Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 290. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 561 — 290. mál.
1. Hversu marga daga var forseti Íslands erlendis árið 2013?
2. Hverjar utanferða forsetans árið 2013 voru opinberar og hverjar í einkaerindum? Heimsóknarland óskast tilgreint.
3. Hvað kostuðu fyrrgreindar ferðir, sundurliðað eftir ferðatilefnum og ferðalögum, og hverjir báru kostnaðinn, sundurliðað sem hér segir:
a. embætti forseta Íslands,
b. forsetinn sjálfur,
c. ríkin sem hann heimsótti,
d. einkaaðilar og þá hverjir og af hverju?
4. Hvaða kostnaður féll á forsetaembættið árið 2013 vegna ferðalaga maka forsetans erlendis og til og frá landinu?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 561 — 290. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um ferðalög forseta Íslands og maka hans.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.