Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 395. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 722  —  395. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um gjafsókn.


Frá Willum Þór Þórssyni.



     1.      Hversu margar umsóknir um gjafsókn bárust ráðuneytinu árin 2011, 2012 og 2013?
     2.      Hversu mörgum umsóknum var hafnað á framangreindu árabili? Á grundvelli hvaða greina reglugerðar nr. 45/2008 var þeim hafnað? Óskað er eftir nákvæmri sundurliðun á ástæðum synjunar.
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir hækkun á viðmiðunarfjárhæðum skv. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 45/2008?


Skriflegt svar óskast.