Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 301. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 710 — 301. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve mörgum starfsmönnum ráðuneyta hefur verið eða verður sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir ráðuneytum og í hve miklum mæli er um að ræða uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls.
2. Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hefur hver ráðherra ríkisstjórnarinnar um sig ráðið frá stjórnarskiptum?
Í 2. málsl. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis er m.a. kveðið á um það að fyrirspurn til ráðherra skuli varða mál sem hann ber ábyrgð á.
Framangreind fyrirspurn sem beint er til fjármála- og efnahagsráðherra lýtur að málefnum starfsfólks hvers ráðuneytis Stjórnarráðsins. Ábyrgð á starfsmannahaldi innan Stjórnarráðs Íslands hvílir hins vegar sjálfstætt hjá hverju ráðuneyti og ráðherra fyrir sig. Í samræmi við það og ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 57. gr. þingskapa ber að beina fyrirspurnum er varða starfsráðningar í einstökum ráðuneytum til þess ráðherra sem fer með viðkomandi ráðuneyti. Sé óskað upplýsinga um starfsráðningar í öllum ráðuneytum ber samkvæmt framansögðu að beina sérstakri fyrirspurn þess efnis til hvers og eins ráðherra.
Berist fjármála- og efnahagsráðherra fyrirspurn sama efnis vegna starfsfólks fjármála- og efnahagsráðuneytis verður henni að sjálfsögðu svarað efnislega enda sé hún að öðru leyti í samræmi við form- og efnisskilyrði þingskapa. Til nánari skýringar á framangreindri afstöðu er vísað til svars forsætisráðherra við fyrirspurn á 139. löggjafarþingi í þingskjali 1414 sem og til bréfs forsætisráðuneytisins til forseta Alþingis, dags. 18. apríl 2011.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 710 — 301. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni
um uppsagnir starfsmanna Stjórnarráðs Íslands og starfslið ráðherra.