Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 279. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 539 — 279. mál.
1. Hafa önnur ráðuneyti en velferðarráðuneytið umsjón með vinnumarkaðsúrræðum eða annast framkvæmd þeirra? Ef svo er, hvaða ráðuneyti eru það og hvert er hlutverk þeirra?
2. Hvaða aðilar bjóða upp á vinnumarkaðsúrræði og í hverju eru úrræðin fólgin í stuttu máli?
3. Hve margir hafa notið úrræðanna árlega síðastliðin fjögur ár, sundurliðað eftir tegundum úrræða? Óskað er eftir mati á árangri af hverju úrræði fyrir sig.
4. Hver er stefnan í þessum málaflokki næstu tvö árin?
5. Hvernig er gert ráð fyrir að atvinnuleysi þróist á næstu árum og hvaða áhrif hafa spár á þau úrræði sem boðið verður upp á?
6. Eru fyrirhugaðar breytingar á aðkomu ríkisins að málefnum þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en fjögur ár og hafa ekki lengur rétt til bóta frá ríkinu?
7. Eftir hvaða lögum og reglugerðum er unnið í þessum málaflokki?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 539 — 279. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um vinnumarkaðsúrræði.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.