Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 322. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 615  —  322. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um öfugan samruna lögaðila.

Frá Haraldi Benediktssyni.


     1.      Hver er fjárhæð endurálagningar tekjuskatts vegna öfugs samruna lögaðila árin 2008– 2013? Hve hátt er álag vegna sömu skattheimtu?
     2.      Hvað hafa margir lögaðilar fengið slíka endurálagningu, skipt eftir árum?
     3.      Hvernig skiptast framangreindir aðilar eftir atvinnugreinum, fjölda þeirra og fjárhæð endurálagningar með álagi?
     4.      Hvað nam bakfærsla á yfirfærðu tapi milli ára háum fjárhæðum og hvað má gera ráð fyrir að bakfærslan hafi lækkað tekjuskatt lögaðila mikið?
     5.      Hvað hefur innheimst af endurálögðum tekjuskatti vegna öfugs samruna sem skattyfirvöld hafa ekki fallist á?
     6.      Með hvaða hætti hefur ríkissjóður tryggt innheimtu umræddra skatta?
     7.      Hvað má gera ráð fyrir að margir öfugir samrunar hafi átt sér stað sl. 10 ár?
     8.      Hvað má gera ráð fyrir að þessir samrunar hefðu skilað mikilli skattalækkun hefðu þeir allir verið samþykktir (óskað er eftir mati en ekki nákvæmum útreikningum nema þeir liggi fyrir)?


Skriflegt svar óskast.