Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 388. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 709  —  388. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um samstarf á norðurskautssvæðinu og stöðu Íslands.


Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til þátttöku Íslands í svonefndu fimm ríkja samstarfi þjóða á norðurskautssvæðinu? Hefur þess verið krafist að Íslandi verði veitt aðild að samstarfinu og ef svo er, hverjar hafa undirtektirnar verið?
     2.      Hefur Ísland verið viðurkennt sem strandríki í Norðurskautsráðinu? Ef svo er ekki, hvernig vinna þá íslensk stjórnvöld að því að tryggja Íslandi þá stöðu?
     3.      Hefur verið haft samráð við Ísland um vinnu sem fram fer á vettvangi fimm ríkja samstarfsins um fyrirkomulag fiskveiðistjórnar í norðurhöfum eða eftir atvikum aðra auðlindanýtingu?