Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 339. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 634  â€”  339. mál.




Fyrirspurn



til forseta Alþingis um skýrslu um rannsókn á aðdraganda
og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna.


Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


    Hvenær mun rannsóknarnefnd sem var falið að semja skýrslu um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna skila forseta skýrslunni?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Hinn 10. júní 2011 samþykkti Alþingi þingsályktun um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, nr. 42/139. Samkvæmt g-lið ályktunarinnar skyldi rannsóknarnefnd skila forseta Alþingis skýrslu um rannsóknina ekki síðar en 1. júní 2012. Rannsóknarnefndin hefur ítrekað fengið frest til að skila og fengið stórauknar fjárheimildir.












Þetta vefsvæði byggir á Eplica