Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 385. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 706 — 385. mál.
1. Hvenær var formlega samþykkt í ríkisstjórn að stofna ráðgjafarhóp um afnám gjaldeyrishafta?
2. Hvert er erindisbréf hópsins og hvar hefur það verið birt?
3. Af hverju hefur ekki verið birt opinberlega tilkynning um stofnun hópsins?
4. Hvort er um að ræða tímabundið verkefni eða ótímabundið?
5. Eru ritaðar fundargerðir af fundum hópsins?
6. Hvort er um að ræða starfsnefnd, starfshóp eða ráðgjafa ríkisstjórnarinnar? Ef um óformlegan hóp er að ræða, hver er þá stjórnsýsluleg staða hans?
7. Mun hópurinn skila skýrslu og til hvaða ráðherra?
8. Hafa verið gerðir ráðningarsamningar við einstaklinga í hópnum og hver eru laun þeirra?
9. Hversu margar konur og hversu margir karlar eru í hópnum? Samræmist skipan einstaklinga í hópinn ákvæðum jafnréttislaga um þátttöku í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera og stefnu ríkisstjórnarinnar um jafna stöðu kynjanna?
10. Telur ráðherra hugsanlegt að það sé ekki í samræmi við góða stjórnsýslu að láta hjá líða að kynna viðeigandi fagnefndum Alþingis stofnun ráðgjafarhóps sem á að gera ríkisstjórninni tillögur um verkefni sem hún hefur skilgreint sem eitt hið mikilvægasta sem við blasir, afnám gjaldeyrishafta?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 706 — 385. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um ráðgjafarhóp um afnám gjaldeyrishafta.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.