Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 364. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 669  —  364. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um fjárreiður stofnana og rannsóknarsetra
sem heyra undir Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.


Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


    Hverjar voru fjárreiður, þ.e. helstu tekjustofnar og útgjaldaliðir, eftirfarandi stofnana og rannsóknarsetra árin 2009–2013:
     –      Fræðaseturs þriðja geirans,
     –      Mannfræðistofnunar,
     –      MARK – Miðstöðvar margbreytileika og kynjarannsókna,
     –      Miðstöðvar rannsóknarblaðamennsku á Íslandi,
     –      Rannsóknamiðstöðvar í þjóðfræði,
     –      Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum,
     –      Rannsóknarseturs um fólksflutninga og fjölmenningu,
     –      Rannsóknarstofu í vinnuvernd,
     –      Rannsóknasetursins Lífshættir barna og ungmenna,
     –      Rannsóknaseturs í safnafræðum,
     –      Rannsóknaseturs um fjölmiðlun og boðskipti,
     –      Rannsóknarstofu í afbrotafræði,
     –      Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd,
     –      Sérfræðiseturs í ævilangri náms- og starfsráðgjöf,
     –      Þjóðmálastofnunar,
     –      Rannsóknaseturs í skatta- og velferðarmálum?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.