Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 152. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 383  —  152. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum,
nr. 138/2011, með síðari breytingum
(reikningsskil vegna eignarhluta í veitu- og orkufyrirtækjum).


Frá umhverfis- og samgöngunefnd.



    Nefndin fékk á sinn fund Hermann Sæmundsson og Eirík Benónýsson frá innanríkisráðuneyti vegna málsins. Nefndinni bárust umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, HS Orku – HS veitum og Sveitarfélaginu Árborg. Einnig barst nefndinni bókun frá Hrunamannahreppi.
    Megintilgangurinn með frumvarpi þessu er að gera það valkvætt fyrir sveitarfélög hvort eignarhlutir í veitu- og orkufyrirtækjum séu undanskildir í útreikningi á afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga notast við í störfum sínum. Enn fremur eru í frumvarpinu gerðar breytingar á orðalagi ákvæðis sem lýtur að þessu sem eiga að skýra betur efni þess og tilgang en gildistíma ákvæðisins er haldið óbreyttum, þ.e. 10 ár frá gildistöku sveitarstjórnarlaga.
    Nefndin hefur fjallað um málið. Þær umsagnir sem bárust voru almennt jákvæðar gagnvart frumvarpinu. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að eins og umrætt bráðabirgðaákvæði sé nú orðað sé eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skylt við útreikning á afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga að undanskilja útgjöld, skuldir og skuldbindingar þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir umtalsvert meiri útgjöldum og/eða bera umtalsvert meiri skuldir en annars væri vegna eignarhluta þeirra í veitu- og orkufyrirtækjum, í allt að tíu ár frá gildistöku laganna. Þá er bent á að markmið ákvæðisins hafi verið að koma til móts við sveitarfélög sem ella væri sniðinn þröngur stakkur vegna skuldastöðu veitu- og orkufyrirtækja sem þau eiga eignarhluti í, svo sem Reykjavíkurborg vegna Orkuveitu Reykjavíkur. Ákvæðið sé hins vegar orðað með það fortakslausum hætti að ekki hafi verið talið heimilt að taka reikningsskil veitu- og orkufyrirtækja inn í útreikninga á afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga þótt það yrði viðkomandi sveitarfélagi hagfellt, svo sem ef viðkomandi veitu- og orkufyrirtæki er fjárhagslega stöndugt.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Brynjar Níelsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. desember 2013.



Höskuldur Þórhallsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Haraldur Einarsson.



Birgir Ármannsson.


Katrín Jakobsdóttir.


Róbert Marshall.



Vilhjálmur Árnason.