast.
    Stjórnunarkerfi fyrirtækja sem taka þátt í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins skulu talin uppfylla ákvæði 5. viðauka við tilskipun 2009/125/EC. Þannig að ef fyrirtæki er skráð í samræmi við reglugerð (EC) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 761/2001 frá 19. mars 2001, sem heimilar valkvæða þátttöku í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS) og hönnunarþátturinn er innan gildissviðs skráningarinnar, þá má ætla að stjórnunarkerfi fyrirtækisins uppfylli kröfur 5. viðauka við tilskipun 2009/125. Auk þessa skulu stjórnunarkerfi fyrirtækja, með hönnunarþátt vöru, sem eru útfærð í samræmi við samhæfða staðla (e. harmonised standards) sem hafa tilvísunarnúmer sín birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins talin uppfylla ákvæði 5. viðauka við tilskipun 2009/125/EC.

Um 8. gr.

    Í samræmi við markmið laganna og nýjar skilgreiningar er bætt við greinina að CE-samræmismerki skuli vera á vöru þegar hún er tekin til notkunar. Lögin gilda um vörur sem eru settar á markað eða teknar til notkunar, því þótti rétt að árétta að CE-samræmismerki skuli vera á vöru í báðum þessum tilfellum.

Um 9. gr.

    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á eftirlitsákvæðum laganna og af þeirri ástæðu
þykir fara betur á því að breyta heiti 10. gr. laganna eins og hér er lagt til.

Um 10. gr.

         Hér er lagt til að felld verði brott núverandi 11. gr. laganna og í stað hennar komi þrjár
nýjar greinar. Ákvæðin eru svipuð og sett hafa verið í önnur sérlög þar sem Neytendastofu
eru falin eftirlitshlutverk sem eru sambærileg við þau sem kveðið er á um í frumvarpi þessu.
    Um a-lið.
    Lagt er til að Neytendastofu verði falið markaðseftirlit samkvæmt lögunum. Í lögum nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, er að finna ítarleg ákvæði um stjórnsýsluúrræði stofnunarinnar gagnvart framleiðendum, innflytjendum og dreifingaraðilum. Rétt þykir að samræmis sé gætt varðandi valdheimildir og úrræði Neytendastofu vegna markaðseftirlits. Aðilar skulu bera kostnað af sýnatöku hvort sem varan reynist vera í samræmi við lög og reglugerðir eður ei. Gjaldendur skulu standa undir kostnaði af sýnatöku.
     Um b-lið.
    Lagt er til að Neytendastofu verði veittar sams konar viðurlagaheimildir og hún hefur samkvæmt IX. kafla laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, að því frátöldu að hámark sekta er talið hæfilegt 5 millj. kr. Þannig er lagt til að Neytendastofa geti beitt stjórnvaldssektum þegar fyrirtæki brjóta gegn ákvæðum laganna. Enn fremur er lagt til að Neytendastofa geti lagt dagsektir á aðila fari hann ekki að ákvörðun Neytendastofu. Þar sem þessum lögum sleppir skulu heimildir Neytendastofu til að beita úrræðum gilda eftir ákvæðum laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu þar sem við á. Að öðru leyti þarfnast ákvæði þetta ekki skýringa.
     Um c-lið.
    Í þessari grein er nánar kveðið á um með hvaða hætti megi skjóta ákvörðun Neytendastofu
til æðra stjórnvalds og eftir atvikum til dómstóla. Í lögum nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, er kveðið á um að stjórnvaldsákvörðunum Neytendastofu skuli áfrýjað til áfrýjunarnefndar neytendamála ef aðili vill ekki una ákvörðun stofnunarinnar. Hér þykir einnig eðlilegt að um áfrýjun og málskot til dómstóla gildi sömu reglur og eru í gildi í öðrum lögum sem Neytendastofa annast eftirlit með.

Um 11. gr.

    Í greininni er að finna tilvísun í tilskipun 125/2009/EB en skv. 2. mgr. 1. tölul. 23. gr. tilskipunarinnar skulu aðildarríki vísa í hana þegar innleiddar eru reglur á grundvelli tilskipunarinnar.

Um 12. gr.

    Með greininni er lagt til að heiti laganna verði breytt þannig að í stað þess að heiti þeirra
verði lög um visthönnun vöru sem notar orku verði það lög um visthönnun vöru sem tengist
orkunotkun. Með hliðsjón af breytingunum sem í frumvarpinu felast og sem kveða á um víðtækara gildissvið laganna þykir rétt að leggja til þessa breytingu á heiti þeirra til þess að það endurspegli betur innihald þeirra.

Um 13. gr.

    Greinin fjallar um gildistöku og þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
skrifstofa opinberra fjármála:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 42/2009,
um visthönnun vöru sem notar orku, með síðari breytingum
(innleiðing tilskipunar og viðurlagaákvæði).

    Breytingartillögur frumvarpsins eru að meginstofni af þrennum toga. Í fyrsta lagi er lagt til að nafni gildandi laga á þessu sviði verði breytt í lög um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar vegna innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB, um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur. Gildandi lög taka eingöngu til vara sem nota orku en með breytingunni munu lögin taka til allra orkutengdra vara, þ.m.t. íhlutavara í vörur sem nota orku. Í þriðja lagi eru skilgreindar betur valdheimildir Neytendastofu vegna eftirlits og brota á lögunum. Með þessum breytingum er verið að tryggja stofnuninni sömu stjórnsýsluúrræði vegna þessara laga og hún hefur samkvæmt öðrum lögum um leið og tryggt er að eftirlitið sé í samræmi við þær kröfur sem leiðir af fyrrgreindri tilskipun.
    Samkvæmt lögum um Neytendastofu hefur stofnunin yfirumsjón með markaðseftirliti raffanga sem ekki eru varanlega tengd mannvirkjum. Í frumvarpinu felst þannig ekki eðlisbreyting á verkefnum Neytendastofu en hins vegar má gera ráð fyrir að fleiri vörur falli undir eftirlitshlutverk stofnunarinnar þar sem gert er ráð fyrir að lögin skuli taka til allra orkutengdra vara. Verði frumvarpið að lögum má því gera ráð fyrir að umfang markaðseftirlits og vettvangsskoðana Neytendastofu kunni að aukast í nokkrum mæli við þessa breytingu en varla er þó talið að það verði meira en sem nemur um hálfu stöðugildi. Ef talin verður þörf fyrir aukið eftirlit á þessu sviði ætti því að vera hægt að gera ráð fyrir að stofnunin geti fellt það inn í sína starfsemi eða að innanríkisráðuneytið muni að öðrum kosti forgangsraða til verkefnisins af öðrum fjárheimildum innan síns útgjaldaramma.
    Verði frumvarpið lögfest ætti það því ekki að þurfa að leiða til aukinna fjárveitinga úr ríkissjóði umfram það sem þegar hefur verið ákveðið í fjárlögum.