Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 201. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 292  —  201. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla,
nr. 15/1998, með síðari breytingum (leyfi dómara).

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og telur mikilvægt að það nái fram að ganga svo mögulegt verði að veita héraðsdómara leyfi frá störfum til lengri tíma en eins árs.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Elsa Lára Arnardóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. desember 2013.



Unnur Brá Konráðsdóttir,


form., frsm.


Páll Valur Björnsson.


Líneik Anna Sævarsdóttir.



Guðbjartur Hannesson.


Svandís Svavarsdóttir.