143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 591 — 270. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur um bótasvik.
1. Hve margir unnu árlega hjá Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun við að upplýsa bótasvik árin 2007–2013?
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun starfaði einn starfsmaður hjá greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd við að samkeyra atvinnuleysisskrá við staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra og úrvinnslu þeirra mála sem upp komu við þá samkeyrslu á árunum 2007. 2013. Auk þess setti Vinnumálastofnun á fót sérstaka fjögurra manna eftirlitsdeild í október árið 2009 með aðsetur í Reykjavík en meðal annars vegna aðhaldskrafna í tengslum við rekstur stofnunarinnar undanfarin ár hefur orðið að fækka stöðugildum hjá deildinni. Í janúar 2014 starfaði einn starfsmaður Vinnumálastofnunar innan eftirlitsdeildar stofnunarinnar í Reykjavík og einn starfsmaður hjá greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins hefur stöðugildum í tengslum við eftirlit með bótasvikum hjá stofnuninni fjölgað frá árinu 2007 þegar tveir starfsmenn störfuðu við eftirlit hjá stofnuninni. Þannig voru stöðugildi í tengslum við eftirlit hjá Tryggingastofnun 3,7 talsins á árinu 2013.
Í eftirfarandi töflu má sjá upplýsingar um stöðugildi í tengslum við eftirlit með bótasvikum hjá Vinnumálastofnun annars vegar og Tryggingastofnun ríkisins hins vegar á árunum 2007–2013:
Tafla 1. Stöðugildi í tengslum við eftirlit hjá Vinnumálastofnun
og Tryggingastofnun árin 2007.2013.
| 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | |
| Stöðugildi við eftirlit – Vinnumálastofnun | 1 | 1 | 5 | 4 | 3 | 2 | 2 |
| Stöðugildi við eftirlit – Tryggingastofnun | 2 | 2 | 2,3 | 2 | 2,7 | 3,1 | 3,7 |
2. Hvað nema upplýst bótasvik háum fjárhæðum eftir málaflokkum og árum?
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun getur verið erfitt að áætla nákvæman sparnað af eftirliti í öllum tilvikum en stofnunin notast við ákveðnar reikniforsendur við slíka útreikninga. Í því sambandi er að mati stofnunarinnar nauðsynlegt að taka tillit til meðalgreiðslna úr Atvinnuleysistryggingasjóði, meðalfjölda greiðsludaga í mánuði, viðurlagatíma og áætlaðrar lengdar þess tímabils sem einstaklingur hefði alla jafna fengið greiddar bætur ef bótasvik hefðu ekki komið til.
Vinnumálastofnun áætlar að sparnaður vegna aðgerða eftirlitsdeildar stofnunarinnar í tengslum við upplýst bótasvik og athuganir á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði til skráðra atvinnuleitenda hafi verið um 850 millj. kr. frá október 2009 til desember 2010. Þar hafi helst verið um að ræða mál þar sem ábendingar hafi borist stofnuninni um ætluð bótasvik eða grunur hafi vaknað um að atvinnuleitandi ætti ekki rétt á þeim greiðslum sem viðkomandi hafi verið að fá úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Á árunum 2009–2010 voru skráðir atvinnuleitendur jafnframt boðaðir reglulega á fundi hjá stofnuninni þar sem meðal annars er könnuð virkni viðkomandi atvinnuleitanda við atvinnuleit. Samkeyrslur upplýsinga úr atvinnuleysisskrá við upplýsingar úr öðrum opinberum skrám eru einnig mikilvægur þáttur í starfi eftirlitsdeildar Vinnumálastofnunar en þar vegur einna helst samkeyrsla atvinnuleysisskrár við nemendaskrár framhalds- og háskóla sem og annarra viðurkenndra menntastofnana hérlendis. Auk þess er um að ræða samkeyrslu atvinnuleysisskrár við upplýsingar sem skráðar hafa verið í FINN, sem er upplýsingakerfi sem heldur utan um gögn sem koma til við vinnustaðaeftirlit aðila vinnumarkaðarins. Jafnframt samkeyrir eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar upplýsingar úr atvinnuleysisskrá við upplýsingar frá Fangelsismálastofnun í hverjum mánuði sem og við upplýsingar frá Samgöngustofu einu sinni til tvisvar á ári, meðal annars í tengslum við akstursheimildir einstaklinga til að aka leigubifreiðum. Heildstæðar upplýsingar um sparnað vegna aðgerða eftirlitsdeildar Vinnumálastofnunar fyrir árið 2011 liggja ekki fyrir en stofnunin áætlar að sparnaður vegna þess árs hafi verið um 600 millj. kr. Vinnumálastofnun áætlar að sparnaður vegna aðgerða eftirlitsdeildar stofnunarinnar á árinu 2012 hafi verið um 572 millj. kr. Í því sambandi má meðal annars nefna að um var að ræða 31 millj. kr. vegna samkeyrslu atvinnuleysisskrár við nemendaskrár framhaldsskóla og háskóla sem og annarra viðurkenndra menntastofnana á því ári. Þá var um að ræða 167 millj. kr. vegna samkeyrslu atvinnuleysisskrár við upplýsingar frá Samgöngustofu og 92 millj. kr. vegna samkeyrslu atvinnuleysisskrár við upplýsingar sem skráðar hafa verið í FINN. Í samanburði við önnur útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs má nefna að desemberuppbót ársins 2012 nam um 258 millj. kr. og greiddar voru 445 millj. kr. í barnadagpeninga atvinnuleitenda á árinu 2013. Unnið er að ítarlegri greiningu á störfum eftirlitsdeildar Vinnumálastofnunar fyrir árið 2013 og áætlar stofnunin að skýrsla hvað það varðar verði tilbúin til birtingar innan fárra vikna.
Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá Vinnumálastofnun hvað varðar sparnað vegna samkeyrslu atvinnuleysisskrár við staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra sem er stærsta einstaka samkeyrslan í tengslum við eftirlit Vinnumálastofnunar með bótasvikum en greiðslustofa Vinnumálastofnunar á Skagaströnd sér um framkvæmd þeirrar samkeyrslu. Fyrrnefnd samkeyrsla atvinnuleysisskrár við staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra er umfangsmikill þáttur í eftirliti stofnunarinnar en mánaðarlega sendir stofnunin á milli 180–350 fyrirspurnir til atvinnuleitenda þar sem ósamræmi hefur komið upp við framangreinda samkeyrslu milli rauntekna og þeirra tekna sem viðkomandi hefur tilkynnt til Vinnumálastofnunar. Í ljósi þess telur Vinnumálastofnun að heildarsparnaður vegna eftirlits stofnunarinnar sé meiri en framangreindar fjárhæðir segja til um.
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins voru skráð 627 mál hjá eftirlitsdeild stofnunarinnar á árinu 2013 en þar af voru greiðslur stöðvaðar í 277 málum. Til samanburðar voru skráð 175 mál hjá eftirlitsdeild stofnunarinnar árið 2007 en af þeim voru greiðslur stöðvaðar í 11 málum.
Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda skráðra mála hjá eftirlitsdeild Tryggingastofnunar og fjölda þeirra mála þar sem greiðslur hafa verið stöðvaðar vegna skoðunar hjá deildinni á árunum 2007.2013:
Tafla 2. Fjöldi skráðra mála og stöðvana hjá Tryggingastofnun.
| Mál eftirlitsdeildar | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 |
| Fjöldi skráðra mála | 175 | 219 | 538 | 531 | 531 | 622 | 627 |
| Fjöldi stöðvana | 11 | 25 | 205 | 170 | 277 | 396 | 277 |
Í eftirfarandi töflu má sjá þær fjárhæðir í þúsundum króna sem sparast hafa í hverjum bótaflokki fyrir sig þar sem greiðslur hafa verið stöðvaðar í kjölfar mála sem komið hafa til skoðunar hjá eftirlitsdeild Tryggingastofnunar ríkisins á árunum 2007.2013:
Tafla 3. Sparnaður vegna stöðvana, greint eftir bótaflokkum (þús. kr.).
| Bótaflokkar | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | Alls |
| Heimilisuppbót | 549 | 1.244 | 15.922 | 23.520 | 42.815 | 93.497 | 62.564 | 240.111 |
| Mæðra-/feðralaun | 690 | 1.847 | 13.163 | 7.899 | 11.727 | 5.774 | 5.941 | 47.041 |
| Meðlag | 878 | 2.572 | 24.949 | 30.406 | 31.606 | 13.345 | 12.266 | 116.022 |
| Búsettir erlendis | 1.863 | 3.171 | 8.575 | 6.354 | 17.810 | 6.802 | 17.354 | 61.929 |
| Annað | 605 | 1.103 | 1.708 | |||||
| Alls á ársgrundvelli | 3.980 | 8.834 | 63.214 | 68.179 | 105.061 | 119.418 | 98.125 | 466.811 |
Til samanburðar við þær tæplega 120 millj. kr. sem spöruðust með eftirliti í þessum bótaflokkum á árinu 2012 má geta þess að heildargreiðslur Tryggingastofnunar vegna dánarbóta á árunum 2012 og 2013 námu samtals 122 millj. kr. og að útgjöld vegna maka- og umönnunarbóta námu alls 127 millj. kr. á síðasta ári. Þá greiddi stofnunin tæplega 2.000 foreldrum langveikra og alvarlega fatlaðra barna samtals 121 millj. kr. í umönnunargreiðslur janúarmánuði 2014.
Tryggingastofnun telur að við mat á bótasvikum þurfi að líta til þess hve lengi greiðslur hefðu átt sér stað hefði ekki komið til þess að stöðva þær vegna brota. Greiðslutími Tryggingastofnunar er í flestum tilfellum áratugir og þarf því að mati stofnunarinnar að framreikna fjárhæðir til þess að leggja mat á áætlaðar óréttmætar greiðslur sem því nemur.
Í eftirfarandi töflu hafa þær fjárhæðir sem sparast hafa í hverjum bótaflokki fyrir sig þar sem greiðslur hafa verið stöðvaðar í kjölfar mála sem komið hafa til skoðunar hjá eftirlitsdeild Tryggingastofnunar á árunum 2007–2013 verið uppreiknaðar miðað við fimm ára tímabil:
Tafla 4. Sparnaður uppreiknaður miðað við fimm ár,
greint eftir bótaflokkum (þús. kr.).
| Bótaflokkar | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | Alls |
| Heimilisuppbót | 2.744 | 6.222 | 79.608 | 117.599 | 214.076 | 467.485 | 312.819 | 1.200.553 |
| Mæðra-/feðralaun | 3.451 | 9.232 | 65.816 | 39.496 | 58.636 | 28.871 | 29.707 | 235.209 |
| Meðlag | 4.388 | 12.859 | 124.744 | 152.032 | 158.031 | 66.727 | 61.330 | 580.111 |
| Búsettir erlendis | 9.315 | 15.855 | 42.876 | 31.769 | 89.052 | 34.008 | 67.621 | 290.496 |
| Annað | 3.023 | 5.513 | 8.536 | |||||
| Alls | 19.898 | 44.168 | 316.067 | 340.896 | 525.308 | 597.091 | 471.477 | 2.314.905 |
Í eftirfarandi töflu má sjá hver niðurstaðan yrði ef fjárhæðirnar eru uppreiknaðar miðað við tíu ára tímabil:
Tafla 5. Sparnaður uppreiknaður miðað við tíu ár,
greint eftir bótaflokkum (þús. kr.).
| Bótaflokkar | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | Alls |
| Heimilisuppbót | 5.487 | 12.444 | 159.217 | 234.197 | 428.151 | 934.971 | 625.938 | 2.400.405 |
| Mæðra-/feðralaun | 6.902 | 18.464 | 131.631 | 78.991 | 117.273 | 57.742 | 59.414 | 470.417 |
| Meðlag | 8.776 | 25.718 | 249.489 | 304.064 | 316.062 | 133.455 | 122.660 | 1.160.224 |
| Búsettir erlendis | 18.629 | 31.710 | 85.751 | 63.538 | 178.105 | 68.017 | 135.243 | 580.993 |
| Annað | 6.046 | 11.027 | 17.073 | |||||
| Alls | 39.794 | 88.336 | 632.134 | 680.790 | 1.050.618 | 1.194.185 | 943.255 | 4.629.112 |
Tryggingastofnun ríkisins leggur mikla áherslu á svokallað samtímaeftirlit sem felst meðal annars í vélrænu eftirliti í því skyni að koma í veg fyrir greiðslur þegar réttur til greiðslna er ekki til staðar. Fjárhæðir þar sem greiðslur hafa verið stöðvaðar í tengslum við þennan hluta eftirlitsins hafa ekki verið teknar saman hjá stofnuninni en talið er að þær hlaupi á milljörðum króna.
3. Hverjar eru refsingarnar verði einstaklingur uppvís að bótasvikum?
Í XI. kafla laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, er kveðið á um viðurlög vegna brota á lögunum. Aðallega reynir á 59. gr. laganna sem fjallar um viðurlög þegar sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum lætur hjá líða að veita upplýsingar eða að tilkynna um breytingar á högum sínum sem og 60. gr. laganna sem kveður á um viðurlög þegar atvinnuleysisbóta er aflað með sviksamlegum hætti.
Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um hagi sína sem kunna að hafa áhrif á rétt hans innan atvinnuleysistryggingakerfisins fær ekki greiddar atvinnuleysisbætur í tvo mánuði frá þeim degi sem viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt viðkomandi. Hið sama gildir þegar sá hinn sami lætur hjá líða að tilkynna til Vinnumálastofnunar um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Á viðurlagatímanum þarf viðkomandi að uppfylla skilyrði laganna. Sinni hann ekki skyldum sínum á þeim tíma getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr. laganna. Hafi sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 30 mánuði eða lengur á sama tryggingatímabili þegar hann gerist brotlegur við lögin á hlutaðeigandi ekki frekari rétt til atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði. Ber atvinnuleitanda jafnframt að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að viðbættu 15% álagi. Ef um er að ræða annað brot hlutaðeigandi atvinnuleitanda á sama tryggingatímabili kemur til ítrekunaráhrifa og fær hann þá ekki greiddar atvinnuleysisbætur í þrjá mánuði. Þriðja brot leiðir til þess að hlutaðeigandi á ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en eftir að hann hefur starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði.
Í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, er kveðið á um viðurlög í þeim tilvikum þegar atvinnuleysisbóta er aflað með sviksamlegum hætti. Er þá annars vegar um að ræða að viðkomandi lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum sínum á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að viðkomandi telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum. Hins vegar er um að ræða tilvik þegar einstaklingur starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði án þess að tilkynna um vinnu sína til Vinnumálastofnunar. Sæti atvinnuleitandi viðurlögum á grundvelli ákvæðisins eru greiðslur til hans stöðvaðar og á hann ekki rétt á bótum fyrr en eftir að hann hefur starfað í a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Í framangreindum tilvikum ber hlutaðeigandi atvinnuleitanda jafnframt að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að viðbættu 15% álagi.
Samkvæmt 5. mgr. 45. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skal greiðsluþegi endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi komi í ljós að í því skyni að njóta tryggingar eða fá óréttmætar greiðslur á grundvelli laganna hafi viðkomandi veitt rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar eða látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar.
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun hefur stofnunin kært bótasvikamál sem fjársvikamál og vísað í því sambandi til 248. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, með síðari breytingum, en þar er refsiramminn sex ára fangelsi. Dómar í bótasvikamálum vegna greiðslna frá Tryggingastofnun hafa ekki gengið hér á landi og því er ekki unnt að svara því hver refsing yrði í slíkum málum.