Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 303. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 585  —  303. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um þjónustusamninga við veitendur heilbrigðisþjónustu.

Frá Merði Árnasyni.


     1.      Við hvaða veitendur heilbrigðisþjónustu hefur ráðuneytið gildan þjónustusamning?
     2.      Hver er stefna ráðuneytisins um faglegt eftirlit með slíkum þjónustusamningum?
     3.      Hvernig er háttað faglegu eftirliti ráðuneytisins með starfsemi samkvæmt þjónustusamningi? Hver annast eftirlitið, hvernig fer það fram og hvaða gögn liggja fyrir um það?


Skriflegt svar óskast.