Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 333. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 627  —  333. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um dómsmál gegn íslenska ríkinu.


Frá Guðmundi Steingrímssyni.



     1.      Hversu mörg dómsmál höfðuðu íslenskir einstaklingar og lögaðilar gegn íslenska ríkinu árin 2012 og 2013?
     2.      Í hversu mörgum málum krafðist ríkið frávísunar og hversu oft féllst héraðsdómur á frávísun?
     3.      Hversu margir úrskurðir um frávísun voru kærðir til Hæstaréttar? Í hversu mörgu tilvikum staðfesti Hæstiréttur frávísun máls og hversu oft var henni snúið við?
     4.      Í hversu mörgum málum tók embætti ríkislögmanns til varnar fyrir hönd ríkisins?


Skriflegt svar óskast.