Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 272. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 518 — 272. mál.
1. Hefur ráðherra kannað möguleika þess að breyta lögum um tekjuskatt til að heimila sérstakan frádrátt frá tekjuskatti vegna fjárfestinga í hlutabréfum í viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum sem gangi beint til aukningar á eigin fé fyrirtækjanna?
2. Hefur ráðherra kannað möguleika á að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja og efla rannsóknir og þróunarstarf með því að:
a. veita nýsköpunarfyrirtækjum rétt til skattafrádráttar vegna kostnaðar við nýsköpunarverkefni,
b. hvetja einstaklinga og lögaðila til að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum sem uppfylla tiltekin skilyrði, svo sem að hugmynd að virðisaukandi vöru/þjónustu sé vel skilgreind, sem og viðskiptaáætlun og verkferlar?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 518 — 272. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um nýsköpunarfyrirtæki.
Frá Vigdísi Hauksdóttur.