Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 362. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 667  —  362. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rekjanleika í tölvukerfum
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.


Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Er rekjanleiki fyrir hendi í einhverjum þeirra tölvukerfa sem ráðuneytið notar og er haldin „log“-skrá hjá þessum aðilum?
     2.      Hvernig er haldið utan um sögu aðgerða notenda í kerfunum, t.d. um það hvað notendur skrá, breyta eða skoða?


Skriflegt svar óskast.