Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 142. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 247  —  142. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Gunnarsdóttur
um Atvinnuleysistryggingasjóð og félagslega aðstoð.


     1.      Hver eru áhrif þess á Atvinnuleysistryggingasjóð að draga úr framlögum sem voru ætluð til þess að greiða fyrir aðgangi fólks að framhaldsskólum og til þróunar fjölbreyttara námsframboðs?
    Verkefninu Nám er vinnandi vegur, sem hrundið var af stað haustið 2011, var meðal annars ætlað að greiða fyrir aðgangi fólks að framhaldsskólum auk þess sem gert var ráð fyrir aðgerðum til þróunar fjölbreyttara námsframboðs. Er því í svari þessu gert ráð fyrir að sú fyrirspurn sem hér um ræðir lúti að því verkefni. Verkefnið var unnið á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis í samvinnu við samtök aðila vinnumarkaðarins.
    Verkefnið laut í upphafi að aðgerðum sem meðal annars var ætlað að tryggja öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla, yngri en 25 ára sem jafnframt uppfylltu tiltekin skilyrði, skólavist haustið 2011. Fór mennta- og menningarmálaráðuneyti með framkvæmdina hvað varðaði þann hluta verkefnisins. Þá var verkefninu ætlað að tryggja atvinnuleitendum sem voru skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun og voru þar með tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, sem jafnframt uppfylltu tiltekin skilyrði, aukin tækifæri til náms haustið 2011 innan framhaldsskólanna sem og innan frumgreinadeilda, háskóla og í tengslum við framhaldsfræðslu. Fór Vinnumálastofnun með framkvæmdina hvað varðaði þann hluta verkefnisins. Segja má að þessum hlutum verkefnisins sé lokið en enn er unnið að þeim hluta verkefnisins sem snýr að þróun fjölbreyttara námsframboðs.
    Þegar í upphafi var gerð fjárhagsáætlun fyrir verkefnið í heild. Þannig kom fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012 að gert væri ráð fyrir að verkefnið kostaði 400 millj. kr. haustið 2011, 1.240 millj. kr. árið 2012, 800 millj. kr. árið 2013 en 400 millj. kr. árið 2014 þegar gert væri ráð fyrir að verkefninu lyki. Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og menningarmálaráðuneyti voru 220 millj. kr. veittar til verkefnisins árið 2011, 1.240 millj. kr. árið 2012 og 800 millj. kr. árið 2013. Á árunum 2011 til og með árinu 2013 hafa því 2.260 millj. kr. verið veittar í verkefnið.
    Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 er gert ráð fyrir að veittar verði tæplega 473 millj. kr. til verkefnisins á árinu 2014 að meðtöldum verðbótum. Verður því ekki séð að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 sé gert ráð fyrir að dregið verði úr framlögum sem ætluð voru til þessa verkefnis frá því sem fjárhagsáætlun verkefnisins gerði ráð fyrir. Verði frumvarpið óbreytt að lögum hvað þetta varðar verður því að telja að ekki verði um að ræða áhrif á Atvinnuleysistryggingasjóð vegna lægri framlaga til verkefnisins en fjárhagsáætlun þess gerði ráð fyrir þar sem ekki verður þá dregið úr fjármagni til verkefnisins á árinu 2014 frá því sem fram kemur í fyrrnefndri fjárhagsáætlun.

     2.      Hvaða áhrif hefur þetta á sveitarfélögin vegna félagslegrar aðstoðar sem þau veita?
    Líkt og komið hefur fram verður ekki séð að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 sé gert ráð fyrir að dregið verði úr framlögum sem ætluð voru til þessa verkefnis. Verði frumvarpið óbreytt að lögum hvað þetta varðar verður því að telja að ekki verði um að ræða áhrif á sveitarfélögin vegna félagslegrar aðstoðar sem þau veita vegna lægri framlaga til verkefnisins en fjárhagsáætlun þess gerði ráð fyrir þar sem ekki verður þá dregið úr fjármagni til verkefnisins á árinu 2014 frá því sem fram kemur í fyrrnefndri fjárhagsáætlun.