Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 193. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 241  —  193. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um Dýrafjarðargöng og samgönguáætlun.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.


     1.      Hver er afstaða ríkisstjórnarinnar til mikilvægis Dýrafjarðarganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar?
     2.      Hefjast framkvæmdir við Dýrafjarðargöng árið 2016 að loknum Norðfjarðargöngum eins og fyrri ríkisstjórn samþykkti og lýkur þeim árið 2018 eins og fyrirhugað er í samgönguáætlun?
     3.      Hvaða verkefni í núgildandi samgönguáætlun hafa ekki verið boðin út?


Skriflegt svar óskast.