Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 323. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 616  —  323. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um afskriftir í fjármálakerfinu.

Frá Haraldi Benediktssyni.


     1.      Hverjar hafa verið árlegar heildarafskriftir í fjármálakerfinu síðastliðin sjö ár?
     2.      Hversu miklar voru þessar afskriftir hjá lögaðilum annars vegar og einstaklingum hins vegar?
     3.      Hvernig skiptust afskriftirnar á milli fyrirtækja og einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar?
     4.      Hvernig skiptust afskriftirnar á milli helstu atvinnugreina og hverjar voru þessar afskriftir sem hlutfall af heildarútlánum til viðkomandi atvinnugreina?


Skriflegt svar óskast.