Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 341. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 638  —  341. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um skipan opinberra framkvæmda,
nr. 84/2001, með síðari breytingum.


Flm.: Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson.


1. gr.

    Í stað orðanna „formaður fjárlaganefndar Alþingis eða sérstaklega tilnefndur fulltrúi nefndarinnar“ í 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: einn fulltrúi tilnefndur af ráðherra.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Flutningsmenn telja nauðsynlegt að skerpa eftirlitshlutverk fjárlaganefndar gagnvart framkvæmdarvaldinu. Til þess að svo megi verða þarf nefndin að vera óháðari ráðherrum heldur en verið hefur fram til þessa. Í því felst m.a. að formaður eða fulltrúar fjárlaganefndar sitji ekki í stjórnum eða nefndum á vegum Stjórnarráðsins. Eitt af meginhlutverkum fjárlaganefndar er að hafa eftirlit með ráðherrum og til þess að hún hafi sem óbundnastar hendur í því hlutverki er lögð til breyting á ákvæði laganna um að formaður fjárlaganefndar eða sérstaklega tilnefndur fulltrúi nefndarinnar sitji í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir. Þess í stað þykir eðlilegra að ráðherra skipi fulltrúa sinn í samstarfsnefndina.