Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 291. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 581 — 291. mál.
1. Nær starfsleyfi Hvals hf. til framleiðslu hvalamjöls til nota í matvæli?
Í starfsleyfi Hvals hf., dags. 12. júlí 2010, útgefnu af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, kemur fram að leyfið gildi fyrir vinnslu hvalaafurða, kjötskurðar, mjöl- og lýsisframleiðslu fyrir allt að 200 tonnum af hráefni á sólarhring. Þá kemur einnig fram að lög nr. 93/1995, um matvæli, gildi um starfsemina.
2. Nær starfsleyfi Hvals hf. til framleiðslu kryddvöru?
Í starfsleyfi Hvals hf. er ekki sérstaklega tilgreint að Hvalur hf. hafi leyfi til framleiðslu kryddvöru.
3. Hvers vegna telur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, samkvæmt bréfi til Brugghússins Steðja ehf. 24. janúar sl., að lagagrundvöllur sé „óviss“ við ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 13. janúar sl. um svokallaðan hvalabjór?
Ákvörðun ráðuneytisins byggist á ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, um frestun réttaráhrifa skv. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Þar segir: „Æðra stjórnvaldi er þó heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því.“ Ráðuneytið mat lagagrundvöll málsins óljósan samkvæmt þeim gögnum sem fyrir lágu þegar ákvörðun um frestun réttaráhrifa var tekin. Við ákvörðun um frestun réttaráhrifa þarf ráðuneytið m.a. að gæta að neytendasjónarmiðum og lagasjónarmiðum um meðalhóf ákvarðana opinberra aðila og að ekki sé gengið lengra en eðlilegt getur talist. Stjórnsýslukæra í málinu er hins vegar nú efnislega til meðferðar hjá ráðuneytinu og ekki eðlilegt að ráðuneytið fjalli með neinum hætti efnislega um málið á þessu stigi. Niðurstaða um lagagrundvöll málsins mun ekki liggja fyrir fyrr en að lokinni ítarlegri skoðun á málinu, eftir öflun gagna og umsagna, eins og venja er í svona málum, og ráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í málinu.
4. Hvaða umsagnir bárust ráðuneytinu um málið frá undirstofnunum þess eða öðrum áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar? Óskað er eftir að umsagnirnar fylgi svarinu.
Ráðuneytið óskaði umsagna frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Matvælastofnun 22. janúar 2014 vegna kröfu um frestun réttaráhrifa. Umsagnir bárust ráðuneytinu 23. janúar 2014, áður en ráðuneytið tók ákvörðun um að fresta réttaráhrifum ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Sjá má framangreindar umsagnir í fylgiskjölum.
5. Bað ráðherra eða ráðuneytisstarfsmaður Heilbrigðiseftirlit Vesturlands eða heilbrigðisnefnd Vesturlands að afturkalla ákvörðunina um hvalamjölið áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum hennar? Ef svo er, á hvaða hátt, á grundvelli hvaða laga og með hvaða rökum?
Hvorki ráðherra né ráðuneytisstarfsmaður bað Heilbrigðiseftirlit Vesturlands eða heilbrigðisnefnd Vesturlands að afturkalla ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins áður en ráðuneytið frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar.
Fylgiskjal I.
Fylgiskjal II.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 581 — 291. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Merði Árnasyni um hvalamjöl.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Umsögn Matvælastofnunar.
(23. janúar 2014.)
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal II.
Umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.