Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 230. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 523 — 230. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Telur ráðherra að með breytingum á lögum nr. 100/2007 á sumarþingi, sem komu til framkvæmda 1. júlí sl., og með því að 13. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 100/2007 falli úr gildi 1. janúar nk. hafi verið leiðréttar þær skerðingar sem gerðar voru af fyrri ríkisstjórn á kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega? Ef ekki, hvaða leiðréttingar er þá eftir að gera?
Árið 2009 í tíð fyrri ríkisstjórnar voru gerðar ýmsar breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, sem höfðu áhrif á kjör aldraðra og öryrkja. Flestar þeirra leiddu til þess að kjör þessara hópa voru skert en í öðrum tilvikum var um að ræða breytingar á lögunum sem ekki leiddu til skerðinga, t.d. þær breytingar sem gerðar voru í tengslum við endurhæfingarlífeyri, þar á meðal í sambandi við þau skilyrði sem uppfylla þarf til að fá greiddan endurhæfingarlífeyri.
Beinar skerðingar sem Alþingi samþykkti í tíð fyrri ríkisstjórnar fólust aðallega í lækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega, hækkun skerðingarhlutfalls tekjutryggingar bæði hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og að tekjur frá lífeyrissjóðum voru í fyrsta skipti metnar til tekna við útreikning grunnlífeyris aldraðra og öryrkja. Með þeim breytingum sem gerðar voru með lögum nr. 86/2013, sem komu til framkvæmda frá 1. júlí 2013, og með því að framlengja ekki 13. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, sem féll úr gildi 1. janúar 2014, hafa þessar skerðingar verið leiðréttar.
Til viðbótar þeim breytingum sem nefndar hafa verið hér að framan var afnumin heimild elli- og örorkulífeyrisþega til að velja milli frítekjumarks og þess að telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar. Núverandi ríkisstjórn hefur litið svo á að afnám heimildar til þessa vals feli í sér verulega einföldun á hinu flókna almannatryggingakerfi. Með hliðsjón af því að reglan var innleidd í lög áður en frítekjumörk vegna atvinnutekna komu til sögunnar hefur ekki verið talin ástæða til þess að innleiða þá reglu að nýju.
Þá var aldurstengd örorkuuppbót tekjutengd með sama hætti og grunnlífeyrir öryrkja frá 1. júlí 2009. Fyrir þann tíma var eina skilyrðið fyrir greiðslu uppbótarinnar að öryrkjar fengju greiddan grunnlífeyri. Eftir breytinguna hafa tekjur öryrkja skert þessa uppbót með sama hætti og þær skerða grunnlífeyri öryrkja, þ.e. eftir að tekjur þeirra ná tæplega 215.000 kr. á mánuði. Þar sem þessi breyting hafði ekki veruleg áhrif á kjör öryrkja og aðeins á kjör þeirra sem höfðu hæstu tekjurnar hefur ekki verið talin ástæða að innleiða þá reglu að nýju. Er þá enn fremur litið til þess að það verður að teljast óeðlilegt að á sama tíma og greiðslur grunnlífeyris til öryrkja eru tekjutengdar þá sé aldurstengd örorkuuppbót greidd án tillits til tekna.
Í velferðarráðuneytinu stendur yfir vinna við endurskoðun almannatrygginga og er eitt af markmiðum þeirrar vinnu að fara yfir með heildstæðum hætti hvernig bæta megi stöðu lífeyrisþega. Samkvæmt framansögðu hafa verið leiðréttar þær beinu skerðingar sem gerðar voru af fyrri ríkisstjórn á kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 523 — 230. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um leiðréttingu á lífeyrisgreiðslum til öryrkja og ellilífeyrisþega.