Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 232. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 421  —  232. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991,
með síðari breytingum (frestun nauðungarsölu).

(Eftir 2. umræðu, 18. desember.)


1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Frá gildistöku laga þessara ber sýslumanni að verða við ósk gerðarþola um að fresta fram yfir 1. september 2014 töku ákvörðunar um byrjun uppboðs eða ráðstöfun eignar á almennum markaði ef leitað er nauðungarsölu á grundvelli 6. gr. á fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili, enda sé um að ræða húsnæði sem er ætlað til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda. Hafi þegar verið ákveðin ráðstöfun slíkrar fasteignar til fullnustu kröfu skv. 6. gr. við byrjun uppboðs eða framhald þess eða á almennum markaði en uppboði hefur ekki verið lokið eða boð á almennum markaði samþykkt í eign skal sýslumaður verða við ósk gerðarþola um að fresta þeim aðgerðum fram yfir 1. september 2014.
    Hafi uppboði verið lokið en boð ekki samþykkt fyrir gildistöku laga þessara er sýslumanni heimilt að beiðni gerðarþola að fengnu samþykki gerðarbeiðenda að fresta fram yfir 1. september 2014 að taka afstöðu til boðsins.
    Tímabil sem nauðungarsölu er frestað skv. 1. mgr. skal undanskilið þeim fresti sem um ræðir í 2. mgr. 27. gr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.