Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 279. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 643 — 279. mál.
1. Hafa önnur ráðuneyti en velferðarráðuneytið umsjón með vinnumarkaðsúrræðum eða annast framkvæmd þeirra? Ef svo er, hvaða ráðuneyti eru það og hvert er hlutverk þeirra?
Samkvæmt 8. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar frá 24. maí 2013 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands kemur fram að velferðarráðuneyti fari með vinnumál og þar á meðal vinnumarkaðsaðgerðir. Í forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra kemur fram að félags- og húsnæðismálaráðherra fari með málefni er varða vinnumál, þar á meðal vinnumarkaðsaðgerðir.
Vinnumarkaðsaðgerðir falla því undir málefnasvið velferðarráðuneytis en Vinnumálastofnun annast framkvæmd þeirra og skipulag samkvæmt lögum nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir. Í kjölfar efnahagsþrenginganna haustið 2008 hafa velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun átt í samstarfi við önnur ráðuneyti í afmörkuðum verkefnum sem tengjast vinnumarkaðsaðgerðum, sem og sveitarfélög og samtök aðila vinnumarkaðarins. Í byrjun febrúar árið 2011 skipaði þáverandi forsætisráðherra vinnuhóp um mótun aðgerðaáætlunar á sviði vinnumarkaðsúrræða, starfs- og endurmenntunar og endurhæfingar sem í áttu sæti m.a. fulltrúar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Verkefnið Nám er vinnandi vegur var sett á fót í kjölfar tillagna frá þessum vinnuhópi og var samvinnuverkefni velferðarráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins ásamt samtökum aðila vinnumarkaðarins. Um var að ræða átaksverkefni á sviði vinnumarkaðsaðgerða og eflingu menntunar.
Annars vegar var um að ræða aðgerðir er lutu að því að gera framhaldsskólum kleift að taka haustið 2011 inn þá umsækjendur yngri en 25 ára sem uppfylltu inntökuskilyrðin sem og að skapa námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleitendur á sama tíma í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og í framhaldsfræðslu. Stýrihópur var skipaður með sameiginlegri formennsku mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis en fulltrúar aðila vinnumarkaðarins áttu jafnframt sæti í hópnum. Vinnumálastofnun sá um framkvæmd verkefnisins að því er varðaði þá þátttakendur í verkefninu sem voru skráðir án atvinnu hjá stofnuninni en mennta- og menningarmálaráðuneytið sá um framkvæmd verkefnisins er laut að öðrum þátttakendum í verkefninu. Í upphafi árs 2013 kynntu formenn stýrihópsins hugmyndir um nýtingu fjármuna innan verkefnisins til að hækka menntunarstig á vinnumarkaði í samræmi við sameiginlegt markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að lækka hlutfall þeirra sem ekki hafa lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi fyrir árið 2020. Yfirstandandi eru því tvö tilraunaverkefni í þessu sambandi, annað í Breiðholti (höfuðborgarsvæðið) og hitt á Norðurlandi vestra (landsbyggðin). Er verkefnunum stýrt af fyrrnefndum stýrihópi en mennta- og menningarmálaráðuneytið fer nú með formennsku í þeim hópi.
Hins vegar var um að ræða aðgerðir til lengri tíma sem lutu aðallega að eflingu menntunar með aðkomu mennta- og menningarmálaráðuneytis. Þar á meðal var stofnaður þróunarsjóður til þriggja ára til að efla starfstengt nám á framhaldsskóla- og háskólastigi og þróa styttri námsbrautir en stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins sáu um að tryggja sameiginlega fjármögnun sjóðsins. Þá var vinnustaðanámssjóði komið á laggirnar til að mæta kostnaði vegna starfsnáms á vinnustað.
Í febrúar 2012 gerðu stjórnvöld samkomulag við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins um tilraunaverkefni til þriggja ára um þjónustu við atvinnuleitendur innan ramma laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, og laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir. Til að annast framkvæmd verkefnisins stofnuðu Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins sameiginlegt félag, Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. (STARF) sem annast þjónustu við atvinnuleitendur í tengslum við vinnumiðlun og vinnumarkaðsaðgerðir og fær til þess greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Markmið verkefnisins er að efla vinnumiðlun en einnig að stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkurnar á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði en verkefnið byggist á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 2011 sem gerð var í tengslum við gerð kjarasamninga. Í samkomulaginu var m.a. lögð áhersla á að um væri að ræða viðbót við þá þjónustu sem Vinnumálastofnun veitti á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar og að verkefnið skyldi útfært með þeim hætti að unnt yrði að meta með heildstæðum hætti kosti þess og galla að stéttarfélög í samstarfi við atvinnurekendur sæju um þjónustu við atvinnuleitendur í tengslum við vinnumiðlun og vinnumarkaðsaðgerðir. Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. hefur þjónustað rúmlega fjórðung atvinnuleitenda í landinu og boðið þeim þátttöku í lögbundnum vinnumarkaðsúrræðum sem eru nánar útfærð í reglugerðum. Verkefnið mun standa yfir til loka apríl 2015.
2. Hvaða aðilar bjóða upp á vinnumarkaðsúrræði og í hverju eru úrræðin fólgin í stuttu máli?
Vinnumálastofnun og Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. bjóða upp á vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur. Úrræði sem skipulögð eru fyrir atvinnuleitendur eru ýmist hluti af daglegri starfsemi Vinnumálastofnunar eða Starfs eða keypt frá fræðsluaðilum og öðrum samstarfsaðilum.
Áherslur í þjónustu við atvinnuleitendur eru eftirfarandi:
1. Snemmbært inngrip með tilboði um virkniúrræði.
2. Áhersla á náms- og starfsráðgjöf.
3. Einstaklingsmiðuð virkniáætlun.
4. Samstarf við ólíka aðila, svo sem skólakerfið, aðila vinnumarkaðarins, fullorðinsfræðsluaðila, sjálfboðaliðasamtök og sveitarfélög.
5. Skylduvirkni – forsenda bóta.
Ferli og markmið virknistarfsins.
Ráðgjöf: Atvinnuleitendum stendur til boða náms- og starfsráðgjöf og félagsráðgjöf auk sálfræðilegrar ráðgjafar og er ráðgjöfin veitt bæði í formi einstaklingsviðtala og hópráðgjafar. Ráðgjafar sjá um skipulag og framkvæmd þessarar ráðgjafarþjónustu.
Grunnúrræði: Styttri úrræði sem standa öllum atvinnuleitendum til boða, svo sem starfsleitarnámskeið, gerð ferilskrár, markmiðasetning, áhugasviðsgreining, ýmsir klúbbar sem ætlaðir eru til að auka virkni þátttakenda og fleira sem styður einstaklinga í atvinnuleit. Ráðgjafar sjá um skipulag og framkvæmd þessara grunnúrræða.
Námskeið: Námskeið með það að markmiði að styrkja atvinnuleitandann í atvinnuleit, svo sem tölvunámskeið, vinnuvélanámskeið og annað starfsnám. Auk þess eru íslenskunámskeið fyrir erlenda ríkisborgara. Gerðir eru þjónustusamningar við ýmsa námskeiðshaldara og aðila er sinna fullorðinsfræðslu, svo sem einkarekna tölvu- og skrifstofuskóla, ökuskóla, tungumálaskóla og símenntunarmiðstöðvar. Dæmi um þjónustuaðila eru Mímir símenntun, Símey, Fræðslunet Suðurlands, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Fræðslusetrið, Starfsmennt, Fræðslusetrið Iðan, Menntasetrið við Lækinn, Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn, Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Nýi ökuskólinn, Nýttu kraftinn, Alþjóðasetur, Prómennt, Retor, Skóli EU, Múltí Kúltí, Þekkingarmiðlun, Bifröst, HR og EHÍ.
Námsleiðir: Ýmsar leiðir innan framhaldsskóla eða háskóla eru í boði fyrir atvinnuleitendur sem vilja bæta við sig námi eða ljúka námi. Ávallt er gerð krafa um virka atvinnuleit, nema í algjörum undantekningartilfellum. Einstaklingar eru styrktir til þátttöku í námi við viðurkenndar menntastofnanir innan hins almenna menntakerfis á Íslandi með námsstyrk auk þess sem námssamningar eru gerðir við viðkomandi einstaklinga. Skólarnir eru á framhaldsskólastigi og háskólastigi auk frumgreinadeilda og símenntunarmiðstöðva. Þess ber að geta að hér undir fellur ekki nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna enda er litið svo á að í slíkum tilvikum geti viðkomandi sótt þar um lán sér til framfærslu eins og aðrir námsmenn.
Atvinnutengd úrræði: Atvinnuleitendur eiga kost á ýmis konar endurhæfingu með það að markmiði að byggja sig upp fyrir virka þátttöku á vinnumarkaði. Gerðir eru samningar við einstaklinga um þátttöku í starfsendurhæfingu og greiddur er sá kostnaður sem hlýst af þátttöku í slíku úrræði sem skipulagt er af starfsendurhæfingaraðilum, svo sem starfsendurhæfingarmiðstöðvum. Vinnumálastofnun gerir einnig samninga við einstaklinga um þátttöku í sjálfboðaliðastarfi, til dæmis hjá Rauða krossi Íslands.
Starfsþjálfunarúrræði: Atvinnuleitandi er þá í starfsþjálfun í ákveðinn tíma hjá fyrirtækjum, stofnunum eða sveitarfélögum og á tímabilinu er atvinnuleitandi undanskilinn virkri atvinnuleit. Gerðir eru samningar við atvinnurekendur um slíka þjálfun og renna atvinnuleysisbætur viðkomandi ásamt 8% framlagi í lífeyrissjóð til atvinnurekanda á samningstímanum sem getur verið í allt að sex mánuði.
6. Hve margir hafa notið úrræðanna árlega síðastliðin fjögur ár, sundurliðað eftir tegundum úrræða? Óskað er eftir mati á árangri af hverju úrræði fyrir sig.
Vinnumálastofnun heldur utan um alla tölfræðisamantekt fyrir Vinnumálastofnun og Starf. Á vegum Starfs hefur ekki farið fram sérstakt mat á árangri vinnumarkaðsúrræða en Vinnumálastofnun annast alla tölfræðisamantekt á vinnumarkaðsúrræðum, auk þess sem öll þátttaka og virkni er skráð í gagnagrunn stofnunarinnar. Þær upplýsingar sem fram koma í svari þessu eru fengnar úr gagnagrunni Vinnumálastofnunar. Í töflu 1 má sjá sundurgreindar upplýsingar um fjölda þátttakenda sem skráðir voru í úrræði á árunum 2009–2013.
Þátttökuhlutfallið er reiknað sem hlutfall milli þátttakenda í úrræðum og fjölda á skrá hjá Vinnumálastofnun. Fjöldi þátttakenda gefur eingöngu til kynna fjölda einstaklinga sem fóru í úrræði á árinu en skráningar í úrræði eru fleiri því hver atvinnuleitandi getur skráð sig í fleiri en eitt úrræði. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun er erfitt að meta árangur úrræða en stofnunin miðar við að skoða hvar atvinnuleitandi stendur þremur mánuðum eftir að þátttöku hans í úrræði lýkur. Árið 2011 var þátttakandi í vinnumarkaðsúrræði í 46% tilvika ekki á skrá þremur mánuðum eftir að þátttöku lauk.
Vinnumarkaðsúrræði sem boðið er upp á eru fjölbreytileg allt frá því að vera nokkurra klukkustunda námskeið upp í sex mánaða starfsþjálfun. Til að auðvelda aðgreiningu og meta árangur er úrræðunum skipt niður í fimm flokka eftir eðli þeirra og lengd. Flokkarnir eru grunnúrræði, námskeið, námsleiðir, atvinnutengd úrræði og starfsþjálfunarúrræði og eru nánar útlistaðir í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
Tafla 2 sýnir fjölda þátttakenda í úrræðum skipt eftir flokkunum fimm. Flestir atvinnuleitendur fara í styttri úrræði, svo sem grunnúrræði og námskeið. Hlutfallið er reiknað af heildarfjölda skráðra úrræða en sem dæmi voru 25% af skráðum úrræðum á árinu 2009 grunnúrræði. Starfsþjálfunarúrræðin skila hvað bestum árangri ef horft er til þess hve hátt hlutfall er ekki á skrá þremur mánuðum eftir að úrræði lýkur, en á árunum 2009–2013 voru að jafnaði 70% þátttakenda í þessum úrræðum ekki komnir aftur inn á atvinnuleysisskrá að þremur mánuðum liðnum.
Í lok árs 2013 var gerð könnun meðal einstaklinga sem ekki voru lengur skráðir atvinnuleitendur en höfðu verið skráðir atvinnuleitendur í sex mánuði eða lengur á tímabilinu 2009–2013. Tilgangur könnunarinnar var að sjá hvar þessir einstaklingar væru staddir. Í væntanlegri skýrslu um könnunina er að finna áhugaverðar niðurstöður en meginniðurstaðan er að stærstur hluti þeirra sem ekki eru lengur skráðir atvinnuleitendur eru nú í vinnu, eða um 60%, 5% eru í vinnu samhliða námi og 10% eru í námi. Samtals eru því um 75% þessara einstaklinga í vinnu og/eða námi. Af þeim sem eftir standa eru 6% farin af vinnumarkaði sökum aldurs, örorku eða lengri veikinda og rúm 2% eru í fæðingarorlofi. Eftir standa um 17% sem svara því til að þeir séu í atvinnuleit, heimavinnandi eða hvorki í námi né vinnu án þess að skilgreina það nánar.
Könnunin sem gerð var meðal 3.000 manna úrtaks náði til þýðis sem var nálægt 24.000 manns. Ef hlutfallstölurnar eru umreiknaðar í fjölda af þýði má sjá að um 3.500 manns af þessum 24.000 eru í atvinnuleit, heimavinnandi eða hvorki í vinnu né námi, um 2.100 eru hætt á vinnumarkaði vegna aldurs, örorku eða lengri veikinda, en um 17.800 manns eru í vinnu eða í námi.
Í könnuninni var sérstaklega litið til þess hóps sem tók þátt í verkefninu Nám er vinnandi vegur. Árangur af því verkefni virðist vera góður, en af þeim hópi, sem í voru tæplega 1.000 skráðir atvinnuleitendur haustið 2011, eru um 15% enn í því námi sem þeir hófu í tengslum við verkefnið, um 28% eru í öðru námi í framhaldi af því og um 24% hafa lokið náminu og eru í vinnu. Hlutfall þeirra sem hættu í verkefninu en eru nú með vinnu er 15%. Samkvæmt niðurstöðum þessarar könnunar er um 13% þessa hóps ekki með vinnu í dag ýmist eftir að hafa lokið náminu eða hætt.
Könnunin leiddi í ljós að fyrrverandi atvinnuleitendur eru almennt ánægðir með þau úrræði og verkefni sem þeir tóku þátt í þó einhvers mismunar sé að gæta eftir verkefnum. Meiri hluti þátttakenda telur að vinnumarkaðsúrræðin eða önnur verkefni sem þeir tóku þátt í hafi hjálpað þeim við atvinnuleit og þá einkum sá hópur sem tók þátt í starfsþjálfunarverkefnum á borð við Vinnandi veg árið 2012.
7. Hver er stefnan í þessum málaflokki næstu tvö árin?
Stefna stjórnvalda á sviði vinnumarkaðsaðgerða var mörkuð með lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, og lögum nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir. Frumvarp til þeirra laga byggðist á vinnu starfshóps þáverandi félagsmálaráðherra sem í áttu sæti fulltrúar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins. Meginmarkmið laganna er að stuðla að því að sem flestir fái tækifæri til að vera virkir á vinnumarkaði sjálfum sér og samfélaginu til hagsbóta. Enn fremur er stefnt að því að veita einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem áhersla er lögð á getu og þarfir einstaklinganna sem leita eftir þjónustu Vinnumálastofnunar sem falið var að annast framkvæmd laganna. Við setningu laganna var áhersla lögð á að ein stofnun annaðist framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða óháð því hvaðan framfærsla einstaklinganna kæmi til að betri yfirsýn fengist yfir þau úrræði sem í boði væru en áður hafði verið gagnrýnt að úrræðin væru of dreifð og á hendi margra aðila. Vinnumarkaðsaðgerðir fela í sér vinnumiðlun, mat á hæfni atvinnuleitenda og skipulag vinnumarkaðsúrræða með hliðsjón af færni þeirra sem eru í atvinnuleit, sem og mat á atvinnuhorfum á innlendum vinnumarkaði.
Samhliða gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði haustið 2013 sendi ráðherranefnd um kjarasamninga minnisblað til heildarsamtaka á vinnumarkaði, dags. 15. nóvember 2013, þar sem m.a. kom fram að félags- og húsnæðismálaráðherra hefði hug á að skipa nefnd um mótun vinnumarkaðsstefnu og skipulag vinnumarkaðsmála svo stuðla mætti betur að velferð þeirra sem starfa á innlendum vinnumarkaði og tryggja virka þátttöku sem flestra á vinnumarkaði í því skyni að auka samkeppnishæfni Íslands, m.a. með hliðsjón af tillögum verkefnastjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld. Þannig yrði m.a. könnuð þörf fyrir sértækar vinnumarkaðsaðgerðir til að skapa störf í samræmi við menntun og skoðaðir möguleikar á aðgerðum til að laða sérhæft vinnuafl til starfa á innlendum vinnumarkaði. Í vinnumarkaðsstefnunni verður m.a. litið til þess hvernig atvinnulífið geti komið til móts við einstaklinga með skerta starfsgetu þannig að þeir geti líkt og aðrir fengið tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði, auk þess sem litið verður til atvinnumála fatlaðs fólks, þar sem mikilvægt er að horfa á atvinnumál allra í samhengi í stað þess að taka tiltekna hópa út fyrir sviga. Ráðherra telur mikilvægt að vinnumarkaðsstefnan veki jákvæða framtíðarsýn hjá ungu fólki og hvetji til aukinnar menntunar og betri tengingar milli þeirrar menntunar sem fólk velur sér og þarfa atvinnulífsins. Sem lið í mótun vinnumarkaðsstefnu verður jafnframt leitast við að finna leiðir til þess að brjóta upp kynbundið náms- og starfsval og hefur starfandi aðgerðahópi um launajafnrétti kynjanna þegar verið falið að skoða þessi mál. Ráðherra leggur áherslu á að innleiða aukinn sveigjanleika við starfslok þar sem vinnukraftar eldra fólks eru oft og tíðum vannýttir þó að margir bæði vilji og geti verið virkir lengur á vinnumarkaði en lög gera ráð fyrir. Einnig er mikilvægt að huga sérstaklega að aðstæðum erlendra ríkisborgara á íslenskum vinnumarkaði og gæta þess m.a. að þeir verði ekki félagslegum undirboðum að bráð. Í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um aukna framleiðslu og skilvirkni í ríkisrekstri er snúa að ráðherra koma fram tillögur þess efnis að sá hluti starfsemi Tryggingastofnunar sem lýtur að endurhæfingu og örorkumati, önnur starfsemi Vinnumálastofnunar en Fæðingarorlofssjóður og hluti af starfsemi Vinnueftirlits ríkisins verði sameinuð í eina vinnumálastofnun. Ráðherra mun skipa nefnd um mótun vinnumarkaðsstefnunnar í mars næstkomandi.
8. Hvernig er gert ráð fyrir að atvinnuleysi þróist á næstu árum og hvaða áhrif hafa spár á þau úrræði sem boðið verður upp á?
Samkvæmt nýjustu þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands sem birt var í Peningamálum nýverið er gert ráð fyrir að atvinnuleysi á árinu 2014 verði 3,7%. Fyrri spá Seðlabankans, frá því í nóvember 2013, gerði ráð fyrir að atvinnuleysi yrði 4,1% á árinu 2014 og er því um nokkra lækkun að ræða. Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi haldist svipað á árinu 2015 en lækki í 3,5% á árinu 2016. Byggist þetta m.a. á því að hagvöxtur var meiri á árinu 2013 en ráð hafði verið gert fyrir og er spáð auknum hagvexti næstu þrjú árin, eða á bilinu 2,6–3,7% á ári.
Vinnumálastofnun áætlar þó að skráð atvinnuleysi verði um 4,1% á árinu 2014. Er þá horft til þess að skráð atvinnuleysi í janúar var 4,5% og stefnir í um 4,6% í febrúar 2014 en í því ljósi telur Vinnumálastofnun ólíklegt að meðaltal skráðs atvinnuleysis á árinu 2014 fari mikið niður fyrir 4,1%. Í samræmi við hefðbundna árstíðasveiflu er gert ráð fyrir að skráð atvinnuleysi fari niður í um 3,7% í júní og júlí 2014 en muni svo aukast smám saman til ársloka og ársmeðaltalið verði því um 4,1%. Spáin byggist á ýmsum þáttum sem tengjast horfum á vinnumarkaði, m.a. á niðurstöðum könnunar Capacent meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins, mannfjöldaþróunar og upplýsinga um búferlaflutninga, auk þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað síðustu missiri samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar hvað varðar vinnuafl, fjölda starfa og atvinnuþátttöku.
Margt ber að hafa í huga varðandi samsetningu þess hóps sem er án atvinnu á hverjum tíma með tilliti til þess hvers konar úrræðum þörf er á hverju sinni. Langtímaatvinnuleitendum hefur fækkað jafnt og þétt síðustu missiri en með langtímaatvinnuleitendum er átt við atvinnuleitendur sem hafa verið eitt ár eða lengur skráðir á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumálastofnun. Ætla má að ástæðurnar séu annars vegar að starfsþjálfun og öðrum vinnumarkaðsúrræðum hefur verið beint sérstaklega að langtímaatvinnuleitendum og hins vegar hefur allstór hópur atvinnuleitenda fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins og er því ekki lengur skráður á atvinnuleysisskrá. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að langtímaatvinnuleitendum sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá hjá stofnuninni muni fækka um nær 400 einstaklinga frá árslokum 2013 til ársloka 2014, úr tæplega 2.000 í árslok 2013 í um 1.600 í árslok 2014. Oft vill brenna við að langtímaatvinnuleitendur leiti ekki eftir þjónustu Vinnumálastofnunar eftir að þeir hafa fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta innan atvinnuleysistryggingakerfisins og má því gera ráð fyrir að þörf fyrir ítarlega ráðgjöf og vinnumarkaðsúrræði til handa langtímaatvinnuleitendum muni minnka að sama skapi.
Skráð atvinnuleysi hefur farið lækkandi síðustu ár og hefur þeim sem skráðir hafa verið án atvinnu skemur en tólf mánuði fækkað jafnt og þétt í takt við þá þróun. Á milli áranna 2012 og 2013 fækkaði þeim einstaklingum, sem skráðir höfðu verið án atvinnu skemur en tólf mánuði, þó ekki eins ört og áður þrátt fyrir að skráð atvinnuleysi hafi haldið áfram að lækka og hafa fyrstu tölur ársins 2014 gefið vísbendingar um að sú þróun haldi áfram. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur fjöldi nýskráninga á atvinnuleysisskrá fyrstu vikur ársins 2014 verið svipaður og fyrstu vikur ársins 2013. Spár um hagvöxt og niðurstöður kannana um fjölgun starfa, auk annarra þátta efnahagslífsins er varða vinnumarkaðinn, gefa til kynna að störfum muni ekki fjölga nema um nokkur hundruð umfram þann fjölda sem bætist við vinnumarkaðinn árið 2014 ef miðað er við mannfjöldaspár og spár um búferlaflutninga. Vinnumálastofnun gerir því ráð fyrir að skráð atvinnuleysi lækki því einungis um 0,3 prósentustig á árinu, sem svarar til ríflega 500 einstaklinga.
Í ljósi framangreinds er ekki gert ráð fyrir að nýskráningum á atvinnuleysisskrá muni fækka og jafnvel gert ráð fyrir að þeim muni fjölga lítið eitt á árinu 2014. Því má gera ráð fyrir að álag við móttöku og skráningu umsókna um atvinnuleysisbætur, sem og við útreikning og ákvörðun bóta, verði svipað á árinu 2014 og það var árið 2013. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að fjöldi skráðra atvinnuleitenda sem hafa verið án atvinnu í 3–12 mánuði muni verða svipaður á árinu 2014 og hann var á árinu 2013. Því megi gera ráð fyrir að áfram verði þörf fyrir ráðgjöf og vinnumarkaðsúrræði fyrir þann hóp á árinu 2014 með svipuðu sniði og var á árinu 2013. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni eru einhverjar líkur á því að atvinnuleysi árið 2014 verði hlutfallslega lægra en 4,1% en spá Seðlabankans gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði allt að 3,7%. Gangi sú spá eftir að einhverju marki mun það skila sér í fækkun nýskráninga hjá Vinnumálastofnun og fækkun meðal atvinnuleitenda sem hafa verið skráðir á atvinnuleysisskrá skemur en tólf mánuði.
Undanfarin missiri hefur hlutur útlendinga meðal þeirra sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá farið hægt vaxandi og eru útlendingar nú um 18% skráðra atvinnuleitenda innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Í því ljósi hefur Vinnumálastofnun lagt aukna áherslu á að veita útlendingum sem eru án atvinnu þjónustu og á að auka framboð úrræða fyrir þá í samvinnu við fræðsluaðila og ýmsa þá sem koma að málefnum útlendinga. Útlendingar standa oft höllum fæti á innlendum vinnumarkaði og þurfa því á öflugri ráðgjöf og stuðningi að halda.
Fækkun atvinnuleitenda innan atvinnuleysistryggingakerfisins síðustu missiri hefur að stærstum hluta til komið fram meðal ófaglærðra og fólks með iðnmenntun. Skráðum atvinnuleitendum sem lokið hafa annars konar menntun hefur fækkað mun hægar. Þannig hefur hlutfall háskólamenntaðra á atvinnuleysisskrá vaxið jafnt og þétt frá efnahagsþrengingunum sem hófust haustið 2008, úr nálægt 14% um áramótin 2008–2009 í um 22% í árslok 2013. Mikilvægt er að huga að þessu við skipulagningu vinnumarkaðsúrræða. Einnig hefur orðið breyting hvað varðar þau störf sem atvinnuleitendur hafa gegnt áður en kom til atvinnumissis. Þannig fór hlutfall atvinnuleitenda sem starfað höfðu við mannvirkjagerð yfir 20% af öllum atvinnuleitendum haustið 2008 en nú er þetta hlutfall nálægt 5%. Hlutur fólks sem gegnt hefur störfum í ýmsum þjónustugreinum hefur aukist á móti, þar með talið atvinnuleitendur sem gegnt hafa stöfum við opinbera þjónustu áður en kom til atvinnumissis.
Loks hefur körlum sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá fækkað hlutfallslega meira frá hausti 2008 en konum sem skráðar eru án atvinnu. Einnig fjölgaði skráðum atvinnuleitendum í elsta aldurshópnum jafnt og þétt frá árinu 2009 þar sem erfiðara hefur reynst fyrir eldra fólk á vinnumarkaði að fá starf að nýju eftir atvinnumissi. Fyrir vikið hafa þeir eldri í meira mæli en þeir yngri fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins síðustu missirin. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að langtímaatvinnuleysi verði meira meðal elsta aldurshópsins en þeirra yngri. Yngra fólk kemur á hinn bóginn í meira mæli inn á atvinnuleysisskrá í skamman tíma og hefur hlutfall þeirra yngri á atvinnuleysisskrá því hækkað á ný nú síðasta árið eða svo.
9. Eru fyrirhugaðar breytingar á aðkomu ríkisins að málefnum þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en fjögur ár og hafa ekki lengur rétt til bóta frá ríkinu?
Samkvæmt lögum nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, annast Vinnumálastofnun framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða sem felur í sér vinnumiðlun, mat á hæfni atvinnuleitenda og skipulag vinnumarkaðsúrræða með hliðsjón af færni þeirra sem eru í atvinnuleit og mat á atvinnuhorfum á innlendum vinnumarkaði. Lögin gera ráð fyrir að einstaklingum á aldrinum 16–70 ára sé heimilt að sækja um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum en áhersla er lögð á að þjónusta Vinnumálastofnunar sé einstaklingsmiðuð óháð því hvaðan framfærsla einstaklinganna kemur.
Lítið reyndi á framangreind lög fyrir árið 2008 þar sem atvinnuleysi var mjög lítið á innlendum vinnumarkaði fyrir þann tíma. Í kjölfar efnahagsþrenginganna haustið 2008 jókst atvinnuleysi hins vegar ört hér á landi og frá þeim tíma hefur reynst erfiðara en áður fyrir atvinnuleitendur að fá störf að nýju eftir atvinnumissi. Það hefur gert það að verkum að margir hafa fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins og því hefur reynt frekar á þjónustu Vinnumálastofnunar við þá atvinnuleitendur en áður. Hafa stjórnvöld, þar á meðal sveitarfélögin, í samvinnu við samtök aðila vinnumarkaðarins því gripið til ýmissa átaksverkefna til að koma til móts við aðstæður þessa fólks. Þar á meðal má nefna verkefnið Liðsstyrk sem sett var á laggirnar í ársbyrjun 2013. Markmið verkefnisins var að virkja atvinnuleitendur sem höfðu fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og einnig að koma í veg fyrir óvinnufærni vegna langvarandi atvinnuleitar. Var Vinnumálastofnun og Starfi – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. falin framkvæmd verkefnisins en því lauk í desember 2013.
Áhersla hefur verið lögð á gott samstarf við sveitarfélögin sem hafa verið virkir þátttakendur í þeim verkefnum sem framkvæmd hafa verið í tengslum við vinnumarkaðsaðgerðir. Í nóvember 2013 hóf Vinnumálastofnun markvisst samstarf við sveitarfélögin í landinu um þjónustu við vinnufæra atvinnuleitendur sem njóta fjárhagsaðstoðar frá félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem þeir eiga ekki rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Samstarfið snýst einkum um starfsráðgjöf og atvinnuleit og er rekið undir heitinu Stígur. Í þessu verkefni þarf þátttakandi að uppfylla ákveðin skilyrði fyrir þátttöku, t.d. að vera reiðubúinn að taka tilboði um atvinnu eða starfstengt vinnumarkaðsúrræði, að hafa fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins eða að eiga ekki rétt til greiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna annarra ástæðna. Þá þarf viðkomandi að hafa sótt um fjárhagsaðstoð til sveitarfélags og að hafa verið vísað í verkefnið af félagsþjónustu þess sveitarfélags þar sem hann hefur skráð lögheimili. Fyrst og fremst er lögð áhersla á að koma þessum hópi atvinnuleitenda í starf og því lögð áhersla á starfstengd vinnumarkaðsúrræði.
Áhersla er lögð á að þjónusta alla atvinnuleitendur eftir þörfum hvers og eins og undanfarin missiri hefur Vinnumálastofnun lagt sérstaka áherslu á þjónustu við geðfatlaða sem oft á tíðum reynist mjög erfitt að fóta sig aftur á vinnumarkaði eftir veikindi. Vinnumálastofnun er jafnframt að móta frekara samstarf með Öryrkjabandalagi Íslands í tengslum við virkni og atvinnuleit félagsmanna þess. Jafnframt má nefna að Vinnumálastofnun hefur verið falin umsýsla samninga um starfsendurhæfingu sem áður voru á hendi velferðarráðuneytisins. Undir það falla m.a. samskipti við Hringsjá – náms- og starfsendurhæfingu, Klúbbinn Geysi, Klúbbinn Strók, Ljósið og fleiri. Markmiðið með vistaskiptunum er að Vinnumálastofnun sinni enn betur en áður aðstoð við atvinnuleit þeirra sem eru á framfærslu almannatrygginga. Stefnt er að því að endurhæfingarsamningar sem Tryggingastofnun ríkisins hefur gert við skjólstæðinga sína verði í framtíðinni á hendi Vinnumálastofnunar þar sem stofnunin hefur þróað gott samband við fyrirtæki og stofnanir í landinu auk þess að búa yfir sérfræðikunnáttu í vinnumarkaðsúrræðum.
10. Eftir hvaða lögum og reglugerðum er unnið í þessum málaflokki?
Við framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða er unnið eftir lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, og lögum nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, ásamt reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli framangreindra laga.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 643 — 279. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni
um vinnumarkaðsúrræði.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Tafla 1. Fjöldi þátttakenda sem skráðir voru í úrræði á árunum 2009–2013.
| 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | |
| Atvinnuleysi VMST | 8,0% | 8,1% | 7,4% | 5,8% | 4,4% |
| Fjöldi atvinnuleitenda sem eitthvað komu á skrá hjá VMST | 33.678 | 29.737 | 26.855 | 22.828 | 19.311 |
| Atvinnuleitendur skráðir í úrræði | 5.364 | 9.626 | 10.567 | 8.003 | 9.331 |
| Þátttökuhlutfall í úrræðum | 16% | 32% | 39% | 35% | 48% |
| Árangur (ekki á skrá þremur mánuðum eftir að úrræði lauk) | 37% | 32% | 38% | 46% | 52% |
Vinnumarkaðsúrræði sem boðið er upp á eru fjölbreytileg allt frá því að vera nokkurra klukkustunda námskeið upp í sex mánaða starfsþjálfun. Til að auðvelda aðgreiningu og meta árangur er úrræðunum skipt niður í fimm flokka eftir eðli þeirra og lengd. Flokkarnir eru grunnúrræði, námskeið, námsleiðir, atvinnutengd úrræði og starfsþjálfunarúrræði og eru nánar útlistaðir í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
Tafla 2. Fjöldi þátttakenda í vinnumarkaðsúrræðum Vinnumálastofnunar.
| 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | |
| Grunnúrræði | 1.602 | 3.267 | 4.362 | 3.105 | 4.866 |
| Hlutfall | 25% | 29% | 33% | 31% | 45% |
| Árangur | 27% | 27% | 27% | 36% | 42% |
| Námskeið | 1.898 | 4.450 | 4.412 | 3.126 | 1.675 |
| Hlutfall | 30% | 39% | 34% | 31% | 15% |
| Árangur | 31% | 25% | 28% | 36% | 38% |
| Námsleiðir | 1.577 | 2.083 | 2.665 | 1.282 | 1.386 |
| Hlutfall | 25% | 18% | 21% | 13% | 13% |
| Árangur | 44% | 34% | 56% | 44% | 41% |
| Atvinnutengd úrræði | 125 | 285 | 359 | 379 | 434 |
| Hlutfall | 2% | 2% | 3% | 4% | 4% |
| Árangur | 38% | 41% | 41% | 45% | 54% |
| Starfsþjálfunarúrræði | 1.109 | 1.353 | 1.185 | 2.190 | 2.460 |
| Hlutfall | 18% | 12% | 9% | 22% | 23% |
| Árangur | 54% | 61% | 70% | 76% | 85% |