Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 324. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 617  —  324. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um skattlagningu á innanlandsflug.

Frá Haraldi Benediktssyni.


     1.      Hvernig hefur skattlagning á innanlandsflug þróast frá árinu 2009, sundurgreind eftir:
              a.      farþegasköttum,
              b.      lendingargjöldum,
              c.      leiðarflugsgjöldum,
              d.      kolefnisgjöldum?
     2.      Hver hefur verið árleg hlutfallsleg hækkun framangreindra skatta frá árinu 2009 og hversu mikið hafa þeir hækkað hlutfallslega á tímabilinu í heild?
     3.      Hvert er hlutfall þessarar skattheimtu af heildartekjum innanlandsflugsins?
     4.      Hver hefur verið þróun farþegafjölda í innanlandsflugi á sama tímabili?
     5.      Er ætlunin að endurskoða skattumhverfi innanlandsflugsins sérstaklega?


Skriflegt svar óskast.